Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 6

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 6
V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 LÆKNAblaðið 2014/100 7 og þeim sem fengu magalyf fjölgaði úr 8,3% í 12,1%. Hins vegar fækkaði þeim sem fengu ávísað bólgueyðandi lyfjum úr 20,1% í 15,7% og hlutfall kynja var um 1,2. Kynjahlutfall meðhöndlaðra með geðlyfjum breyttist eftir aldurshópum úr F/M=0,60 á aldrinum 0-18 ára í F/M=1,65 fyrir 60 ára og eldri. Ef skoðaðir eru einstakir flokkar geðlyfja má sjá að kynjahlutfall er nokkuð jafnt í ódæmigerðum geðrofslyfjum (F/M=1,2) en fyrir þunglyndislyf er þetta hlutfall 1,7 og hefur marktækt aukist á tímabilinu. Karlar eru hins vegar líklegri til að vera meðhöndlaðir með metýlfenídati á tímabilinu M/F=1,9. Ályktanir: Drengir eru líklegri en stúlkur til að vera meðhöndlaðir með geðlyfjum. Hins vegar eru konur líklegri en karlar til að vera meðhöndl- aðar, frá 18 ára aldri. Þessi kynjamunur og breytingar eftir aldri kalla á skýringar. 6. Sjálfsvígsferli hjá sjúklingum við fyrsta geðþjónustumat (interRAI Mental Health) á geðsviði. Bakgrunnur og tengdir þættir Sigríður Karen Bárudóttir1, Halldór Kolbeinsson1, Rósa Dagbjartsdóttir1, Rakel Valdimarsdóttir1, Herdís Sveinsdóttir2, Sigurður Páll Pálsson1 1Geðsviði Landspítala, 2Háskóla Íslands Bakgrunnur: Fræðimenn hafa vanrækt rannsóknir á sjálfsvígsferli inn- lagðra sjúklinga þannig að gap hefur myndast í þekkingu á sviðinu. Þörf er á ítarlegri kortlagningu á vandanum. Efni og aðferð: Notað var mælitækið interRAI sem er heildrænt mat á geðhag, heilsufari, lífsstíl og félagslegri stöðu sjúklinga. Upplýsingar eru úr fyrsta mati við innlögn 246 sjúklinga á endurhæfingu geðsviðs (D13A, Sérhæfð D12, Réttar-og Öryggisdeild, Endurhæfing LR). Karlar voru 143 og konur 103. Meðalaldur 40 ár. Flestir voru atvinnulausir, ógiftir og bjuggu einir. Niðurstöður: Aðalgeðgreining var oftast geðklofi (52,2%), síðan lyndis- röskun (19,8%) og fíkniröskun (10,5%). Með sjálfsvígshugsanir viku fyrir mat töldust 24 sjúklingar (9,7%). Með formaðar ráðagerðir um að svipta sig lífi, mánuðinn fyrir mat, voru 20 sjúklingar (8,1%). 98 sjúkling- ar (39,7%) höfðu gert tilraun til sjálfsskaða og 61 (24,7%) hafði gert til- raun til sjálfsvígs með þeim ásetningi að svipta sig lífi. Aldurshópurinn 18-27 ára var líklegastur til að vera í sjálfsvígsferli. Fleiri karlar en konur voru hótandi og/eða taldir hættulegir sjálfum sér við innlögn og voru líklegri en konur til að vera nauðungarvistaðir. Karlar í sjálfsvígsferli voru líklegir til að hafa lent í afskiptum lögreglu vegna ofbeldis mán- uðinn fyrir mat. Gleðileysi, depurð, vonleysi, áhugaleysi, sektarkennd og vanþóknun á sjálfum voru sterklega tengd sjálfsvígsferlinu og einnig nýleg sjálfsvígstilraun. Ályktun: Stór hópur sjúklinga sem leggst inn á Kleppi og LR er í sjálfsvígsferli við komu og þarf sérstaklega að huga að yngsta aldurs- hópnum. Með interRAI mati er mögulegt að fá góða mynd af vandanum og mögulega bæta forvarnir hjá þessum hópi í framtíðinni. 7. Efnahagshrunið á Íslandi. Möguleg áhrif á sjálfsvíg og aðra efnahagslega og félagslega þætti Högni Óskarsson, Salbjörg Bjarnadóttir1, Sigurður P. Pálsson2 1Landlæknisembættinu, 2Geðsviði Landspítala Markmið: Efnahagshrunið, sem hófst á Íslandi 2008 með hratt vaxandi atvinnuleysi og fjárhagsþrengingum fjölskyldna og fyrirtækja, hefur einnig haft víðtæk heilsufarsleg og önnur samfélagsleg áhrif. Markmið okkar er að tengja saman efnahagslegar afleiðingar og möguleg áhrif á tíðni sjálfsvíga, alvarlegra umferðaróhappa, fjölskylduofbeldi og áfengisneyslu. Aðferðir: Skoðað er tímabilið frá 2002 til 2012. Unnið var úr tölulegum upplýsingum frá Hagstofu Íslands, Landlæknisembættinu, ÁTVR og Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins/ Ríkislögreglustjóra. Tölur um atvinnuleysi miðast við þjóðfélagsþegna 16-74ra ára, frá ÁTVR 16 ára og upp úr, en aðrar upplýsingar eru reiknaðar sem hlutfall á hverja 100.000 íbúa. Sjálfsvígstölur eru reiknaðar sem árleg tíðni og þriggja ára meðaltöl. Niðurstöður: Atvinnuleysi meira en þrefaldaðist hratt eftir hrun en hefur hjaðnað frá 2011. Einkaneysla dróst verulega saman svo og sala áfengis. Alvarlegum umferðarslysum fór fjölgandi árin fyrir hrun og náðu hámarki 2010, en hefur fækkað síðan. Fjölskylduofbeldi hefur vaxið verulega í kjölfar hruns. Sjálfsvígstíðni var fremur lág í upphafi tímabilsins, fór hægt vaxandi fram að hruni og var svo hæst, 12,0- 12,3/100.000 árin 2009-2011. Umræða: Í litlu samfélagi sem Íslandi þarf að fara varlega að álykt- unum. Þó er ljóst að samfara hratt vaxandi atvinnuleysi og skertri fjárhagsafkomu hefur tíðni sjálfsvíga aukist. Á sama tíma hefur orðið veruleg aukning á fjölskylduofbeldi. Alvarlegum umferðarslysum fjölgaði fram að og eftir hrun. Það hafa komið fram skýrar vísbendingar erlendis frá að efnahagsþrengingarnar sem hófust fyrir 6 árum hafi leitt til aukningar sjálfsvíga. Það er því mikilvægt að skoða þessi mál betur hérlendis og greina hvaða hópar hafa verið í mestri áhættu þannig að þróa megi árangursríkar forvarnir. 8. Sjálfsmorð og þjóðarsálin Óttar Guðmundsson Geðsviði Landspítala Sjálfsmorð hafa verið óaðskiljanlegur hluti íslensks veruleika allt frá landnámstíð. Skýrt frá nokkrum sjálfsvígum í Landnámu og Íslendingasögum og viðbrögðum umhverfisins. Afstaða þjóðarinnar til sjálfsvíga og sjálfsvegenda breyttist mjög með kristnitöku og vaxandi áhrifum kaþólsku kirkjunnar. Smám saman var farið að líta á sjálfs- vegendur sem óbótamenn sem ekki fengu kirkjulegt leg enda höfðu þeir framið stórsynd. Með siðaskiptum voru sjálfsvegendur fordæmdir enn frekar enda litið svo á að djöfullinn sjálfur hefði verið með í ráðum. Á næstu öldum héldust þessir fordómar óbreyttir og bæði sjálfsvegendum og aðstandendum þeirra var grimmilega refsað þegar einhver féll fyrir eigin hendi. Ýmsar heimildir greina frá afstöðu almennings til sjálfsvíga, svo sem annálar, kirkjubækur, þjóðsögur og ævisögur. Fólki stóð mikill stuggur af sjálfsvegendum enda var talið að djöfullinn hefði tekið sér bólfestu í líkama þeirra. Óttast var að þeir gengju aftur og lík þeirra skyldu husluð á víðavangi. Þessi afstaða fer ekki að breytast fyrr en á ofanverðri 19. öld þegar farið er að grafa sjálfvegendur eins og aðra í kirkjugörðum. Frameftir 20. öldinni varð umræðan um sjálfsvíg opnari og stundum mátti sjá í dagblöðum frásagnir af nafngreindum einstaklingum sem höfðu fargað sér. Þessu var hætt þegar líða tók á öldina og sjálfsvígin voru enn og aftur sveipuð miklum dularhjúp. Sjálfsvíg eru ennþá mikið feimnismál í þjóðarvitundinni og greinilegt að fólki stendur enn mikill stuggur af þeim. Mikil þöggun er í gangi.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.