Suðri - 05.12.2019, Blaðsíða 12
12 5. desember 2019
Björn og Sveinn eftir Megas
útgáfuhátíð í Ægisgarði á fimmtudag
Björn og Sveinn heitir skáldsaga
Megasar sem út er komin hjá
Bókaútgáfunni Sæmundi.
Skáldsagan Björn og
Sveinn rekur ferðalag feðga
um næturlíf og undirheima
Reykjavíkur og fýsnir þeirra
grimmar. Þótt þeir séu á
ferð í nálægum samtíma,
liggja rætur þeirra þó djúpt í
íslenskri fortíð og sagnasjóði,
þar sem eru feðgarnir Axlar-
Björn og Sveinn skotti á
16. og 17. öld. Aukheldur
telja þeir til frændsemi við
öllu frægari kumpána losta
og glæpa, ekki síst þann
Don Juan sem helst á óperu
Mozarts, Don Giovanni, líf
sitt að þakka.
Það sætti tíðindum
þegar þessi skáldsaga
Megasar kom fyrst út árið
1994. Hún hlaut blendnar
viðtökur, margir kváðust
fátt sjá annað en mislukkaða
skáldskapartilraun, ill-
skiljan legan vaðal og -
amfetamín bólginn - texta.
Aðrir lofuðu hugrekki og frumleika
höfundar og sögðu magnaða sögu
hér á ferð, engum líka í íslenskum
bókmenntum, róttæka hvað stíl og
hugmyndir snertir - magnað samtal
við avant-garde heimsbókmenntanna
sem birtist hvað skýrast í skáldskap
Sólardansinn
Sólardansinn er safn örsagna eftir
Þóru Jónsdóttur.
Þóra Jónsdóttir skáld og
myndlistarmaður (f. 1925)
hefur fyrir löngu skipað sér
í fremstu röð íslenskra ljóðskálda.
Eftir hana liggur fjöldi ljóðabóka, auk
ljóðaþýðinga og örsagna.
Hér sýnir hún snilldartök
sín á lausu máli í lágstemmdum
örsögum þar sem teflt er saman
draumkenndum minninga brotum
og óvenju skarpri sýn á samtímann.
Sögur Þóru hvíla á gömlum merg en
eru um leið býsna nútímalegar.
Rafiðnaðarsamband Íslands sendir
jóla- og baráttukveðjur til allra
landsmanna á nýju ári.
Kveikjum á perunni og krefjumst
hærri launa, styttri vinnutíma
og húsnæðis fyrir alla!
Rafiðnaðarsamband
Íslands í 50 ár
KVEIKJUM
Á PERUNNI
Rafiðnaðarsamband Íslands
er stoltur bakhjarl UN Women
Aðildarfélög
sambandsins:
Maríumyndin endurútgefin
Bókaútgáfan Sæmundur hefur
endurútgefið skáldsöguna
Maríumyndin eftir leikrita-
skáldið Guðmund Steinsson
(1925-1996). Eftirmála ritar María
Kristjáns dóttir leikstjóri.
Í kyrrlátu þorpi á Kanaríeyjum
eiga þau um hríð samleið,
heimsmaðurinn Felix og
heimastúlkan og dansmærin María.
Ástarsaga þeirra er lágstemmd og
ljóðræn en stíllinn leynir á sér og
spennan liggur í því ósagða.
Maríumyndin kom fyrst út árið
1958 og er önnur tveggja skáldsagna
sem Guðmundur Steinsson sendi frá
sér áður en hann sneri sér alfarið að
leikritun.
Í eftirmála er rakinn ferill
höfundarins og áhrif hans á íslenska
leikritun, leikhús og bókmenntir.
Höfuðstafur
Höfuðstafur eftir Gunnar J.
Straumland er safn ljóða,
kvæða og lausavísna.
Bókinaprýða litprentuð myndverk
eftir höfundinn, en hann hefur haldið
fjölda myndlistarsýninga hér heima og
erlendis.
Gunnar J. Straumland er kennari,
myndlistarmaður og kvæðamaður.
Hann fæddist á Húsavík, af þingeyskum
ættum í móðurætt en föðurætt hans er
úr Skáleyjum á Breiðafirði.
Frá unglingsárum hefur Gunnar
ort, bæði háttbundin kvæði og frjálsari
í formi. Undanfarna áratugi hefur
hann einbeitt sér að margbreytileika
íslenskra bragarhátta og yrkir undir
fjölbreyttum háttum. Hann er virkur
í starfi Kvæðamannafélagsins Iðunnar
og Kvæðamannafélagsins Snorra
í Reykholti. Ljóð hans, kvæði og
lausavísur hafa víða birst í safnritum,
tímaritum og blöðum en Höfuðstafur
er hans fyrsta bók.
súrrealista og sporgöngumanna
þeirra á liðinni öld.
Þessari endurútgáfu fylgir ritgerð
eftir Geir Svansson um list Megasar.