Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 76
en keppendur voru alls átta. — í 400 metra hlaupinu varð Reynir Sigurðs-
son 2. á 52,7 sek.. en fyrstur varð Lindgaard, Svíþjóð, á 51,1 sek. — Oskar
Jónsson varð 2. í S00 metra hlaupi á 1:59,5 mín., en sigurvegarinn J. Guld-
brand, Svíþjóð, var aðeins 2/10 sek. á undan.
4. KEPPNIN — í Helsingfors. — Mánudaginn 1. sept. fór Kjartan til
Finnlands með sænskum flokki til þess að keppa þar. Svíana vantaði 400
metra hlaupara og fengu þess vegna Kjartan lánaðan. Kjartan vann sinn
riðil í Helsingfors á 51,2 sek. og varð 4. í úrslitunum á 51,4 sek. A undan
honum voru tveir Finnar, þar á meðal Storskrubb, sem varð fyrstur.
3. varð ítalski meistarinn á 400 m og Kjartan 4.
5. KEPPNIN — Norðurlandamótið í Stokkhóhni 6.—8 sept. — Þeir
Finnbjörn og Haukur höfðu verið valdir til að keppa í Norðurlandaliðinu
á móti Svíþjóð. Finnbjörn í 100 metra hlaupi, langstökki og 4X100 metra
boðhlaupi og Haukur í 200 metra hlaupi og 4X100 metra boðhlaupi. Fyrir
mótið voru miklar bollaleggingar í sænsku blöðunum, bæði um úrslit móts-
ins í heild og einstakar greinar. Blöðin spáðu því, að Svíþjóð mundi vinna
mótið, sem og kom á daginn. Spádómar blaðanna um hinar ýmsu greinar
Teyndust nokkuð réttar, nema hvað Islendinga snerti. Finnbjörn töldu
þau verða seinastan í langstökki, en hann varð 4., og 3. í 100 metra hlaupi,
en þar varð hann 2. Ilauk töldu blöðin mundu verða sðastan í 200 metra
hlaupi, en hann sigraði eins og kunnugt er. — Mótið hófst laugardaginn
6. sept. kl. 4 síðd. með setningarhátíð. Fánar allra Norðurlandanna voru
bornir inn á völlinn og svo var sunginn sálmur. Krónprins Svía, Gustaf
Adolf, flutti ávarp og að því loknu hófst keppnin sjálf. — 100 metra hlaup-
ið var fyrsta greinin þennan dag. Tranberg, Noregi, var á 1. braut; Strand-
berg, Svíþjóð, ú 2. braut; Danielsson, Svíþjóð, á 3. braut; Finnbjörn á 4.
braut; Bloch, Noregi, á 5. braut, og Inge Nilsson, Svíþjóð, á 6. braut.
Finnbjörn var langfyrstur upp og hljóp síðan mjög glæsilega fyrstu 50—60
metrana og var kominn allt að því lx/j m á undan hinum keppendunum.
Á síðustu 10 metrunum tókst Strandberg hinsvegar að „pressa" sig örfáa
centimetra fram fyrri hann, en yfirleitt var hlaupið mjög jafnt og spenn-
andi síðustu metrana. XJrslit: 1. Strandberg 10,9 sek. 2. Finnbjörn 10,9
sek. 3. Nilsson 10,9 sek. 4. Tranberg 11,0 sek. 5. Bloch 11,0 sek. 6. Daniels-
son 11,1 sek. — I langstökki varð Finnbjörn 4. og stökk 7,09 m, sem var
betra en ísl. metið. 1. varð Gustaf Strand, Svíþjóð, 7,32 m. 2. Laessker,
Svíþjóð, 7,22 m. 3. Tranberg, Noregi, 7,11 m. 4. Finnbjörn 7,09 m. 5.
Simola, Finnlandi, 7,06 m. — Sunnudaginn 7. sept. hófst keppnin með
stangarstökki og Maraþonhlaupi. Sú grein, sem Islendingar biðu eítir með
74