D-listinn - 13.01.1942, Qupperneq 4

D-listinn - 13.01.1942, Qupperneq 4
4 D -LISTINN Hafnarmál. Síðastliðin tíu ár og jafnvel lengur hefir hér í þessum bæ ver- ið mikið rætt um innri höfnina og og hafnarmál Siglufjarðar yfirleitt. Ekkert er eðlilegra en svo hafi verið, því að hyrningarsteinn þessa bæjarfélags er höfnin. Sá félagsskapur sjómanna, sem bezt hefir staðið saman og i raun og veru sá eini, sem nokkuð er þekktur hér, eru samtök skipstjóra og stýrimanna. Allajafna hefir þessi félagsskapur látið sig miklu varða hafnarmálin og hafa tillögur þessa félags verið viðurkenndar sem sanngjarnar og til bóta, en sjaldn- ast náð fram að ganga. Við síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar hér lofuðu vinstri flokkarnir að vinna að því, að innri höfnin yrði skipulögð, þ. e. að fyrirkomu- lag hafnarinnar yrði ákveðið og komizt að samkomulagi við vita- málastjóra. Ennfremur að rannsak- aðir yrðu möguleikar á því, að hafnarsjóður eignist uppmoksturs- skip. Eftir þessi fjögur ár er höfnin óbreytt, en án efa mun grynnri, því að alltaf berst í höfnina, en lítið eða ekkert mokað frá í stað- inn. Hverju er hér um að kenna? Bæjarstjóri Áki Jakobsson hefir sagt undirrituðum, að vitamála- stjóri liggi á teikningum um fyrir- komulag innri hafnarinnar, eins og ormur á gulli, það sé búið að taka mörg sýnishorn af botni innri hafnarinnar og senda til rannsókn- ar, en þess er auðvitað full þörf, til að vita hvaða tæki henta bezt til uppmoksturs. Bæjarstjóri segir ennfremur, að hann fyrir hönd hafnarsjóðs hefði getað fengið keypt í Danmörku gott uppmokstursskip, fyrir sann- gjarnt verð, en það hafi allt strandað á yfirfærslu gjaldeyris. Eg hefi. ekki átt kost á að kynna mér, hver eða hverjir það eru, sem svo herfilega hafa lagst á móti framtíð Siglufjarðar. En ekkert var hægt að gera þessu bæjarfélagi meira á móti en einmitt það, að eyðileggja kaupin á uppmoksturs- skipinu, og hvilík smán að tala um gjaldeyrisvandræði í þessu sambandi, þar sem öll þjóðin veit, að frá Siglufirði kom meiri gjald- eyrir á því ári, til þjóðarbúsins, en frá öllum öðrum kaupstöðum á landinu samantöldum að fráskil- inni Reykjavík. Þetta þurfa Sigl- firðingar vel að muna. Harma eg það, að bæjarstjóra tókst ekki að framkvæma þessi skipakaup, því að þá væri án efa margt öðruvísi en það er. Eftir að þessi skipakaup fóru út um þúfur, virðist ekkert hafaverið gert af hálfu bæjarins til framdrátt- ar þessu máli, en við svo búið má ekki standa. Enda þótt síðustu og verstu tím- ar hafi það í för með sér, að tekj- ur hafnarinnar minnki að verulegu leyti, þá má ekki gleyma höfninni. Það verður að vinna að því nú þegar, að fá aukna tekjustofna handa höfninni, og nú verður að hlífa hafnarsjóði og ef þess er nokkur kostur ætti bæjarsjóður að hjálpa honum, því að oft á fyrri árum hefir hafnarsjóður verið stóribróðir. Enda þótt eg sé eindregið þeirr- ar skoðunar, að hafnarsjóði beri að eiga uppmokstursskip, þá verð- ur þó að leita úrbóta í bráðina að minnsta kosti, með því að sleppa ekki þeim tækifærum, sem fyrir eru í landinu með Ieigu á upp- mokstursskipum. Við verðum að athuga möguleika fyrir leigu þess skips, sem er hér og reyna við stjórn Vestmannakaupstaðar um hvort ekki sé hægt að fá þeirra skip leigt vissan tíma af árinu. Við verðum sem sagt að reyna allt hvað við getuin til að bæta höfnina. Ástandið er nú þannig, að 100 tonna skipum er ógjörlegt að salta við innri bryggjur innri hafnarinnar. Þungamiðja söltunar- innar verður því að fara fram á Tanganum og þar norður eftir. Þó er sá galli á, að alvarlega hættulegur sandhryggur er að myndast framan við bryggjurnar frá öldubrjót að bæjarbryggju, og er það mun meira en jafnvel kunnustu mönnum datt í hug. Við verðum, allir Siglfirðingar, að vera sammála og samtaka um, að það hendi aldrei, að öldur út- varpsins tilkynni landslýð, að fleiri skip standi botn á Siglufjarðarhöfn með fullfermi síldar. Nægir munn erfiðleikar Siglfirðinga, þó ekki sé vegið svo aftan að þeim af for- ráðamönnum bæjarins, að allt sé látið reka á reiðanum í hafnar- málunum. Eyþór Hallsson. Starfsgrundvöllur og stefnuskrá ... Frh. af 1. síðu. virðu, hvernig heilbrigðis- og þrifn- aðarmálum hans er háttað og telj- um okkur skylt að beita okkur fyrir umbótum á því sviði. íþróttamál. Við teljum að líkamlegu uppeldi æskunnar í bænum sé mjög ábóta- vant og viljum beita okkur fyrir umbótum á því sviði með því m. a., að styrkja íþróttafélög bæjarins, til þess að bæta aðstæður sínar til íþróttaiðkana, með byggingu í- þróttavalla og á annan hátt. Siglfirðingar! Kjösið ykkar eigin lista, D-LISTANNÍ Ábyrgðarrnaður: Áxel Jónannsson Sigluf j arð arprentsmið j a. Skrifstofa D-listans í Aðalgötu 16, (hús Adolfs Einarssonar) er opin aUa daga frá kl. 4—7 e. h. Sími 252.

x

D-listinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: D-listinn
https://timarit.is/publication/1823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.