Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 74
lofsamleg í garð íslendinga. „Dagur Bandaríkjanna og íslands á Bislet í
gær“, sagði Arbejderbladet í aðalfyrirsögn, og segir þar m. a. á þessa leið:
„Íslendingarnir vöktu alveg sérstaka athygli í gær. Kom glöggt í ljós hve
góðir þeir eru spretthlaupararnir Thorvaldsson og Clausen og endasprett-
urinn hjá Oskari Jónssyni í 1500 metra hlaupinu var lirein „sensasjon". —
Síðari dag Osló-leikanna á Bislet, 28. ágúst kepptu Íslendingarnir í 200 og
800 m hlaupi, kúluvarpi og spjótkasti. — Pétur Einarsson hljóp í B-riðli 800
metra hlaupsins og varð 3. á 2:00,6 mín., sem er 4. bezti tími, sem íslend-
ingur hefur náð í þessu hlaupi. — Sigurður Sigurðsson varð 4. í kúluvarpi
með 13,65 m. 1. varð Fortune Gordien, U.S.A., með 15,51 m. — Jóel Sig-
urðsson varð 2. í spjótkasti með 58,94 m. Lengsta kast Jóels var um 62 m,
en það var því miður ógilt. — 1 800 metra hlaupi varð Haukur 2. á eftir
Guida, U.S.A. Haukur hljóp á 22,2 sek., en Guida á 21,7 sek. Finnbjöm
varð 3. á 22,5 sek. og svo komu Norðmennirnir.
2. KEPPNIN Ágústleikarnir í Stokkhólmi 29. ágúst. — 100 metra
hlaupið vann Finnbjörn á 10,9 sek., en Lundquist, Svíþjóð, varð 2. á
sama tíma. Haukur var 3. einnig á 10,9 sek. 4. varð Nisse Karlsson á
11,0 sek. og 5. Hedin á 11,1 sek. — í j00 metra hlaupi varð Kjartan Jó-
hannsson 3. í sínum riðli á 51,6 sek., en komst ekki í úrsht. Reynir Sig-
urðsson var 6. í sínum riðli á 52,1 sek. — í 1500 metra hlaupi varð Oskar
Jónsson 9. á 3:57,4 mín, sem er hans næstbezti árangur í þeirri grein. —
Sigurður Sigurðsson varð 5. í kúluvarpi með 13,13 m. — Síðasta greinin
þetta kvöld var 1000 metra boðhlaup. Auk Í.B.- sveitar og sænsku félag-
anna keppti þar úrvalssveit frá Frakklandi, en Frakkarnir voru þá á
íþróttaferðalagi um Svíþjóð, og kepptu á Stadion þetta kvöld. Fyrir Í.R.-
sveitina hlupu þeir Orn Clausen, Finnbjörn, Haukur og Kjartan. Fyrstu
100 metrana hljóp Orn. Finnbjörn tók síðan við og hljóp 200 metrana,
skilaði hann keflinu til Hauks á undan öllum keppinautum sinum. Eftir
skiptingu þeirra Finnbjarnar og Hauks voru Frakkamir í öðru sæti og
um það bil 3 metra á eftir Í.R.-sveitinni. Chef d’Hotel hljóp fyrir Frakk-
landi. (Chef d’Hotel er eins og kunnugt er annar bezti 400 og 800 metra
hlaupari Frakklands). Haukur og hann voru jafnir fyrstu 50 metrana, en
þá fór Haukur að vinna jafnt og þétt á, og er 300 metrunum var lokið,
var Í.R.-sveitin komin upp undir 20 metra á undan. (Þess má geta að
Chef d’Hotel tapaði nokkrum metrum á því að hlaupa beygjuna á 3.
braut, enda þótt hann mætti hlaupa á innstu braut). Á 400 metra sprett-
inum hafði Kjartan um 20 metra forgjöf á móti franska meistaranum
Hansenne, sem hljóp stórkostlega vel og tókst á síðustu metrunum að
72