Suðri - 05.12.2019, Page 4

Suðri - 05.12.2019, Page 4
4 5. desember 2019 11. tölublað, 5. árgangur Útgefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54 , 103 Rvk. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang, amundi@fotspor.is. Auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: amundi@fotspor.is. Ritstjóri: Björgvin G. Sigurðsson, sími: 863-5518 netfang: sudri.heradsblad@gmail.com Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is. Fríblaðinu er dreift í 10.500 eintökum á öll heimili á Suðurlandi. Það gefur á bátinn Kvótakerfið í sjávarútvegi var fest í lög fyrir 36 árum síðan og hefur haft mikil áhrif á byggðaþróun í landinu. Frjálst framsal aflaheimilda varð síðan til þess að áður óþekkt auðæfi urðu til við kaup og sölu á heimildum til sjósóknar í sameiginlega auðlind landsmanna. Allan þennan tíma hefur verið hart deild um kvótakerfið. Flestum er ljóst að takmarka þurfti sókn á miðin og vernda fiskistofna sem áttu sannarlega undir högg að sækja. Rányrkja síldaráranna mátti ekki endurtaka sig og hefta þurfti sóknina. Fleiri leiðir koma til greina við að stjórna fiskveiðum. Til að mynda sóknardagar líkt og brúkaðir eru í Færeyjum. Kjarni málsins og deilunnar um kerfið hefur hinsvegar hverfst um kaup og sölu aflaheimilda. Þar er að finna rætur óréttlætis og átaka um auðlindina. Sú staðreynd að eigendur útgerðar, handhafar kvótans, í hvaða byggð sem er á landinu geti ákveðið að selja heimildirnar í burtu og þar með kollvarpað byggðinni er kolsvarti bletturinn á kerfinu, ekki stýringin sem slík. Þessi þróun átti sér stað við Suðurströndina sem nú er nánast kvótalaus allt til Hornafjarðar. Mestu skiptir að festa það í stjórnarskrá að þjóðin eigi auðlindina, að nýting hennar sé tímabundin og háð sanngjörnu gjaldi. Það skapar þjóðinni vissu um eign sína og hvernig má fara með hana. LEIÐARI VILTU AUGLÝSA Í SUÐRA? AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190 „Guggan, eða Guðbjörg ÍS, var hvorki gul né gerð út frá Ísafirði þegar frá leið sölu á henni á sínum tíma til Samherja á Akureyri, þrátt fyrir loforð og munnlegt samkomulag um að svo yrði. Útgerð Guðbjargar rann inn í Samherja 1997 og tveimur árum síðar var saga hennar vestra öll og hún seld til dótturfélags Samherja í Þýskalandi. „Þegar hátíð fer í hönd búa menn sig undir hana hver á sína vísu.“ Á þessum orðum hefst sagan Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson sem margir hafa fyrir reglu að lesa á aðventu og má hiklaust mæla með slíkum lestri, að draga sig út úr skarkalanum sem fylgir desembermánuði og setjast niður í kyrrð með góða bók. Aðventan snýst nefnilega í grunninn um að bíða og undirbúa.  Bíða eftir hátíðinni sem kemur og Jesúbarninu sem kemur og hafa allt til reiðu sem tilheyrir hátíðinni. Við þurfum óhjákvæmilega stundum að bíða í lífinu. Í nútímasamfélagi er hins vegar ekki alltaf mikil þolinmæði eða biðlund. Við erum orðin vön því að allt gerist á ógnarhraða og viljum vera sjálf við stjórnvölinn. Við getum ekki alltaf stjórnað því þegar við þurfum að bíða. Við getum nefnilega ekki stjórnað öllum aðstæðum lífsins. Veðrinu, tímanum, fólkinu í kringum okkur. Við getum hins vegar haft stjórn á því hvernig við mætum aðstæðunum. Hvernig við mætum biðinni.  Aðventan og biðin heyra saman.  Við bíðum á aðventunni.  Mikið.  Dygð aðventunnar er að bíða ekki í óþolinmæði heldur eftirvæntingu og von. Leyfa okkur að hvíla í aðstæðunum hverju sinni og upplifa gæðin sem felast í þeim. Þessa dagana er ég að kynna mér bók sem heitir „Ekki gera neitt – jólin eru að koma!“ og er á formi aðventudagatals. Þar er fjallað um það hvort og þá hvernig við getum farið að nálgast jólin eins og við séum að heyra af þeim í fyrsta sinn, eins og jólin væru að koma í fyrsta sinn. Þar kynnumst við t.d. Maríu, hinni sterku og hugrökku ungu konu sem fékk þetta óvenjulega hlutverk að fæða son Guðs í heiminn, Jósep, unga manninum sem lenti í þessum flóknu aðstæðum með unnustu sinni og öllum hinum persónum jólasögunnar sem okkur finnst við flest þekkja. En í bókinni segir biskupinn sem skrifaði hana, Stephen Cottrell: „Það hlýtur að vera hægt að halda jólin öðruvísi en við gerum núna, að halda þau þannig að gleðin og fyrirheitin sem þau standa fyrir hjálpi til við að gera lífið okkar heilt aftur“.  Markmiðið er að fá okkur til að hugsa öðruvísi um dagana fyrir jól en við erum kannski vön. Inntakið er hvatning til að staldra við, hætta „Aðventan snýst nefnilega í grunninn um að bíða og undirbúa.  Bíða eftir hátíðinni sem kemur og Jesúbarninu sem kemur og hafa allt til reiðu sem tilheyrir hátíðinni.  Við þurfum óhjákvæmilega stundum að bíða í lífinu. Í nútímasamfélagi er hins vegar ekki alltaf mikil þolinmæði eða biðlund. Við erum orðin vön því að allt gerist á ógnarhraða og viljum vera sjálf við stjórnvölinn. Ninna Sif Svavarsdóttir, sóknarprestur í Hveragerði skrifar jólahugvekju Suðra: að eyða um efni fram, vera heiðarleg um það sem okkur vantar í líf okkar.  Hugsa sem svo: ef jólin væru að koma í fyrsta sinn, hvernig vildum við halda þau? Staðreyndin er sú að aðventan getur verið erfiður tími. Með mörgum okkar búa e.t.v. sárar minningar og sorg, við finnum væntingar okkar sjálfra og þeirra sem eru hluti af lífi okkar. Við finnum þrýstinginn sem er á okkur öllum um að mæta þessum væntingum. Það er ekki alltaf hjálplegt og styðjandi.  Áskorunin okkar er að snúa þessu svo það sé okkur sjálfum í hag. Snúa því mennskunni í hag, því viðkvæma, brothætta og dýrmæta í hag. Því andspænis öllu dótinu, hávaðanum, kapphlaupunum og neyslunni standa tvö börn: litla barnið í okkur sjálfum og barnið í Betlehem. Sambandið milli þeirra kærleikurinn sjálfur, kærleikur Guðs til mannanna, kærleikur sem þú átt skuldlausan og alveg skilið.  Um þetta snúast jólin.  Ninna Sif Svavarsdóttir, sóknarprestur í Hveragerði. GUÐBJÖRGIN ÍS VIÐ VEIÐAR. Í kjölfar Samherjaskjalanna og ásakana um mútugreiðslur fyrir veiðiheimildir í Namibíu gefur hressilega á bátinn hjá útgerðinni í landinu. Stór hluti almennings krefst breytinga á kerfi sem hefur alið af sér ofsagróða og spillingu. Mikilvægustu breytingarnar snúa annarsvegar að eignarhaldinu og hins vegar að nýtingu og gjaldtöku fyrir hana. Þá þarf að leita leiða til að hefta framsal sem hefur í för með sér að stoðum sé kippt undan heilu byggðalagi við sölu. Guggan, eða Guðbjörg ÍS, var hvorki gul né gerð út frá Ísafirði þegar frá leið sölu á henni á sínum tíma til Samherja á Akureyri, þrátt fyrir loforð og munnlegt samkomulag um að svo yrði. Útgerð Guðbjargar rann inn í Samherja 1997 og tveimur árum síðar var saga hennar vestra öll og hún seld til dótturfélags Samherja í Þýskalandi. Svipaðar sögur má segja frá öðrum stöðum þar sem allt vald um örlög byggðar eru í höndum útgerðar sem í skjóli veiðireynslu fengu heimildirnar á sínum tíma. Hlutdeild í þeim fengu hinsvegar hvorki fiskverkafólkið né sjómennirnir þrátt fyrir þeirra þátt í veiðum og vinnslu. Leita þarf leiða til að koma á réttlæti í útgerð og vinnslu þannig að þokkaleg sátt sé um fyrirkomulag fiskveiða. Þar skiptir auðlindaákvæði í stjórnarskrá mestu og höft á framsali heimilda. Björgvin G. Sigurðsson. Steinunn SF-10, nýr togbátur í skipastól Skinneyjar-Þinganess, kom til Hafnar í Hornafirði 27. nóvember síðastliðinn. Skipið er smíðað í skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi.  Fjölmenni tók á móti skipinu og á eftir bauðst fólki að koma um borð og skoða hið nýja og glæsilega skip Skinneyjar- Þinganess hf. Steinunn er sjötta skipið er kemur til landsins í 7 skipa raðsmíða verkefni og er þá eitt skip ókomið til landsins en það er Þinganes sem áætlað er að komi til Hornafjarðar 21. desember.  Steinunn nýja komin til Hafnar Steinunn er 29 metra langt og 12 metra breitt togveiðiskip. Íbúðir eru fyrir 13 manns og lestin tekur 80 tonn af fiski. Skipstjóri er Erling Erlingsson og yfirvélstjóri Þorgils Snorrason.

x

Suðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.