Suðri - 05.12.2019, Page 6
6 5. desember 2019
Bókhlaða Gunnars Guðmunds-
sonar frá Heiðarbrún hefur
gefið út bókina Leitin að
Njáluhöfundi. Gunnar þekkja
margir því hann var um langt árabil
veiðivörður í Veiðivötnum og árið
2017 gaf bókhlaðan út 2ja binda
verk, Veiðvötn á Landmannaafrétti,
efnismikilar og fróðlegar bækur
með skemmtilegu myndefni.
Gunnar sem Njálusérfræðingur
birtist í sjónvarpsþáttunum „Á tali
hjá Hemma Gunn“ um svipað leiti
og bjórinn var leyfður á Íslandi. Þar
reyndi sá snjalli sjónvarpsmaður
Hemmi að reka Gunnar á gat með
spurningum úr Njálu. Gunnar stóðst
þetta próf með sóma og svaraði öllum
spurningum kórrétt.
Hér er á ferðinni afar fróðleg
bók, þar sem Gunnar gerir tilraun
til þess að finna hvaða maður ritaði
Njálu, eða a.m.k þrengja hringinn
um líklegan höfund. Í inngangi biður
Gunnar lesendur „að hafa í huga,
að meginefni bókarinnar er byggt á
athugunum hans, hugleiðingum og
meginröksemdafærslur eru hans“.
Fyrri hluti bókar Gunnars
segir frá Njálu, tilurð hennar, um
„Niðurstaða Gunnars er að
Njáluhöfundur er í miklum
tengslum við Þvottá í Álftafirði,
fólkið á Keldum á Rangárvöllum og
í þriðja lagi er kunnugleiki hans í
Vestur- Skaftafelssýslu slíkur að sá
kunnugleiki byggist ekki á nokkrum
ferðum, heldur hlýtur eitthvað meira
að koma til. Getum við fundið mann
sem sameinar þetta þrennt?“
Leitin að Njáluhöfundi
hugsanagang og þekkingarbakgrunn
höfundar og svo lífsskoðanir. Í seinni
hluta eru teknar fyrir 14 kenningar
og tilgátur um Njáluhöfund, t.d.
Helga Hannessonar, Benediks
Gíslasonar frá Hofteigi og Árna sonar
hans, Einars Ól. Sveinssonar, Tryggva
Þórhallssonar, Þórðar Tómassonar
og svo Matthíasar Johannessen og
Einars Kárasonar svo nokkrir séu
nefndir.
Gunnar hefur þann hátt á að kryfja
hverja tilgátu fyrir sig, greinir hvað er
rétt, hvað er ólíklegt og hvað er líklegt.
T.d. segir Einar Kárason að „verk eins
og Njála er skrifuð af þrautþjálfuðu
stórskáldi. Það er skrýtið, að
þegar menn giska á höfunda
fornritanna, þá er oftast leitað í
smiðju viðvaninga... Fullsannað
þykir að Njála hafi ekki verið skrifuð
fyrr en nálægt 1280 og hinn mikli
rithöfundur þess tímaskeiðs er Sturla
Þórðarson.“
Bókinni vindur fram með
skemmtilegum og áhugaverðum
hætti. Vitaskuld líkur leitinni að
höfundi Njálu aldrei en það færir
okkur nær uppruna og rótum
þessa mikla meistaraverks að beita
kenningum fræðanna til þess að leita
hans. Engin bók hefur haft viðlíka
áhrif á mótun og menningu landsins
en sagan af vináttu, vonbrigðum,
svikum og morðbrennunni miklu.
Bók Gunnars um leitina að
höfundi hennar færir okkur enn
nær skilningi á verkinu og um leið
þjóðarkjarnarnum.
Niðurstaða Gunnars er að
Njáluhöfundur er í miklum
tengslum við Þvottá í Álftafirði,
fólkið á Keldum á Rangárvöllum og
í þriðja lagi er kunnugleiki hans í
Vestur- Skaftafelssýslu slíkur að sá
kunnugleiki byggist ekki á nokkrum
ferðum, heldur hlýtur eitthvað
meira að koma til. Getum við fundið
mann sem sameinar þetta þrennt?
er spurningin sem Gunnar varpar
fram til lesenda eftir að hafa beitt
sagnfræðilegum rökum.
Hér er vel heppnuð bók sem allt
áhugafólk um Njálu mun hafa bæði
gagn og gaman af. Kannski munu
þeir Gunnar, Einar Kárason og
jafnvel Matthías Johannessen hittast
á málþingi um höfund Njálu?
Kristinn M. Bárðarson, barnakennari.
Að vera í þjóðleið hefur ávallt
þótt eftirsóknarvert á Íslandi.
Oft hefur verið haft á orði að
vegurinn sé lífæð hverrar byggðar.
Þannig var það á árum áður og
þannig er það í dag. Í Hveragerði
hefur Suðurlandsvegur ávallt
verið nátengdur bæjarfélaginu og
byggðinni sem hér er. Kannski ekki
að undra þar sem í Hveragerði má
sjá fjórar kynslóðir Suðurlandsvegar
á tiltölulega litlu svæði. Hér hefur
þjóðleiðin milli Suðurlands og
höfuðstaðarins verið um aldir. Fyrst
um ævagamla þjóðleið sem enn má
sjá móta fyrir, síðan var lögð hér hin
svokallaða Eiríksbrú 1880, þá vegur
sem kenndur er við gömlu Kambana
og var í notkun frá 1894 – 1972 þegar
núverandi vegur var síðan lagður.
Langþráðar vegbætur verða að
veruleika
Enn sem fyrr er þjóðleiðin okkur
mikilvæg og í ár fögnum við
Sunnlendingar þeirri staðreynd að
langþráðar vegbætur á milli Kamba
og Selfoss eru að verða að veruleika.
Framkvæmdum er lokið við fyrsta
áfanga og útboð að fara í gang á þeim
næsta og loforð um framhald hafa
verið gefin.
Það sést best þegar ekið er um
glæsilega nýja kaflann hversu mjór
og hættulegur gamli vegurinn var/
er orðinn og löngu tímabært að
þessar lífsnauðsynlegu úrbætur á
veginum verði að veruleika. Í því
ljósi er sérlega ánægjulegt að ákveðið
hefur verið að flýta framkvæmdinni í
heild sinni og jafnframt að bæta við
áföngum nær höfuðborgarsvæðinu.
Greiðar samgöngur tryggja
þjónustu
Hinn nýi vegur er afar þakklát
framkvæmd. Ekki síst þeim
fjölmörgu sem á undanförnum árum
hafa flutt hingað austur fyrir fjall
þrátt fyrir að sækja áfram vinnu á
höfuðborgarsvæðinu en einnig þeim
sem sækja vinnu og þjónustu á milli
sveitarfélaganna hér fyrir austan fjall
og þeir eru margir. Því hér hefur
fyrir löngu orðið til eitt atvinnu-
og þjónustusvæði sem byggir á
sérstöðu og fjölbreytni þeirra öflugu
byggðakjarna sem hér eru.
Góð þjónusta þrátt fyrir fjölgun
Það hefur verið undravert að fylgjast
með fjölgun íbúa á svæðinu að
undanförnu og ánægjulegt að sjá
hversu margir hafa fundið sér stað
hér fyrir austan fjall. Í Hveragerði
fjölgar sem aldrei fyrr þrátt fyrir
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar skrifar:
Gerum betur – alltaf, alls staðar !
að bæjarstjórn hafi stýrt eftir bestu
getu framboði lóða og uppbyggingu
í bænum með það að markmiði að
framúrskarandi þjónusta sé ávallt
í boði. Fyrir nýja íbúa sem færa
fjölbreytni og líf í samfélagsflóruna
erum við þakklát. Með fleiri íbúum
kemur fjölbreyttari þjónusta og við
höfum svo sannarlega notið góðs af
því Hvergerðingar. Enda sýnir fjöldi
veitingahúsa og önnur afþreying í
bæjarfélaginu að mannlífið blómstrar
sem aldrei fyrr.
Ánægja íbúa er vegurinn til
framtíðar
Nýr þjóðvegur kemur til með að
færast fjær byggðinni í Hveragerði.
Með þeirri færslu verða til ný hverfi
og ný tækifæri. Hveragerði er í
þjóðleið í dag og við munum verða
í þjóðleið til framtíðar. Þannig mun
bæjarfélagið blómstra og verða enn
öflugra en það er í dag.
Við sem skipum bæjarstjórn
Hveragerðisbæjar erum samhentur
hópur sem í sameiningu vinnum að
því að samfélagið hér verði ávallt í
fremstu röð. Það hefur tekist svo
eftir er tekið en Hveragerðisbær
hefur undanfarin ár skipað sér í
fremstu röð sveitarfélaga þegar spurt
er um ánægju íbúa með þjónustu síns
bæjarfélags í íbúakönnun Capacent/
Gallup. Það er besti vitnisburður sem
hægt er að hugsa sér.
Ánægja íbúa er okkar þjóðleið –
okkar vegur til framtíðar.
Ég óska lesendum öllum gleðilegra
jóla og þakka ánægjulegar samveru-
stundir og samskipti á árinu sem er
að líða.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar.
VELJUM ÍSLENSKT
Skólavörðustígur 19 & Borgartún 31
s: 552 1890
handknitted.is
ALLAR
OKKAR
PEYSUR ERU
PRJÓNAÐAR
Á ÍSLANDI
HANDPRJÓNASAMBAND
ÍSLANDS