Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 78
quist, Bloch, Strandberg og Haukur allir hlið við hlið. Þá var það sem
Haukur fór að vinna verulega á, og í markinu var hann orðinn 1 metra á
undan næsla manni. Tími Hauks var 21,9 sek., sem er nýtt íslenzkt met og
2/10 sek. betra en gamla metið, sem Finnbjörn setti í fyrra. 2. varð Tran-
berg á 22,0 sek. 3. Lundquist 22,1 sek. 4. Strandberg 22,2 sek. 5. Bloch
22,2 sek. 6. Hedin 28,5 sek. „Þegar hlaupinu var lokið ætlaði fagnaðarlát-
unum aldrei að linna, þar sem yngsti þátttakandi mótsins, hinn 18 ára
gamli Islendingur Haukur Clausen hafði sigrað óvænt og með yfirburðum",
eins og sænsku blöðin sögðu. — Mánudaginn 8. september hófst mótið kl.
7 síðd. Þetta kvöld tóku Islendingarnir aðeins þátt í iX.100 meira boð-
hlaupi. Fyrir Norðurlandaliðið híupu í þessari röð: Finnbjörn, Haukur,
Sven Fallesen, Danmörku, og Tranberg Noregi; en fyrir Svíþjóð: Daniels-
son, Inge Nilsson, Laessker og Strandberg. Finnbjörn og Haukur unnu
báðir af keppinautum sínum. En svo skeði óhappið, Fallesen, sem átti að
taka við af Hauk, fór of fljótt af stað, og varð að hægja á sér til þess
að ná í keflið. Við þetta komust Svíarnir á undan, og enda þótt Fallesen
og Tranberg gerðu sitt ítrasta, tókst þeim ekki að vinna upp bilið. Tími
Svíanna var 42,0 sek., en Norðurlandaliðsins 42,4 sek. Svíþjóð sigraði á
þessu móti með 248 stigum á móti 213, en það er heldur meiri stigamunur
en reiknað hafði verið með í fyrstu. I skiptingunni í boðhlaupinu sneri
Haukur sig á fæti, og gat ekki keppt meira það sem eftir var ferðarinnar.
6. KEPPNIN — í Shovde. — Sunnudaginn 7. sept., daginn eftir að
Norðurlandakeppnin hófst, fóru 3 I.It.-ingar, þeir Jóel Sigurðsson, Oskar
Jónsson og Reynir Sigurðsson með járnbrautarlest til borgarinnar Shovde
til þess að keppa þar. En því miður aftraði veðrið því, að ferðin heppnað-
ist sem skyldi, hvað árangur snerti, því rok var mikið þegar keppnin fór
fram. Jóel varð 2. í spjótkasti með 56,02 m og Öskar 2. í 800 metra hlaupi
á 2:02,4 mín. Reynir hljóp undanrás í iOfí metra hlaupi og komst í úrslit,
en gat ekki tekið þátt í þeim vegna járnbrautarferðarinnar til Stokkhólms.
7. KEPPNIN — í Ostersund. — Þriðjudaginn 10. sept. fóru þeir Finn-
björn, Örn Clausen og Óskar Jónsson með næturlestinni norður til borg-
arinnar Östersund til þess að keppa þar, en þar býr Anton Bolinder,
Evrópumeistari í hástökki, og var það fyrir hans tilstilli að Islendingarnir
kepptu. Veður var kalt og vindur all-sterkur. Finnbjörn vann 100 metra
hlaupið á 11,0 sek., en Örn varð 4. á 11,2 sek. — Langstökkið vann Finn-
björn á 6,92 m., en Óm varð 4. með 6,57 m. — I 800 metra hlaupinu varð
Óskar 2. á 1:57,4 mín. Fyrstur varð Hasse Liljekvist, sem nú hljóp á 1:55,6
76