Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 7

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 7
V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 8 LÆKNAblaðið 2014/100 9. Opnun nýrrar bráðageðdeildar 32C – áhrif á tíðni ofbeldisatvika Halldóra Jónsdóttir, Eyrún Thorstensen, Hilmar Thor Bjarnason Geðsviði Landspítala Móttökugeðdeildir á Landspítala við Hringbraut hafa verið reknar með sama sniði um árabil. Síðustu árin þrjár 17-18 rúma deildir, allar lokaðar, með B-gangi fyrir sjúklinga með erfið veikindi og að auki fíkni- geðdeild, einnig með B-gangi. Þrengsli hafa háð deildunum og oft hafa verið erfiðar uppákomur og ofbeldisatvik á hinum lokuðu B-göngum. Reynsla frá nágrannalöndunum hefur sýnt að ofbeldi á geðdeildum hefur minnkað með meira rými á legudeildum. Haustið 2013 var opnuð sérhæfð bráðageðdeild 32C, eftir viðamiklar breytingar á húsnæðinu, þar sem áhersla var á rými og öryggi. Markmið starfseminnar er að annast móttöku, greiningu og meðferð bráðveikra einstaklinga sem sökum veikinda sinna eru taldir hættulegir sjálfum sér, umhverfi sínu eða öðrum og þurfa aukinn stuðning í öruggu umhverfi. Þjónustan er einstaklingshæfð til skamms tíma þar sem uppvinnsla og meðferð er í samræmi við gagnreyndar aðferðir og unnið er í þverfaglegu teymi. Á deildinni er 10 sjúklingaherbergi á tveimur kynjaskiptum göngum, það eru fleiri dagstofur en áður og slökunarherbergi. Heimsóknir eru ekki leyfðar inn á deildina. Með breyttu umhverfi, áherslu á öryggi og fyrirbyggingu erfiðra atvika, hefur alvarlegum ofbeldisatvikum fækkað. Fyrir opnun bráða- geðdeildarinnar voru að meðaltali 9-13 alvarleg ofbeldisatvik á mánuði á móttökugeðdeildum. Fyrstu 8 mánuði ársins 2014 voru að meðaltali 5 alvarleg ofbeldisatvik á mánuði. Á sama tíma er aukin starfsánægja hjá 71% starfsfólks á deildinni. Eftir fyrsta starfsár nýju bráðadeildarinnar hefur þegar dregið úr alvarlegu ofbeldi á geðdeildum LSH. 10. Strok sjúklinga af geðdeildum LSH á einu ári – tíðni og aðdragandi Jón Snorrason1, Jón Friðrik Sigurðsson1,2,Guðmundur S. Sævarsson1 Geðsviði Landspítala1, Háskóla Íslands2 Inngangur: Strok sjúklinga hafa yfirleitt neikvæð áhrif á meðferð þeirra og þó langflestir skili sér aftur eru dæmi um að sjúklingar sem strjúka fyrirfari sér eða sýni öðrum ofbeldi. Strok eru íþyngjandi fyrir starfsfólk og kalla oft fram kvíða og sektarkennd hjá því. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni stroka af geð- deildum Landspítala og aðdraganda þeirra. Einnig voru önnur atriði er tengjast stroki athuguð eins og hvernig sjúklingar struku, hvað þeir gerðu í stroki, hvenær þeir komu aftur og fleira. Aðferð: Gögn voru skráð úr slysa- og atvikaskrám og sjúkraskýrslum sjúklinga. Tíðni- og fylgnitölur voru reiknaðar út. Notast var við forritið SPSS 11. útgáfu. Eigindlegra gagna var aflað annars vegar með viðtöl- um við starfsfólk og sjúklinga sem struku og hins vegar úr hjúkrunar- skrám sjúklinga. Stuðst var við aðferðafræði grundaðrar kenningar. Niðurstöður: Á tímabilinu 1.10.2012 – 30.9.2013 voru 86 strok skráð af geðdeildum Landspítala, en 87% þeirra áttu sér stað á helmingi allra legugeðdeilda. Aðdragandi stroka mátti greina í eftirfarandi fimm atriði: Fíkn sjúklings, að vera beittur nauðung, rýmkun á meðferðar- áætlun, atferli sjúklings gefur til kynna að hann ætli að strjúka, notar tækifæri þegar deildardyr eru opnaðar. Ályktanir: Fæstir sjúklingar strjúka af geðdeildum. Helmingur sjúk- linganna sem strauk gerði það einu sinni eða oftar. Atriði sem fram koma í aðdraganda stroka geta gagnast starfsfólki að einhverju leyti til að fyrirbyggja strok. 11. Samfélagsgeðþjónusta í heilsugæslu á Suðurnesjum Hrönn Harðardóttir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) þjónar yfir 21.000 manns í 5 sveitarfélögum. Hlutfall atvinnulausra, öryrkja með geðfötlun og lág- tekjufjölskyldna er hátt á þessu svæði. Helstu markmið með stofnun samfélagsgeðþjónustu á svæðinu voru að geta boðið betri geðheilbrigðis- þjónustu í heimabyggð; bæta lífsgæði einstaklinga með geðraskanir á svæðinu; byggja brú á milli heilsugæslu, félagsþjónustu og sérhæfðrar geðþjónustu og um leið fækka innlögnum á geðsvið Landspítala og stytta meðallegutíma í innlögnum. HSS hóf undirbúning að stofnun teymisins með upplýsingasöfnun árið 2010. Í febrúar 2011 var samráðs- teymi stofnað með aðilum frá félagsþjónustu, geðsviði Landspítala og HSS. Teymið mat þörf á svæðinu og styrkur fékkst frá Velferðarráðuneyti til að ráða hjúkrunarfræðing. Geðteymið tók til starfa í júlí 2011 og hefur boðið þeim sjúklingum viðtöl sem metnir voru í mestri þörf fyrir þjónustu á svæðinu, ásamt því að sinna nýjum tilvísunum. Í júlí 2014 er í teyminu tveir hjúkrunarfræðingar, einn sálfræðingur og einn læknir í 2,8 stöðugildum. Starfsemi geðteymisins tekur mið af batahugmynda- fræðinni. Innlögnum Suðurnesjamanna á geðsvið Landspítala fækkaði úr 163 í 116 á 12 mánaða tímabili eftir stofnun teymisins borið saman við fyrra ár (29% fækkun). Legudögum fækkaði um 53% á sama tíma ,úr 1492 í 701 legudag á sama tíma. Meðallegutími styttist um 38% fyrsta árið eftir að geðteymið hóf störf, úr 10,0 dögum 2010 í 7,1 dag árið 2012. Gott samstarf við heilsugæslulækna og starfsmenn félagsþjónustunnar hefur þróast frá stofnun teymisins. 12. Tilvísanir í bráðaþjónustu BUGL Bertrand Lauth Barna- og unglingageðdeild Landspítala Fjöldi tilvísana í bráðateymi BUGL hefur aukist mikið undanfarin ár, sem og fjöldi bráðainnlagna á unglingageðdeild Landspítala, og heldur áfram að aukast. Einnig eru margar heimsóknir og innlagnir á bráða- móttöku Barnaspítala vegna geðrænna erfiðleika. Þessi þróun er frekar ný í barnageðlækningum og sérstaklega áberandi á Íslandi síðan 2010 (sbr. málþing barnageðlæknafélags á Læknadögum 2014). Okkur vantar klínískar leiðbeiningar til að veita öllum góða og samræmda þjónustu og einnig skilgreina betur þær bráðatilvísanir sem ber frekar að hafna. Í nýlegri umsögn og endurskoðun af birtum greinum um efnið er ályktað að okkur vanti enn meiri skilning á vandamálum sem þessi börn eða unglingar glíma við og ástæðum þess að þau verða að neyðartilfellum. Erfitt hefur reynst að bera saman niðurstöður úr mis- munandi rannsóknum: tíðni tilvísana vegna sjálfsskaðandi hegðunar hefur til dæmis verið mjög breytileg, sem og tíðni ólíkra raskana. Mælt hefur verið með ítarlegri endurskoðun af öllum bráðatilfellum, með stöðluðum aðferðum og skilningi á heildarferlum þeirra. Okkar erindi mun kynna rannsóknaráætlun á BUGL sem er í samræmi við þessi fyrir- mæli. 13. Ósérhæfð hugræn atferlismeðferð í hóp – íslenskur meðferðavísir, þróun hans og árangursmat Hafrún Kristjánsdóttir, Agnes Agnarsdóttir, Baldur Heiðar Sigurðsson, Chris Evans, Daníel Þór Ólason, Engilbert Sigurðsson, Erik Brynjar Schwitz Erikson, Magnús Blöndahl Sighvatsson, Jón Friðrik Sigurðsson, Paul Salkovskis Bakgrunnur: Síðustu ár hafa hópmeðferðir verið þróaðar til þess að

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.