Austurland - 21.02.2019, Page 4

Austurland - 21.02.2019, Page 4
4 21. febrúar 2019 Fylgifiskur góðs atvinnu- ástands eru ófaglærðir fúskarar sem ber að varast Svört atvinnustarfsemi er því miður stunduð í einhverju mæli hérlendis þrátt fyrir viðleitni til að sporna við henni, m.a. af Samiðn, sambandi iðnfélaga. Verktakar og undirverktakar hafa verið að ráða erlent vinnuafl til sín, m.a. við virkjanaframkvæmdir, og í einhverjum tilfellum hefur þessum starfsmönnum ekki verið greidd lágmarkslaun, sem auðvitað á ekki að þekkjast. Vinnumálastofnun heyrir undir velferðarráðherra og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu. Er sú stofnun að standa sig? Það er svo annað mál að verðskrár fyrir útselda vinnu iðnarmanna eða iðnverktaka fer stundum upp úr öllu valdi, oft í ljósi þess að það vantar sárlega iðnaðarmenn og þess vegna er reynt að hagnast á ástandinu. Allt verðlag á vörum og þjónustu hefur almennt þotið upp hér undanfarin misseri og virðist í mörgum tilfellum miðast við kaupgetu betur stæðra erlendra ferðamanna, en kaupgeta Íslendinga hefur í sáralitlu mæli fylgt þeirri þróun eftir. Kannski er þessi staðreynd hluti af skýringunni. Bið eftir iðnaðarmönnum, sérstaklega til smærri verka eða til viðhalds, t.d. íbúðarhúsa, er stundum löng, dæmi eru um tvö ár, jafnvel lengur. Fjöldi iðnaðarmanna fór erlendis eftir efnahagshrunið í lok árs 2008, flestir til Noregs, en vegna hæfilegs vinnuálags þar í landi, atvinnuöryggis og góðra launa hafa margir þeirra sem þangað fóru ekki snúið til baka nema að mjög takmörkuðu leiti, því miður. Einnig má veltavöngum yfir því hvort stóriðja er orðin dragbítur á smærri iðnaðarstarfsemi. Íslenskt samfélag í dag er óhugsandi án þess að hér séu innviðir í flugvöllum, vegum, höfnum, fráveitum, hitaveitum, vatnsveitum, úrgangsmálum, orkumálum og orkuflutningum ásamt fasteignum ríkis og sveitarfélaga sem m.a. telja skóla og sjúkrahús. Í allflestum tilfellum er starfsfólk þessara stofnana á launaskrá og á mjög óhægt um vik að telja ekki sín laun fram til skatts, og auðvitað er það kostur. Evrópusambandið hefur komið á fót sameiginlegum vettvangi samtaka launafólks og atvinnurekenda auk stjórnvalda sem ætlað er að vinna sameiginlega bug á svartri vinnu innan og á milli ríkja Evrópu. Þessum aðilum er ætlað að forma baráttuna gegn svartri vinnu í Evrópu og koma með raunhæfa áætlun um hvaða leiðir skila bestum árangri. Samtök evrópskra stéttarfélga hafa lagt á það áherslu að komið verði á fót formlegum eftirlitsaðilum, e.k. vinnustaðaeftirliti líkt og stéttarfélögin hér á landi hafa staðið fyrir, sem fá fjármagn og mannafla til að fylgja eftir að lögum og reglum á evrópskum vinnumarkaði sé fylgt. Að mati félaganna myndi slíkt vinnustaðaeftirlit fljótt skila til baka, ekki einungis bættum aðbúnaði og kjörum launafólks, heldur einnig þeim fjármunum sem settir yrðu í verkefnið. Stéttarfélögin telja ekkert því til fyrirstöðu að vinnustaðaeftirlit sem þetta verði komið á laggirnar sem allra fyrst og Evrópusambandið hafi forystu þar um. Nú þegar efnahagslíf landsmanna er á góðri siglingu, margir segja að ástandið sé svipað og árið 2007, þ.e. ári fyrir efnahagshrunið, hagvöxtur betri en væntingar stóðu til, atvinnuleysi mælist eingöngu 2% og framkvæmdir víða bæði hjá fyrirtækjum og heimilum fer að bera á skorti á fagfólki í iðnaði. Fylgifiskar þessa góða atvinnuástands eru fúskarar sem taka að sér verkefni án þess að hafa til þess tilskilin réttindi og hafa ekki lært neitt til verka. Það er heilmikil áhætta sem fylgir því að fá fúskara til starfa og því mikilvægt að þeir sem fengnir eru til starfa séu með tilskilin réttindi og löggildingu. Fúsk getur reynst dýrkeypt og valdið ómældum skaða. Að fá meistara og fagfólk með tilskilin réttindi til starfa er ákveðin trygging fyrir gæðum og réttum vinnubrögðum auk þess trygging fyrir bótum ef verkiðer ekki unnið sem skyldi. Undir þessi orð skal hér tekið undir heilshugar. Geir A. Guðsteinsson ritstjóri LEIÐARI 2. tölublað 8. árgangur Útgefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54 , 103 Rvk. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang, amundi@fotspor.is. Auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Geir Guðsteinsson, geirgudsteinsson@simnet.is s. 840955 Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is. Fríblaðinu er dreift í 5.500 eintökum á öll heimili og fyrirtæki á Austurlandi. Landssamband bakarameistara efndi nýlega til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin var haldin í samstarfi við Ölgerðina og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi bitter marsipan og appelsínutröffel frá Odense. Sigurkakan hlýtur nafnbótina „Kaka ársins 2019“ og er höfundur hennar Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari og eigandi Bernhöftsbakarís. Mennta­ og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, tók á móti fyrstu Köku ársins. Sala á kökunni hófst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt land miðvikudaginn 20. febrúar sl. og verður til sölu það sem eftir er ársins. KAKA ÁRSINS SELD UM ALLT LAND Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Jóhannes Felixson, formaður Landssambands bakarameistara, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari og eigandi Bernhöftsbakarís, og Gunnar Örn Gunnarsson hjá Ölgerðinni.Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, tók á móti fyrstu Köku ársins í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í morgun. Magnús Gíslason alþingismaður frá Eydölum í Breiðdal Margir eftar tektar verðir ein staklingar hafa setið áAlþingi fyrir Aust firðinga. Einn þeirra er Magnús Gísla son var fæddur 1. nóv. 1884 í Ey dölum í Breið dal. For eldrar hans voru Gísli síðast bóndi og póst af greiðslu maður á Búðum við Fá skrúðs fjörð Högna­ son bónda á Skriðu í Breið dal Gunn­ laugs sonar og kona hans Þor björg Magnús dóttir síðast prests í Ey dölum Bergs sonar. Hann lauk stúdents prófi við Mennta skólann í Reykja vík árið 1906 og lög fræði prófi frá há skólanum í Kaup manna höfn árið 1912. Hann stundaði mála flutnings störf í Reykja­ vík 1913–1916, var settur sýslu maður í Suður­Múla sýslu 1917–1918 og í Ar nes sýslu 1919. Að stoðar maður í fjár mála ráðu neytingu varð hann 1918 og full trúi þar 1920. Á árunum 1920–1921 var hann full trúi hjá bæjar fógetanum í Reykja vík. Hann var skipaður sýslu maður í Suður­ Múla sýslu á árinu 1921 og gegndi því em bætti til miðs árs 1939, er hann var skipaður skrif stofu stjóri í fjmrn. Því em bætti gegndi hann fram á árið 1952, þegar honum var veitt lausn sökum aldurs. Einn af stofn endum Skóg­ ræktar fé lags Austur lands Magnúsi Gísla syni voru jafn framt aðal starfi falin ýmis trúnaðar störf. Hann átti sæti á Al þingi á árunum 1939 ­ 1942 sem lands kjörinn al­ þingis maður Suður­Múla sýslu fyrir Sjálf stæðis flokkinn, sat á sex þingum alls. Í yfir fast eigna mats nefnd var hann frá 1919 til 1921. Hann var skipaður for maður mþn. í launa málum 1943, for maður nefndar sam kv. 46. gr.launa­ laganna 1946, skipaður í nefnd til að endur skoða launa lög 1949 og í nefnd til að endur skoða lög um toll skrá 1953. Hann var í yfir skatta nefnd Reykja­ víkur 1940–1962 og í happ drættis ráði Há skóla Ís lands 1945–1962. Hann var meðal stofn enda togara fé lagsins Kára 1918 og í stjórn þess til 1931 og einn af stofn endum Skóg ræktar fé lags Austur­ lands 1935 og í stjórn þess til 1939. Magnús Gísla son var far sæll og dug mikill em bættis maður. Hann var rétt sýnn dómari og frið samur valds­ maður, leysti fús lega vanda þeirra, sem til hans leituðu, og naut vin sælda í sýslu sinni. Hann gegndi eril sömum störfum skrif stofu stjóra fjár mála ráðu­ neytisins á miklum um brota tímum, árum heims styrj aldar og ó stöðug leika í fjár málum. Þau störf leysti hann vel af hendi sem önnur, var gætinn og sam vizku samur, starfs fús og ráð­ hollur. Hann var sann gjarn og nær­ gætinn við það starfs fólk, sem hann átti yfir að ráða, og því fannst gott að starfa undir stjórn hans.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.