Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 69
Erlendar fréttir
Hér verður aðeins drepið á það markverðasta fyrir okkur íslendinga, og
þá fyrst og fremst Norðurlandaför Í.R. og Norðurlandamótið í Stokkhólmi.
^uk þess birtist eftir venju heimsafrekaskráin, sem nær til 6 beztu manna
1 hverri grein.
Heimsmetaskráin tók engum verulegum breytingum árið 1947. A. m. k.
ekki á metravegalengdunum. Lennart Strand jafnaði heimsmet Ianda síns,
JJágg, í 1500 metra hlaupi og sveit Gevle i Svíþjóð setti nýtt heimsmet í
4X1500 metra boðhlaupi. Þá hljóp bandarísk sveit 1000 metra boðhlaup á
ketri tíma (1:52,8 mín.) en áður hafði verið gert, en á þeirri vegalengd er
ekki staðfest heimsmet. Loks jafnaði Harrison Dillard heimsmet Wolcotts
1 200 metra grindahlaupi (22,3 sek.), en hljóp þó raunar 220 yards, svo
t'minn var nýtt heimsmet á þeirri vegalengd.
Jafnbezti spretthlaupari ársins var Jamaicanegrinn Herbert MacKenley,
sern náði bezta heimstímanum á 3 vegalengdum. Annars vakti hinn hvíti
°S kornungi Bandaríkjastúdent, Mel Patton, mesta athygli og aðdáun a.
111 • k. vestan hafs. Jafnaði hann þrisvar heimsmetið í 100 yards (9,4) og
skorti aðeins 1/10 úr sek. á heimsmetið í 220 yards. Þá er í frásögur fær-
a*idi að landa hans Steele (negri) tókst að komast yfir 8 metra i lang-
stökki. — I Evrópu vöktu tímar Tékkans Zatopek’s í 3 og 5 km mikla
athygli svo og kúluvarp Lipp’s, Rússlandi, sem er Eistlendingur að uppruna.
Landskeppnir í Evrópu
J frjálsum íþróttum munu Svíar hafa verið sterkastir Evrópuþjóða.
Kom það vel í ljós á Norræna mótinu, þar sem þeir sigruðu allar hinar
^orðurlandaþjóðirnar sameinaðar. Af öðrum landskeppnum má nefna þess-
ar: Xorðmenn unnu Dani með 117 gegn 89 og Hollendinga með 109 gegn
thh Þá unnu Danir Hollendinga með 112 gegn 90 og loks unnu Frakkar
k'ng!endinga með 74 gegn 56.
ViðsjárverSur sleggjukastari
J júlímánuði komust upp þau mestu „íþróttasvik", sem um getur á
kiorðurlöndum. Varð hinn frægi sænski sleggjukastari, Erik Johannsson
L.ITmedalen") uppvís að því að kasta vísvitandi of léttri sleggju. Að vísu
'aðst hann aðeins hafa notað umrædda sleggju það ár (1947), en því
'ar ekki trúað og hafa nú öll hans grunsamlegu afrek og sænsku met verið
sti'ikuð út af sænsku metaskránni.
67
5'