Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 140
K.R., 33,8 sek. Báðir syntu vel undir fyrra metinu, 34,3 sek., sem Hörður
Jóhannesson, Æ, setti 1946. — 100 metra bringusund drengja: 1. Kristján
Þórisson, Reykd., 1:25,1 mín. 2. Þorkell Pálsson, Æ., 1:33,3 mín. 3. Guðjón
Þórarinsson, A., 1:34,8 mín. — 200 metra skriðsund karla: 1. Ari Guð-
mundsson, Æ., 2:25,9 mín. ((nýtt met). 2. Ólafur Diðriksson, Á., 2:43,0
mín. 3. Ragnar Gíslason, K.R., 2:43,2 mín. Ari bætti hið staðfesta met
Jónasar Halldórssonar um 8/10 úr sek. Að vísu synti Jónas á enn betri
tíma vestan hafs eða 2:26,0 mín., en hann hefur ekki enn verið staðfestur.
— 50 metra skriðsund drengja: 1. Helgi Jakobsson, I.R., 32,5 sek. 2. Theo-
dór Diðriksson, Á., 33,3 sek. 3. Guðjón Jónsson, Æ., 34,3 sek. — 200 metra
bringusund karla: 1. Sigurður Jónsson, H.S.Þ., 2:51,6 mín. 2. Atli Steinars-
son, Í.R., 3:10,3 mín. Fleiri kepptu ekki í þessu sundi.
Sundknaítleiksmeistaramót íslands
10. Sundknattleiksmeistaramót íslands fór fram í Sundhöll Reykjavíkur
14., 16. og 20. maí. Þátttakendur voru Ármann (A- og B-lið), K.R. og
Ægir. Einstakir leikir fóru þannig: A-lið Ármanns vann B-lið Ármanns
með 4:1. — K.R. vann Ægi með 2:1. — K.R. vann B-lið Armanns með
5:1. — A-lið Ármanns vann Ægi með 3:2. — Ægir vann B-hð Ármanns
með 2:0 og loks vann A-lið Ármanns K.R. í úrslitaleik með 6:3 eftir harð-
an og tvísýnan leik. Heildarúrslit mótsins urðu þau, að A-lið Ármanns
hlaut 6 stig og þar með nafnbótina „Sundknattleiksmeistari Islands 1947“.
K.R. var næst með 4 stig. Ægir hlaut 2 stig, en B-lið Ármanns ekkert.
Félög Árm.A K.R. Ægir Árm.B Mörk Stig
1. Ármann (A) ........ X 6—3 3—2 4—1 13— 6 6
2. K.R............... 3—6 X 2—1 5—1 10— 8 4
3. Ægir ............. 2—3 1—2 X 2—0 5— 5 2
4. Ármann (B) ..... 1—4 1—5 0—2 X 2—11 0
Bikar þann, sem um var keppt, gaf Í.S.Í. 1938 og var þetta því i 10. sinn,
sem keppt var um hann. Ármann hefur unnið hann öll árin nema 1938
og 1940, er Ægir vann hann. íslandsmeistarar Ármanns eru þessir: Og-
mundur Guðmundsson, Sigurður Ámason, Magnús Kristjánsson, Stefán
Jónsson, Gísli Jónsson, Einar Hjartarson og Sigurjón Guðjónsson.
138