Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Síða 166
Gunnlaugi og Sveini. Fegurðarglímuverðlaunin hlaut Rögnvaldur-Gunn-
laugsson.
III. FLOKKUR (undir 75 kg.): 1. Sigurður Hallbjörnsson, A., ö vinn.
2. Olafur Jónsson, K.R., 4 vinn. 3. Ingólfur Guðnason, A., 3 vinn. 4. Aðal-
steinn Eiríksson, K.R., 2 vinn. 5. Sigurður I. Sigurðsson, Hvöt, 1 vinn.
6. Ilelgi Jónsson, K.R., 0 vinn. 7. keppandinn, Andrés Sighvatsson, U.M.
F.R., hætti vegna lasleika. Sigurður Hallbjörnsson hlaut einnig fegurðar-
gllmuverðlaunin í þessutn flokki. — Forseti Í.S.Í., Ben. G. Waage, afhenti
sigurvegurunum verðlaunin.
Innaníélagsglíma K.R.
Innanfélagsglíma K.R. fór fram 2. maí. Þátttakendur voru 13 og var
keppt í 2 þyngdarflokkum, I. og II. flokki. Ilelztu úrslit urðu þessi:
I. FLOKKUR: 1. Friðrik Guðmundsson. 2. Guðmundur J. Guðmunds-
son. 3. Agúst Steindórsson. Friðrik vann þar með „K.R.-hornið“ í 3ja sinn
svo og tignina „Glímukappi K.R.“. Hann hlaut einnig silfurbikar fyrir
fagra glímu.
II. FLOKKUR: 1. Aðalsteinn Eiríksson. 2. Ólafur Jónsson. 3. Einar
Markússon. Aðalsteinn vann nú „Jóhanns-hornið" í fyrsta sinn og enn-
fremur hlaut hann fegurðarglímuverðlaunin í þessum flokki.
Glímukeppnin úti á landi 1947
37. Islandsglíman
Íslandsglíman, hin 37. í röðinni, var háð í Haukadal í Biskupstungum
15. júní, og er það í fyrsta skipti, sem hún er háð austan fjalls.
Hafði I.S.I. ákveðið henni þenna stað í tilefni þess, að íþróttaskóli
Sigurðar Greipssonar átti þá 20 ára afmæli og jafnframt hafði Sigurður
Greipsson verið sambandsstjóri Héraðssambandsins Skarphéðins í 25 ár.
En Sigurður hefur, sem kunnugt er, átt drjúgan þátt í vexti glímunnar.
Munu flestallir glímukappar síðari ára hafa verið nemendur hans, auk
þess sem enginn hefur unnið Grettisbeltið oftar í röð en hann, eða 5 sinnum-
Þátttakendur voru 8 frá 3 félögum. Urslit urðu þau, að Guðmundur
Agústsson, Armanni, vann glímuna og er það í fimmta skipti í röð, sem
hann vinnur glímukappatignina. Auk þess hlaut Guðmundur fagran silfur-
skjöld til fullrar eignar. Er ætlunin að hver nýr glímukappi íslands fái
framvegis slíkan skjöld til fullrar eignar. Annars urðu úrslit sem hér segir:
1. Guðmundur Agústsson, A., 7 vinn. 2. Guðmundur Guðmundsson, A.,
164