Pósturinn - 26.11.1965, Page 4
4
PÓSTtJRIPIN 26. NÖVEMBER 1965 WR. 2
<■'...
/Myvm LEIKA
ÍTLAMÚSÍ
/ GUÐSHUSU
Viö vorum að fletta
danska HIT um daginn, og
rákumst á grein um ung-
lingahljómsveit, sem heit-
ir The Eagles, því að Dan-
ir skíra helzt alls ekki
danskar hljómsveitirdönsk
um nöfnum, heldur miklu
fremur enskum eins og
allir aðalkarlarnir í hinum
stóra heimi.
The Eagles — eða Ernirn-
ir — hafa nokkuð sér til
ágætis, auk þess að vera svo
að segja alnafnar íslenzku
stéttarbræðranna, hlióm-
sveitarinnar ERNIR. sem
margir lesendur þekkja.
Dönsku piltarnir urðu nefni-
lega fyrsta hljómsveitin í
Danmörku til þess að leika
bítlamúsik í kirkju — meira
að segja við guðsb.iónustu.
Eins ns að líkum lætur hef-
ir betta vakiK míi-i'’ Qthvgli
í Danmörku og verið talsvert
um það skrifað. Guðsþjónust-
an, sem um ræðir, fór fram 5
kirkjunni á Sjælör og prest-
urinn heitir séra Bovmann.
Hugmyndin er hins vegar
komin frá Englandi. og hef-
ur gefizt vel þar.
Aldrei mun jafn margt
ungt fólk hafa verið saman-
komið við guðsþjónustu í
kirkjunni á Siælör og víst
mun það líka sjaldgæft, að
presturinn þurfi að prédika
tvisvar — í seinna skiptið
fyrir f.iölda fólks, sem ekki
komst inn, í kirkjuna og stóð
fyrir utan.
Einkunnarorð þessa fyrir-
tækis eru auðvitað: „Það er
heppilegast að tala við unga
fólkið á máli. sem það skil-
ur bezt.“ Og að sögn danska
blaðsins eafst þessi fyrsta til-
raun með afbrieðum vel.
Við skulum aðeins heyra,
hvað meðlimir hljómsveit-
arinnar höfðu um málið að
segja.
Bassaleikarinn Kaj: „Ég
get ekki séð neitt rangt við
það að leika dægurlög í kirkju
— sérlega ekki þar sem prest-
urinn bað okkur um að
koma.“
Bjarni, sem er söngvarinn
segir: „Þetta er góð auglýs-
ing fyrir okkur. Mér finnst
það auk þess ekkert ókristi-
legt.“
Sólógítarleikarinn Jan: —
„Auglýsing er auglýsing. Og
ef við hefðum ekki gert þetta,
hefði bara einhver önnur
hliómsveit gert það.“
Og Jörgen, sem einnig leik-
ur á gítar, hefur þetta til
málanna að leggja: „Auðvit-
að er það dálítið undarlegt
að leika í kirkju — en úr því
að presturinn er því sam-
þykkur, þá er allt í lagi. Svo
skaðar líklega ekki fyrir okk-
ur að fá svolítið umtal.
Loks segir Martin trommu-
leikari sitt álit: „Mér finnst
þetta vel afsakanlegt úr því
að við tókum enga peninga
fyrir að koma þarna fram-
Það er líka plús að fá aug-
lýsingu — annars hefðum við
gert þetta þótf ekki hefði
einu sinni komið auglýsing
til.“
Þetta segja þeir ungu
menn, og okkur hér á blað-
inu finnst þeir ef til vill full
auglýsingagráðugir í sam-
bandi við hennnn leik sinn i
guðshúsi. Hins vegar er hug-
myndin í heild ekki svo vit-
laus.
"Fyrst kemur hjóna-
hrndiS — á eftir
kemur söngurinn
— svo eru jjað
peningarnir"
Þeim var ráðlagt í
byrjun, að láta ekki
nokkurn lifandi mann
vita af því, að þau væru
hjón. Menn sögðu, að
ef þau ætluðu sér að
komast langt sem
söngfólk, væri áreið-
anlega bezt að halda
giftingunni leyndri.
En þau sögðu nei. Og
ef Sonny og Cher hefðu
átt að velja milli frægðar-
innar og þess, að láta alla
vita, að þau eru hjón, hefðu
þau áreiðanlega valið hið
síðamefnda.
Þau hittust fyrst fyrir
tveim árum, Sonny Bono
og Cher La Piere. Hún
var þá sautján ára, cg
lagði stund á leiklistarnám.
líklega með það fyrir aug-
um, að feta í fótspor móð-
ur sinnar, sem er leikkona.
Sonny hafði hins vegar ver
ið músikmaður lengi, og
þegar samið mörg lög, sem
nokkur höfðu komizt á
toppinn, eins og sagt er.
Þegar þau hittust fyrst.
hefur það ef til vill ekki
verið ást við fyrstu sýn,
en áreiðanlega við aðra, þvi
að það leið ekki langur
tími þar til þau gengu í
hjónaband.
Sonny hélt áfram músik-
ferli sínum og lífið var ekki
alltaf eintómur dans á rós-
um, því að þær stundir
komu, þegar þau áttu bók-
staflega ekkert til í eig-
unni — nema auðvitað
hvort annað. En það virt-
ist þeim nóg.
Á þessu stigi málsins
hafði Cher ekki einu sinni
borið það við að reyna að
syngja. En þar kom, að hún
lét tilleiðast, að reyna.
Sonny segir um þann at-
burð: „Ég varð steinhissa.
Hún stóð sig mjög vel, en
hafði ekki hugmynd um
það sjálf. Ég lét hana held-
ur ekki vita af því strax,
heldur fékk hana fyrst til
að syngja með mér á nokkr
ar plötur, og gætti þess
þá vel, að hlutverk henn-
ar væri sem auðveldast. Og
svo fann hún sjáifa sig í
söngnum, og hætti um leið
við öll áform um að ger-
ast leikkona.“
Sonny hjálpaði konu sinni
eftir megni til þess að
þjálfa söngröddina. í
fyrstu hafði hann hugsað
sér, að hún myndi syngja
ein. En svo komust þau að
því, að samsöngu beggja
hljómaði betur. Síðan hafa
þau sungið saman inn á
hverja hljómplötuna af
annari og sungið sig inn
í hjörtu þúsundanna.
Þau hafa farið hljóm-
leikaferð til Evrópu, m. a.
tii Englands og Danmerk-
ur, og ekki verður sagt ann
að en vel hafi verið tekið
á móti þeim þar, ekki síð-
ur en á heimaslóðum.
Þekktasta lag þeirra
hjóna er vafelaust I GOT
YOU BABE, en einnig
munu margir þekkja
LAUGH AT ME, sem banda
ríska stórblaðið TIME tók
fyrir nokkru sem dæmi um
nýja gerð dægurlagatexta,
er nú ryðja sér rúms,
nefnilega texta, sem fælu
í sér einhvern boðskap, en
væru ekki algerlega út í
bláinn, eins og algengara
mun vera um þann skáld-
sk
En þessi orð voru aðcins
til að kynna þau Sonny og
Cher. og segia mætti okk-
ur. að við ættum eftir að
geta þeirra hjóna aftur
síðar.
• J'
i ■ M .
%,/
•»
» * . 1 . 1 . » ^ ^ . X 4 •“'
‘ • É ^ <| . » ^ ^ ^ 4 |>
».*.•»* _ 1 A A A
^ *§í