Suðri - 05.12.2019, Qupperneq 2
2 5. desember 2019
Í nóvember kom út fyrsti diskur
Vörðukórsins á 25 ára ferli hans.
Upptökur á lögunum hófust
í mars og lauk síðastliðið vor. Á
geisladiskinum er að finna 17 lög og
hélt kórinn fjölsótta útgáfutónleika
23. nóvember síðastliðinn.
Útgáfutónleikar Vörðukórsins í
Skálholtsdómkirkju voru fjölsóttir og
flutti kórinn falleg kórlög af nýjum
geisladiski sínum, Bara að hann hangi
þurr, en auk þess tvö ný lög og ljóð
undir stjórn Eyrúnar Jónsdóttur við
„Bara að hann hangi þurr“
-fyrsti geisladiskur Vörðukórsins kominn út
undirleik Arnhildar Valgarðsdóttur á
píanó og orgel.
Nýju kórlögin voru Það er
Íslandið allt eftir Stefán Þorleifsson
við ljóð Möggu S. Brynjólfsdóttur
og lagið Heimferð eftir Möggu S.
Brynjólfsdóttur í útsetningu Stefáns
Þorleifssonar en Magga, sem er einn
af kórfélögunum, átti einnig ljóð við
lag Billy Joel, Ég mun aldrei fara frá
þér.
Á diskinum er einkar fjölbreytt
úrval laga úr ýmsum áttum. Til
dæmis er á honum lag Valgeirs
Guðjónssonar, Kveiktu á ljósi og
Skýin eftir Spilverk þjóðanna.
Yfirskriftin á tónleiknum og
diskinum er úr söngtexta Ómars
Ragnarssonar. Kórinn er fjölmennur
og Skálholtsdómkirkja var bæði þétt
setin og ómaði öll við þennan fallega
söng og kynningar á léttum nótum á
hverju verki.
Eitt helsta einkunnarlag kórsins,
Húmljóð, er við lag og ljóð Lofts
S. Loftssonar, og var það fyrsta og
síðasta lagið sem kórinn söng á
tónleiknum. Þá orti einn kórfélaga,
Sigurður Loftsson, ljóð við lag Franz
Schubert, Þú fagra list. Kórinn naut
sín vel í þeim góða hljómburði sem
dómkirkjan okkar býr yfir.
Kórfélagar sjá sjálfir um að selja
diskinn og frekari upplýsingar eru á
facebook/vordukorinn
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Marg i t l augu
Umgjörð og gler