Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 8

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Page 8
V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 LÆKNAblaðið 2014/100 9 auka skilvirkni og hagkvæni í meðferð geðraskana. Mikill meirihluti þessarahópmeðferða hafa verið sérhæfðar fyrir einstaka raskanir. Á síðustu árum hefur áhugi á ósérhæfðum hópmeðferðum aukist, en mörgum spurningum er ósvarað um árangur þeirra. Markmið rannsókn- arinnar er að meta árangur ósérhæfðrar hugrænnar atferlismeðferðar í hóp (ÓHAM-H) fyrir fólk með þunglyndis og/eða kvíðaraskanir. Efniviður og aðferð: Í fyrri hluta rannsóknarinnar tóku þátt 441 einstak- lingar með tilfinningavanda, sem vísað var í 5 vikna ÓHAM-H. Árangur meðferðar var mældur með Becks þunglyndis- og kvíðakvörðunum og CORE-OM árangursmatslistanum. Í seinni hluta rannsóknarinnar tóku þátt 233 einstaklingar, sem vísað var í 6 vikna ÓHAM-H. Árangur var metin með PHQ-9 þunglyndiskvarðanum, GAD-7 kvíðakvarðanum og kvörðum sem meta einkenni, felmtursröskunar ( PR), félagskvíða (LSAS ) og almennar kvíðaröskunar (PSWQ ). Niðurstöður: Í fyrri hluta rannsóknar kom í ljós að þunglyndis- og kvíðaeinkenni minnkuðu á meðferðartímanum. Ekki var samvirkni milli greininga og lyfjahópa og endurtekinna mælinga, að því undanskildu að meðferðin virtist gagnast þeim sem voru á SSRI/SNRI lyfjum betur en þeim sem ekki voru á slíkum lyfjum. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom í ljós að sértæk og almenn einkenni minnkuðu á samskonar hátt á meðferðartímanum. Ályktun: ÓHAM-H er árangursrík fyrir fólk með mismunandi geðrask- anir og notkun á algengum geðlyfjum truflar ekki árangur meðferðar- innar. Einnig virðist meðferðin hafa áhrif á sértæk einkenni til jafns við almenn einkenni og rennir það stoðum undir eiginleika hennar sem ósértækar meðferðar. 14. Markviss fjölskyldustuðningur á bráðageðdeildum Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir Geðsviði Landspítala Kannaður var ávinningur af innleiðingu stuttra meðferðarsamræðna (SMS) við fjölskyldur bráðveikra einstaklinga með alvarlega geðsjúk- dóma á bráðageðdeild Landspítala. Megin niðurstaða rannsóknarinnar var að sjúklingar og aðstandendur í tilraunahópi sem fengu tvær til fimm meðferðarsamræður upplifðu marktækt meiri stuðning en samanburðarhópurinn. Nýir spurningalistar voru þróaðir út frá kenn- ingarfræðilegum grunni Calgary fjölskyldumats- og meðferðarlíkansins til að meta ávinning innleiðingar. Próffræðilegir eiginleikar spurninga- listanna voru metnir í þremur aðskildum gagnasöfnunum en úrtakið í þeim öllum voru aðstandendur alvarlegra veikra einstaklinga. Nýju mælitækin mæla annars vegar fjölskyldustuðning og hins vegar tilfinn- ingalega fjölskylduvirkni í alvarlegum veikindum. Ein af forsendum rannsóknar var að alvarlegur geðsjúkdómur hafi áhrif á alla í fjöl- skyldunni. Hjúkrunarfræðingum á einni bráðageðdeild á Landspítala voru kenndar stuttar meðferðarsamræður ásamt þjálfun og handleiðslu í þeim. Í kjölfarið beittu þeir stuttu meðferðarsamræðunum á sjúklinga og fjölskyldur þeirra (tilraunahópur). Samanburðarhópur á þremur öðrum bráðageðdeildum, sjúklingar og aðstandendur þeirra, fengu hefðbundna þjónustu. Einnig var viðhorf hjúkrunarfræðinga, starf- andi á geðdeildum, metið með tilliti til þess að sinna aðstandendum geðsjúkra. Í ljós kom að hjúkrunarfræðingar sem höfðu tekið þátt í fræðslu- og þjálfunarnámskeiði í fjölskyldustuðningi fannst marktækt minni byrði af að sinna aðstandendum en þeim sem ekki höfðu tekið þátt í slíku námskeiði. Draga má þá ályktun að kennsla, þjálfun og handleiðsla hjúkr- unarfræðinga í stuttum meðferðarsamræðum á bráðageðdeildum bæti þjónustuna við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Niðurstöður þessarar rannsóknar hafa birst í fjórum ritrýndum greinum og einum ritrýndum bókarkafla. Einnig verður stuttlega sagt frá undirbúningi rannsóknar- áætlunar varðandi þverfaglegan fjölskyldustuðning á tveimur deildum á endurhæfingu geðsviðs Landspítala sem byggir á áðurnefndri rann- sókn. 15. Gagnsemi psychodýnamískrar meðferðar Ísafold Helgadóttir Geðsviði Landspítala Psychodýnamísk meðferð er samtalsmeðferðarform sem byggir á langri klínískri reynslu og heildstæðum kenningum um sjúklegt sálar- líf (psychopathology) og er engin önnur hefð sem býður upp á jafnlanga þjálfun í klínískri nálgun. Meðferðin hefur löngum verið gagnrýnd fyrir skort á rannsóknarstuðningi fyrir gagnsemi hennar, líkt og önnur nýrri form virðast hafa öðlast, einkum hugræn atferlismeðferð, sem býr yfir þeim kostum með tilliti til rannsókna að vera tímabundin, með skýrar markmiðasetningar og staðlaða uppbyggingu. Meðferðaraðilar hafa fundið fyrir þörf á samtalsmeðferðarformi sem á við í flóknari tilvikum og nær viðvarandi árangri og hefur m.a. verið horft á ný til dýnamískrar meðferðar í því tilliti. Markmið þessa fyrirlestrar er að kynna niðurstöður nýjustu rann- sókna á virkni og gagnsemi psychodýnamískrar meðferðar við ýmsum geðröskunum fullorðinna. Niðurstöður þeirra benda til að dýnamísk meðferð er árangursrík meðferð og hefur áhrifastærðir sem jafnast á við áhrifastærðir annarra rannsóknastuddra meðferða. Að auki virðast áhrif meðferðarinnar vara lengi og í mörgum tilfellum aukast eftir að meðferð lýkur. Fjallað verður um áhrif bæði skammtíma- og langtímameðferðar og þau áhrif borin saman við áhrif annarra gagnreyndra meðferða 16. Einelti á vinnustöðum í 10 ár Kristinn Tómasson Vinnueftirlit Ríkisins Í ári eru liðin 10 ár frá því reglugerð um einelti nr. 1000/2004 tók gildi en hún er grundvölluð á lögum um vinnuvernd nr 46: 1980. Með einelti er átt við ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg hátt- semi, það er athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir. Undir þetta fellur ekki skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur. Það er ljóst að til þess að einstaklingur ákveði að kvarta undan einelti til opinbers aðila eru mál á því stigi að veruleg vanlíðan er til staðar hjá einstaklingnum og vantrú á að vinnustaðurinn geti leyst vandamálið. Það ber þó að undirstrika að vinnustaðir eiga að vera með áhættumat og áætlun um hvernig á að taka á áhættum fyrir heilsu starfsmanna, þar með talið einelti. Alls eru 170 mál sem hafa borist Vinnueftirlitinu frá því að einelti var skilgreint í lögum fram til loka árs 2013. Um 160 eru vegna einstakra mála. Mál þessi eru í eðli sínu fjölbreytt, koma fyrir hjá einkafyrirtækjum sem opinberum og í fjölbreyttum starfsgreinum. Mörgum þessara mála fylgir lýsing á mikilli vanlíðan þess sem kvartar og að málin séu búin að ganga lengi. Byggt á þessu er mikilvægt að læknar þekki eðli og inntak vinnu- staða eineltis og kunni að ráðleggja um viðbrögð og mikilvægi forvarna.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.