Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 5

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 5
6 LÆKNAblaðið 2014/100 V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 1. ADHD-teymi Landspítala. Úttekt á starfseminni fyrstu 18 mánuðina Halldóra Ólafsdóttir Geðsviði Landspítala Inngangur: ADHD-teymi Landspítalans var stofnað þann 22.01.2013 sem tilraunaverkefni innan geðsviðs Landspítala með sérstakri fjár- veitingu frá velferðarráðuneytinu. Tilgangur með stofnun teymisins var að stuðla að markvissari greiningum og meðferð fullorðinna með ADHD á Íslandi og vera opinberum stofnunum til ráðgjafar varðandi þennan málaflokk. Markmið: Markmið þess verkefnis sem hér er kynnt er að meta þörfina fyrir starfsemi af þessu tagi og þarfir þeirra sem vísað er til greiningar. Fjallað er um uppruna tilvísana, fjölda þeirra og dreifingu yfir tímabilið. Gerð er lýsandi úttekt á þeim hópi sem teymið hefur fjallað um, bæði þeim sem fengu ADHD-greiningu og hinum sem ekki fengu hana. Lýst er kynskiptingu og aldursdreifingu, undirflokkum ADHD-greininga og hliðargreiningum, sem og greiningum þeirra sem ekki reyndust með ADHD. Hluti þeirra sem greinast með ADHD fær lyfjameðferð við ADHD hjá læknum teymisins. Lýst er lengd meðferðar og tegundum lyfja. Einng er fjallað um hlutverk ADHD-teymisins í samskiptum við heilbrigðisyfirvöld og opinberar stofnanir. Að lokum lýst fáeinum sjúkratilvikum. Niðurstöður: Fjöldi tilvísana og fjöldi þeirra sem greinst hafa bendir til þess að ríkuleg þörf sé fyrir starfsemina. Heilbrigðisyfirvöld þurfa á næstunni að meta hvort starfsemi ADHD-teymisins eigi rétt á sér og ef svo hvort staðsetja eigi innan Landspítala. Ályktun: Móta þarf stefnu varðandi ADHD-greiningar og meðferð hér á landi og tryggja aðgengi og samfellu í þjónstunni. 2. Notkun heilarita til greiningar á ADHD hjá fullorðnum Halla Helgadóttir taugasálfræðingur1, Páll Magnússon2 1Mentis Cura, 2Geðsviði Landspítala Talið er að allt að 5% fólks á fullorðinsaldri falli undir skilgreiningar á at- hyglisbresti með/án ofvirkni (ADHD). Í dag er þessi taugaþroskaröskun greind með hefðbundnum klínískum aðferðum, greiningarviðtölum, matskvörðum og þroska-, félags- og sjúkrasögu. Rannsóknir sýna að röskunina megi rekja til lífeðlisfræðilegra þátta. Markmið verkefnisins er að þróa lífeðlisfræðilega aðferð til greiningar ADHD hjá fullorðnum og að fylgjast með áhrifum lyfjameðferðar. Hvatinn að þessu verkefni er stofnun teymis á Geðsviði Landspítala til að greina ADHD hjá fullorðnum. Teymið hefur hannað greiningarferli fyrir ADHD sem er í samræmi við verklagsreglur landlæknis. Staðlaðar greiningaraðferðir af þessu tagi skapa ný tækifæri til þess að stunda rannsóknir samhliða greiningar- og meðferðarvinnu. Mentis Cura er rannsóknar- og þróunarfyrirtæki sem hefur þróað aðferðir til að greina sjúkdóma í miðtaugakerfinu með heilariti. Rannsóknir Mentis Cura í samvinnu við BUGL hafa sýnt að heilarit getur greint á milli barna sem greinst hafa með ADHD og viðmiðunarhóps með 84% nákvæmni. Ef svipaðar niðurstöður fást þegar heilarit fullorðinna eru skoðuð mætti þróa aðferð við að mæla þá lífeðlisfræðilegu þætti sem einkenna ADHD hjá fullorðnum og gera þá tækni aðgengilega læknum og öðrum grein- ingaraðilum. Slík greiningaraðferð er ekki til í dag og því um nýjung að ræða sem gæti bætt hlutlægum þætti inn í greiningarferlið og þar með bætt greininguna. ADHD-teymið og Mentis Cura hafa nú hafið söfnun heilarita í gagnagrunn til greiningar á ADHD hjá fullorðnum og kynna fyrstu niðurstöður á þinginu. Verkefnið var styrkt af Vísindasjóði LSH. 3. Sjúkraskrár á 21. öldinni Hjalti Már Björnsson Bráðasviði Landspítala Starfsumhverfi lækna hefur breyst hratt á undanförnum árum. Sjúklingar hafa fengið aukið aðgengi að sjúkraskrám og rafræn skráning læknis í rauntíma er orðin möguleg. Einnig hefur „neytendavitund“ sjúklinga farið vaxandi, þeir gera auknar kröfur um gæði þjónustunnar og skráningu hennar. Þegar sjúklingar eru ósáttir við þjónustu læknis hefur það einnig orðið algengara að þeir leiti réttar síns í gegnum hefðbundið kvörtunarferli eða réttarkerfi, en einnig að þjónusta heilbrigðiskerfisins sé rædd í fjölmiðlum eða opinskátt á samfélagsmiðlum. 4. Læknir í meira en 40 ár „Hvað er svo merkilegt við það?“ Tómas Zoëga Geðsviði Landspítala Töluverður tími líður frá læknaprófi þar til sérfræðiviðurkenning er fengin. Ýmsir atburðir gerast á þeirri leið. Gerð verður tilraun til þess að lýsa geðlækningum í rúman aldar- þriðjung. Læknapólitík er á köflum mjög hörð og óvægin, hið sama má segja um átök við spítalastjórn. Fjallað verður stuttlega um sjónarhorn undir- ritaðs. Framtíðin er óræð, en er að verulegu leyti í okkar höndum. 5. Geðlyfjanotkun karla og kvenna á árunum 2004-2013 með samanburði við bólgueyðandi lyf (NSAID) og magalyf (PPI og H2 blokkar) Bjarni Sigurðsson1, Sigurður Páll Pálsson2, Magnús Jóhannsson1 1Háskóla Íslands, rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, 2Geðsviði Landspítala Bakgrunnur: Kynjamunur í tíðni geðgreininga, sérstaklega með tilliti til lyndisraskana, er vel þekktur en geðlyfjanotkun eftir kyni hefur verið minna rannsökuð. Markmið: Að kanna hvort kynjamunur reynist í notkun geðlyfja í heild en einnig með tilliti til aldurs og undirlyfjaflokka og bera saman við notkun á magalyfjum og bólgueyðandi lyfjum. Niðurstöður: Fengin voru gögn úr lyfjagagnagrunni landlæknis á tímabilinu 2004-2013. Fjöldi einstaklinga sem notaði geðlyf, þar með talið svefn- og róandi lyf, fór úr 20,7% þjóðarinnar í 23,4% á tímabilinu. Hlutfall kvenna á móti körlum (F/M) var 1,50 árið 2004 og 1,48 árið 2013. Til samanburðar var hlutfall kynja í magalyfjanotkun 1,32 á tímabilinu ÚTDRÆTTIR ERINDA

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.