Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 11

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 11
V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 12 LÆKNAblaðið 2014/100 25. Raförvun við alvarlegri þráhyggju-árátturöskun Magnús Haraldsson1, Hjálmar Bjartmarz2,3 Geðsviði Landspítalans1, Taugaskurðlækningadeild háskólasjúkrahússins í Lundi, Svíþjóð2, Taugaskurðlækningadeild Landspítala3 Þráhyggju-árátturöskun er algeng og oft langvinn geðröskun sem leitt getur til verulegrar skerðingar á starfsgetu og lífsgæðum. Einkenni lýsa sér fyrst og fremst með óþægilegum kvíðavaldandi þráhyggju- hugsunum og tímafrekum og hamlandi áráttum. Gagnreynd meðferð er annars vegar með lyfjum sem hafa áhrif á serótónínboðefni heilans og hins vegar ákveðnu afbrigði hugrænnar atferlismeðferðar sem nefnist berskjöldun með svarhömlun. Þörf er á bættum meðferðarúrræðum þar sem allt að helmingur einstaklinga svarar meðferð lítið eða ekki. Í erindi þessu er lýst sjúkratilfelli konu sem árum saman hefur glímt við alvarlega þráhyggju-árátturöskun sem valdið hefur gríðarlegri skerðingu á lífsgæðum hennar. Í nokkur ár hefur verið reynd meðferð með fjölda lyfja og einnig sálfræðimeðferð en með litlum sem engum árangri. Því var ákveðið að reyna raförvun djúpt í heila (deep brain stimulation) sem er meðferð sem beitt hefur verið í tilfellum alvarlegrar þráhyggju-áráttu. Fór hún í aðgerð hjá sérhæfðum taugaskurðlækni sem framkvæmdi þrívíddarísetningu rafskauta í svæfingu. Aðgerðin var gerð á Landspítala í júlí 2014 og er þetta í fyrsta skipti sem slík aðgerð er framkvæmd við geðsjúkdómi hér á landi. Í erindinu verður fjallað um meðferð þráhyggju-árátturöskunar og sérstaklega fjallað um raförvun þar sem aðgerðinni og meðferðinni er lýst í máli og myndum. 26. Notkun methýlfenídats í æð meðal íslenskra vímuefnaneytenda Guðrún Dóra Bjarnadóttir1,2, Andrés Magnússon1,2, Bjarni Össurarson Rafnar1,2, Engilbert Sigurðsson1,2, Steinn Steingrímsson2,3, Helena Bragadóttir1, Magnús Jóhannsson2, Magnús Haraldsson1,2 1Geðsviði Landspítala, 2Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, 3Sahlgrenska sjúkrahúsinu Gautaborg Inngangur: Notkun metýlfenídats (MPH) á Íslandi og víða erlendis hefur aukist mikið undanfarin ár. Klínísk reynsla bendir til að samhliða þessari aukningu hafa innlagnir og afeitranir vegna misnotkunar MPH aukist. Markmið: Að lýsa misnotkun MPH í æð hjá íslenskum vímuefnaneyt- endum. Að skoða tíðni, umfang og einkenni neyslunnar, til dæmis hvort ákveðin MPH efni eru frekar misnotuð en önnur og þá afhverju og er mismunur á vímunni á meðal MPH efnanna. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er þversniðsrannsókn og er notast við hálfstaðlað viðtal. Sprautunotendum, sem höfðu sprautað sig í æð með einhverju vímuefni síðastliðna 30 daga og voru í meðferð var boðin þátttaka. Gagnasöfnun stóð yfir í eitt ár og alls tóku 108 einstaklingar þátt. Niðurstöður: Niðurstöður sýndu að misnotkun MPH í æð er verulegt vandamál á Íslandi, eða 88% af þýðinu notaði MPH í æð undanfarna 30 daga. Sprautunotendur kusu og völdu MPH fram yfir önnur efni og er í auknum mæli efni sem sprautunotendur nota í fyrsta skipti. Flestir kjósa að nota Rítalín Uno® (79%) en fæstir Concerta® (3%). Ályktanir: Neysla MPH er vaxandi vandamál á Íslandi og er orðið eitt aðalefni sem misnotað er á Íslandi. Af MPH lyfjunum er Rítalín Uno® það sem sprautunotendur kjósa að nota. Með aukinni notkun MPH er þekking á misnotkun MPH bæði nauðsynleg fyrir Ísland sem og önnur lönd.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.