Bjallan - 01.11.1943, Síða 3
Samviniiaii
og atvinnuvegimir
Á nokkrum undanfarandi áratugum hefur
samvinnan rutt þungum björgum úr vegi, er
staðið hafa í braut framfara og þróunar. Flest-
um landsmönnum, sem nokkuð hugsa og sjá,
er orðið kunnugt um hið mikla og óeigingjama
starf, er íslenzkir samvinnumenn hafa innt af
hendi, í þágu lands og þjóðar. Þeirra starf
hefur orðið mest í þágu verzlunarmála landsins
og hefur gjörbreytt verzlunarháttum þess,
svo hagsæld og velmegun íbúanna hefur tekið
óvenju breytingum, þótt ekki sé lengri tími lið-
inn frá því að samvinnufélögin tóku til starfa.
Samvinnan hefur einnig haft mikil áhrif á
framgang ýmissa menningar- og félagsmála, er
til heilla hafa horft. Flest samvinnufélög hafa
verið einskorðuð við vörusöluna, þótt meiri fjöl-
breytni í starfsháttum hafi átt sér stað, hjá
einstaka félögum, sem stærri og fjársterkari
voru, og meiri reynslu höfðu aflað í starfs-
rekstri sínum.
verið annað en óþolinmóður áhorfandi að þeim
átökum, sem hefjast vonandi strax um að sam-
eina þjóðina. Nútðarhlutverk hennar er að
horfa á og nema, en framtíðarhlutverk hennar
er annað og meira. í framtíðinni bíður hennar
það glæsta hlutverk, að útfæra samvinnustefn-
una sem þjóðskipulagsform, og stjórna á grund-
velli þess. Hvort hún verður þess megnug bygg-
ist á því, hvort hún skynjar hlutverk sitt og
nennir að búa sig undir að gegna því. En verði
hún þess megnug, þá spái ég því, að þetta litla
land með sína fámennu þjóð, og litauðugu sögu
eigi eftir að sjá bjarta tíma. Ef þfóðskipulagið
verður byggt á grundvelli samvinnustefnunnar,
þá verður hér „gróandi þjóðlíf með þverrandi
tár“. í staðinn fyrir eymd og fátcekt kemur vel-
megun og ánœgja, í staðinn fyrir fjandskap og
taumlausa sundurþykkju kemur eindrœgni og
sameiginlegir hagsmunir, sem binda þjóðina
saman, en bægja sundrunginni á burtu um
„eilífðar ár“.
Þróunin hiýtur því að verða sú, að eftir því
sem félögin verða reyndari og fjársterkari
leiti þau inn á fleiri athafnasvið og geri þar
með starfsemi sína fjölbreyttari. Þau færa smátt
og smátt út athafnasvæði sitt eftir því sem
leynslan kennir þeim að félagsmenn telja að
hyggilegt sé. Eitt af framtíðarmálum S. í. S.
er að eignast skip, er gæti tekið að sér alla flutn-
inga til og frá landinu fyrir íslenzku kaup-
félögin. Er þetta gott og gagnlegt mál, sem
þyrfti að komast í framkvæmd sem fyrst, til
nauðsynlegrar endurnýjunar verzlunarflotans.
Því takmarkið er sem flest ný og góð skip, sem
beri íslenzka fánann um höfin.
Flest rök benda í þá átt, að félagshyggja ís-
lendinga fari vaxandi i framtíðinni og að sama
skapi muni einstaklingshyggjan minnka.
íslendingum er það bráð nauðsyn að svo fari,
svo að landsbúar geti sameinaðir staðið fyrir
framgangi ýmissa nytjamála er glæði athafna-
líf landsins. Samvinnan hefur lagt leið sína til
sjávarþorpanna og kauptúnanna. Sjómenn og
aðrir íbúar þeirra verða æ fleiri sem fylkja sér
í samvinnufélögin. í því sambandi hljóta þeir
að fara að hafa meiri áhrif á rekstur þeirra í
framtíðinni. Raunin hlýtur því að verða sú, er
tímar líða, að samvinnufélögin beita sér meir
fyrir útvegi, en þau hafa gert. Starfsemi nokk-
urra þeirra í þessa átt, er þegar hafin og má í
þessu sambandi minna á hina myndarlegu og
góðu báta samvinnuútgerðarinnar á ísafirði, sem
eru ein aðalundirstaðan undir atvinnulífi kaup-
staðarins og tryggt hafa fjölmörgum góða lífs-
afkomu. K. E. A., forystufélag samvinnufélag-
anna, hefur hafið vísi að fiskiðnaði með síld-
ina sem hráefni auk hraðfrystingar og áður
fyrr þurkun fiskjar. Eins og má sjá, er hér
um viðleitni að ræða, til að auka verðmæti
sjávarafurða. Hér er um mikilsverða tilraun að
ræða, sem landsbúum ber að gefa gaum að, því
að sjórinn er framtíðin fyrir mikinn hluta
landsbúa og viðgang landsins.
í framtíðinni, þegar samvinnufélögin fara að
hefja útgerð fyrir alvöru, eru sjómennirnir hið
skapandi afl, er munu moka auðæfunum úr
djúpi Ægis, öllum landsins börnum til hagsældar
og blessunar. Það er því nauðsynlegt að hafizt
sé handa um að tryggja og undirbúa fram-
gang sjávarútvegsins. Skref í þessa átt hefur
verið stigið með byggingu skipasmiðastöðvar
K. E. A. á Akureyri, sem nú sendir frá sér hvern
bátinn öðrum betri og fallegri. Með sameiginlegu
afli fórnfúsra manna verður að tryggja fram-
gang og þróun tekjumestu atvinnugreinar lands-
ins, sem er undirstaðan undir hinni efnalegu
velmegun.
Sameinaðir skulum við standa til tryggingar
framtíðarmenningunni og hinu algera fullveldi.
BJALLAN 3