Suðri - 04.07.2019, Síða 10
10 4. júlí 2019
EXPLORE WITHOUT LIMITS
NÝ VEFVERSLUN!
Búnaður fyrir jeppann og ferðalagið.
Arctic Trucks
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
sími 540 4900
info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.isEXPLORE WITHOUT LIMITS
®
www.arctictrucks.is
Kíktu á vöruúrvalið!
Enginn sendingarkostnaður
ef verslað er fyrir 5.000
krónur eða meira!
Íþróttamaður ársins
í Rangárþingi ytra
Þann 17. júní síðastliðinn voru
tilkynnt úrslit um íþróttamann
ársins 2018 í Rangárþingi
eystra. Fjórir einstaklingar voru
tilnefndir af íþróttafélögunum á
svæðinu og var það svo í höndum
Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar
að velja úr þeim hópi. Íþróttamaðurinn
skal vera 15 ára eða eldri og hafa
stundað íþrótt sína með íþróttafélagi
í sveitarfélaginu eða vera með
lögheimili þar.
Þau fjögur sem hlutu
tilnefningu voru:
Andri Már Óskarsson - Golf
Andri Már er einn af bestu
kylfingum landsins, hann hefur
stundað golf frá unga aldri og hefur
náð góðum árangi, hann æfir og
spilar mikið, hann kemur vel fyrir er
yfirvegaður og kurteis, hvort heldur sé
á golfvellinum eða í hinu daglega lífi.
Birta Sigurborg Úlfarsdóttir -
frjálsar íþróttir
Birta Sigurborg er mjög efnilegur
íþróttamaður og stóð sig mjög vel í
frjálsum íþróttum í sínum aldurshópi
árið 2018. Hún æfir frjálsar íþróttir
bæði á Hvolsvelli og á Selfossi og
keppir fyrir Dímon og HSK. Hún
bætir sinn persónulega árangur jafnt
og þétt. Birta lenti yfirleitt á palli í
þeim hlaupum sem hún tók þátt í á
síðasta ári.
Elvar Þormarsson - Hesta
íþróttir
Var í úrslitum á nánast öllum
mótum sem hann tók þátt í þar
með talið Íslandsmóti fullorðna og
einni á Landsmótinu sem haldið var
í Reykjavík. Var einnig meðal þeirra
hröðustu í skeiðgreinum á árinu 2018.
Þormar Elvarsson - Knattspyrna
Þormar hefur þótt skara fram úr í
hópi íþróttamanna sem æft hefur með
KFR. Hann er jákvæð fyrirmynd hvað
varðar metnað og þrautseigju í að bæta
sig og efla á knattspyrnuvellinum.
Hann hefur ávalt stundað æfingar
sínar af kappi, hvort sem ér á eigin
vegum eða síns félags. Hann er
einstaklega fjölhæfur leikmaður og
vinnusamur. Auk þess sem hann
er hvetjandi og jákvæður leiðtogi.
Þormar leikur nú knattspyrnu á
Selfossi og var, árið 2018, valinn bæði
bestur og efnilegastur í 2. flokki karla.
Íþróttamaður ársins 2018 var
valinn Elvar Þormarsson.
Á myndunum eru þau fjögur sem
tilnefnd annarsvegar og þeir feðgar
Þormar og Elvar eftir að úrslit voru
tilkynnt hinsvegar.
www.hvolsvollur.is
Tilbúin til afhendingar og utnings
VILTU AUGLÝSA Í SUÐRA?
AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190