Pósturinn - 26.11.1965, Side 3
NR. 2
26. NÖVEMBF.R 1965
PÓSTURINN
m
STHPSSINN
mm
PUSTHIISSINN
11
Minna af síðhærðum
Nemi“
Þau eru frumlega
klædd skötuhjúin
Sonny og Cher.
Það væri synd að segja,
að unga fólkið hafi legið á
liði sínu þegar við fórum
þess á 5eit í síðasta blaði,
að það sendi okkur línu.
Blaðið var nefnilega ekki
fyrr komið út, en bréfin
tóku að streyma til okkar.
Það er ánægjuiegur vottur
þess, að við höfum hitt
naglann á höfuðið með út-
gáfu blaðsins, enda þótt
menn séu ekki á eitt sáttir
um efni blaðsins. En hér
birtum við nokkur bréf-
anna.
OF MIKIL
UPP-TALNING
Sæll Póstur.
Þegar ég keypti mér blað-
ið Pósturinn, var ég svolít-
ið spenntur. Var nokkur
von um að þetta blað héldi
áfram að koma út? Eg vissi,
að til þess þurfti það að
vera nokkuð gott blað. Jú,
ég komst að raun um, að
efnið var nokkuð gott, en
blaðsíðurnar helzt til fáar.
Vegna þess, að þessu er nú
svo farið, langar mig til að
koma með tillögu um breyt-
ingu. Það eru smábreyt-
ingar á forsíðunni.
Mér finnst of mikil efnis-
upptalning. 1/8 hluti blaðs-
ins er nú ekki svo lítill
hluti. Mér finnst nefnilega
leiðinlegt að sjá sömu
myndirnar á forsíðu og eru
inni í blaðinu. í stað þeirra
og upptalninganna má
birta eina stóra mynd af
íslenzkri unglingahljóm-
sveit (forsíðumynd). Eg er
viss um, að islenzkar
hljómsveitir eru alltof
sjaldan í blöðunum. Segj-
um til dæmis Toxic. Eg fyr
ir mitt leyti hef ekki séð
aðrar myndir af þeim en
auglýsingamyndir. En aft-
ur á móti hef ég orðið var
við að þeir njóta geysilegra
vinsælda, að minnsta kosti
í Reykjavík.
Ef það er ætlunin að fara
í „Búðina" á laugardags-
kvöldi, verður maður að
fara í biðröð einum eða
einum og hálfum tíma áð-
ur en miðasala hefst. Þá
getur maður næstum verið
viss um að fá miða. Sýnir
það glöggt, hve vinsældim-
ar eru miklar. Og að lok-
um: ég vona að þið birtið
bráðlega myndir af Toxic,
Pjörkum, Strengjum, Text-
um og Pónik og Einari.
Sem sagt meira um íslenzk-
ar unglingahljómsveitir.
Kveðja,
„Búðartöff".
SVAR: f sambandi við
upptalningu efnis á forsið-
unni erum við ekki alveg
sammála þér. Við hugsum
okkur forsíðuna sem um-
búðir utan um blaðið
sjálft. Og á umbúðunum
viljum við gjaman láta
koma sem skýrast í ljós
hvað inni í blaðinu er.
Samt þökkum við þér til-
löguna og geymum hana
bak við eyrað. Og myndir
af íslenzkum hljómsveitum
muntu fá, bæði stórar og
smáar.
MINNA AF
BÍTLUNUM
Til Póstkassans í Póstin-
um.
Mér lízt bara vel á þetta
blað. En er ekki hægt að
hafa aðeins minna af efni
um hina síðhærðu bítla?
Ég vil hafa meira af al-
mennu efni fyrir ungt fólk,
og þó mér sé ekkert illa við
bítlahljómsveitimar , finnst
mér ekki mega láta þær
yfirgnæfa allt annað í blað
inu. Viðtalið við Valgerði
Dan var ágætt. Meira af
svoleiðis efni.
„Nemi“.
SVAR: Sammála. Efnið
þarf að vera sem f jölbreyti-
legast og með tímanum
finnum við ef tii vill hinn
gullna meðalveg milli bítla
og annars efnis fyrir ungt
fólk.
segir „
TOXIC OG
MYNDASAGAN
Kæri Póstur.
Ég er að hugsa um að
biðja þig að birta fyrir mig
mynd af hljómsveitinni
Gary Lewis and the Play-
boys. Og einnig innlendu
hljómsveitinni Toxic.Og svo
vona ég að öllum líki vel
við nýju myndasöguna ykk
ar. Og ég vona líka að allt
gangi að óskum.
Aðdáandi.
SVAR: Þú færð mynd af
Gary Lewis and The Play-
boys í næsta blaði, en mynd
ir af Toxic-sveitinni er á
baksiðu í þessu blaði.
SMART KLÆDD
Kæri Póstkassi!
Mér finnst svakalega gam
an að hlusta á amerísku
söngvarana Sonny og Cher
og viltu birta mynd af
þeim og helzt grein um þau
líka. Mér finnst þau líka
svo gasalega smart klædd.
Kveðja. — Binni.
SVAR: Þú hefur sýnilega
ekki tekið eftir þvi, að við
gátum þess í síðasta blaði
að við myndum birta grein
um Sonny og Cher í þessu
blaði. — Við það höfum við
staðið, og greinin er á
næstu síðu. En af þv að
þú talar um klæðaburðinn
látum við litla mynd, sem
sýnir hann ljóslega, fylgja
með hér í Póstkassanum
SENDUM
í SVEITINA
KÆRI PÓSTUR.
Eg hefi keypt fyrsta blað
ið og líkar það alveg ljóm-
andi vel. Eg vona að blaðið
haldi áfram að vera eins
gott og fyrsta blaðið.
En þar sem ég er á
heimavistarskóla núna í
vetur, langaði mig að ger-
ast áskrifandi að blaðinu,
því að öðru vísi er ég ekki
viss um að geta náð í það.
Ef það er hægt, viltu þá
segja mér, hvað það kostar
og hve oft það kemur út.
„Einn utangátta".
SVAR: Tii að byrja mcð
munum við gefa þeim ,sem
búa í dreifbýlinu, kost á að
fá blaðið sent heim.
Ef þú vilt borga 60 kr.
fyrirfram, munum við
senda þér 4 næstu blöð.
PÚSTIIRINN
I SEDIBl
Þaö er alltaf veriö aö ræða um, aö unga fólkinu fari
hrakandi meö hverju árinu sem líður. Að afbrot og óknyttir
unglinga hafi aldrei verið meiri en nú og að hegðun og
heiðarleika ungu kynslóðarinnar sé fremur ábótavant en
áður fyrr. Auðvitað orsakar fjölmennið fleiri afbrot af
ýmsu tagi, og er því ekki mælandi bót. En hvað snertir
heiðarleikann segir Pósturinn í dag: Við eigum sem bet-
ur fer þúsundir af heiðarlegu ungu fólki, og því til sönn-
unar er hér ein lítil sönn saga:
Það bar við, þegar verið var að selja miða að hljóm-
leikum The Kinks, sem hér léku fyrir nokkru. Fjöldi ungs
fólks stóð í biðröð, og afgreiðslumennirnir höfðu varla
undan. Þegar farið var að telja miða um kvöldið, og bera
saman við þá peningaupphæð, sem inn hafði komið, sáu
þeir, sem afgreiddu, að mistalizt hafði, og einhver hafði
fengið tveim miðum of mikið. Þeir.létu það gott heita og
þótti vel sloppið eftir að hafa selt mörg þúsund miða.
Daginn eftir kom ung stúlka að máli við afgreiðslu-
mennina og kvaðst hafa tekið eftir því, þegar heim kom,
að hún var með tveim miðum of mikið. Hún baðst leyfis
um að mega skila andvirði miðanna, þar sem vinkonu
hennar vanhagaði mjög um tvo miða.
Var það auðvitað auðsótt mál, og í þakkarskyni fyrir
skilvísina afhentu afgreiðslumennirnir þessari heiðarlegu
ungu stúlku smágjöf.
Segið þið svo, að ekki sé til heiðarlegt ungt fólk!
PÓSTURINN
kemur fyrst um sinn ót hálfsmánaðarlegra — KitstjórJ (áb. l Olafui Gaukur, ilm
10762. Teiknari Þorsteinn Eggertsson. Afgreiðsla Bragagötu 38-A. Prentsm. Edda
Hún heitir Janis Carol og
söng áður á Hótel Borg —
hann heitir Ólafur Bene-
diktsson, klippir fólk á dag-
inn og spilaði með Lúdó
sextetti í Þórscafé fyrir um
það bil fjórum mánuðum.
Núna eru þau bæði i Ó. B.
kvartett, sem Ieikur í
Glaumbæ um þessar mund-
ir.
Upphaf þeirrar hljóm-
sveitar var satt að segja
mjög rómantískt. En svo
var mál með vexti, að Óli
Ben og Janis voru orðin yf-
ir sig hrifin hvort af öðru,
en þau gátu ekki oft verið
saman, þar sem Óli vann
á daginn — og þau unnu
með sitt hvorri hljómsveit-
inni í sitt hvoru húsinu á
kvöldin. Því var það einn
morguninn um níuleytið
að Óli hringdi í nokkra
vini sína, sem allir voru
þaulvanir hljómsveitamenn
— 4 klukkutímum seinna
varð Ó. B kvartettinn til
Óli sagði þegar í stað upp
vistinni hjá Lúdó og byrjaði
að æfa nýju hljómsveitina
af kappi.
Upphafið var
óskðp „rómó”
Þrír af meðlimum nýju
hljómsveitarinnar höfðu
áður verið hljómsveitastjór-
ar, þeir Óli Már (Ó. M.),
Kjelli (Sóló) og Óli Ben
(sextett Óla Ben). Þrir af
þeim voru líka í hinni vin-
sælu hljómsveit Sóló, þeir
Óli Már, Lalli og Kjelli.
Þeir segjast ekki hafa
mikinn tíma til að æfa, þar
sem þeir vinna allir á dag-
inn. Kjelli býr meðal ann-
ars til mótin fyrir allar
myndimar, sem birtast í
blöðunum af þeim félög-
um. Það er rétt á takmörk-
unum að þeir geti æft 3—4
ný lög á viku.
Óli Ben sagði mér, að
þeir hefðu mjög gaman af
bítlamúsik og popmúsik yf-
irleitt, en þeir eru ekkert
gefnir fyrir hávaða. Þess-
vegna hafa þeir alltaf há-
talarana sína hæfilega
skrúfaða niður — svo að
fólk geti talað almennilega
saman á dansleikjunum
hjá þeim. Hann sagði mér
einnig að markmið þeirra
væri að gera öllum til hæf-
is.
Janis segist vera mjög
mikið fyrir föt, enda er hún
oft mjög frumlega klædd á
hljómsveitarpallinum.Henni
er'lítið gefið um fólk, sem
ekki hefur eigin skoðanir
og fer mest eftir öðrum,
enda hefur hún mjög á-
kveðnar skoðanir á hlut-
unum sjálf. Hún segir, að
ef hún mætti ráða. þá vildi
hún helzt syngja í síðbux-
um og allskonar múnder-
ingum.
Henni finnst oft vera
þröngt á þingi í Glaumbæ
á laugardögum. Þessvegna
vill hún ráðleggja fólki að
koma meira á fimmtudög-
um — en þá getur oft ver-
ið skemmtilegt lika.
Þau eru bæði sammála
um, að fólkið sem sækir
Glaumbæ, sé alveg ágætis-
fólk — að vísu ekkert betra
an annarsstaðar — en alls
ekki verra. Markmið þeirra
er auðvitað að komat,/ sem
lengst og hafa samstarfið
gott, enda stefnir hljóm-
sveitin að því að gefa út
plötu, áður en langt um
líður.
Það ku eiga að vera fal-
leg ensk lög á þessari plötu,
lög, sem sjaldan eða aldrei
hafa heyrzt hér, en eru
mjög falleg engu að siður.
Þetta eru lög af hæggeng-
um plötum með Cillu Black
og Sandie Shaw. Janis seg-
ist vera miklu hrifnari af
þeim heldur en t. d. The
Rolling Stones.
Að endingu sögðu þau
mér, að þau ætli að gifta
sig i desember — og þá auð
vitað hvort öðru — eignast
böm í framtíðinni — og
vonast þau til að þau séu
á réttri leið.