Pósturinn - 26.11.1965, Síða 8
JAZZLEIKARINN DONALD BYRD I SÍMTALI:
h vil sjá
Surt og sjóö-
andi hveri”
— Ég hef mikinn hug á
því að útsetja nokkur lög
fyrir íslenzka útvarps-
hljómsveit og leika með
henni, þegar ég kem til
ykkar. Ég er sem stendur
að skrifa fyrir hljómsveit
Count Basie og einnig fyr-
ir útvarpshljómsveit norska
ríkisútvarpsins, en ferðinni
er heitið til Oslo, þegar ég
yfirgef Reykjavík.
Við erum að hlera á
símtal, sem átti sér stað
við New York fyrir fáein-
um dögum. Á öðrum enda
línunnar talar bandariski
jazzmaðurinn, trompetleik-
arinn og útsetjarinn Don-
ald Byrd, en hérna megin
hafsins er það Þráinn
Kristjánsson, sem heldur á
símtólinu. Þráinn stendur
fyrir hinum þekktu jazz-
kvöldum i Tjarnarbúð.
Og við hlerum betur. Frá
New York heyrast þessi
orð: — Svo langar mig öll
ósköp til að sjá hin miklu
umbrot elds og ísa, sem þið
hafið þarna norður frá. Ég
Framh. á bls. 7
HOLLIES KOMA
TIL ÍSLANDS
TÖLUM
TOXIC
Það var í október i fyrra,
að hljómsveitin Toxic varð
til. Að visu var ekki um
nýja hljómsveit að ræða —
aðeins nafninu hafði verið
breytt. Hljómsveitin hafði
oft skipt um nafn; meðal
annars heitið Drekar og
Grástakkar, en það varð
ekki fyrr en Jakob Hall-
dórsson hljómsveitarstjóri
rakst á nafnið Toxic á litl-
um litkritarkassa — og um-
skirði hljómsveitina einu
sinni enn, að vegur henn-
ar tók að vaxa.
f dag er þessi hljómsveit
orðin mjög vinsæl — og
virðast vinsældir hennar
aukast jafnt og þétt. Er ég
spurði þá eitt sinn, hvemig
á þessu stæði, svaraði Rafn
Haraldsson trommuleikari
því til, að þeir hefðu enga
hugmynd um það. „Ætli
það sé ekki bara af þvi, að
núna loksins er fólk farið
að sætta slg við okkur,"
sagði hann.
Þeir segjast fara oft til
rakarans, enda eru þeir all-
ir með stutt hár, nema
annar gítarleikarinn, Am-
ar Sigurbjömsson. Þeir
Framh. á bls. 7
Nýjung í miðasölu til utanbæjarfólks.
f síðasta blaði sögðum
við frá þvi, að Bítlamir og
Rotling Stones myndu e.t.v.
koma til íslands einhvern
tíma á næsta ári. Nú kom-
um við með aðra stórfrétt
af þessum vettvangi. í und
irbúningi eru samningar við
The Hollies, og talið lík-
legt að þeir muni gista
Reykjavík um mánaðamót-
in janúar-febrúar næst-
komandi.
Enn sem komið er munu
ekki ráðgerðir nema tvenn-
ir hljómleikar, svo að hætt
er við, að þröng verði á
þingi við miðasöluopin.
Vegna þessa hefur for-
ráðamönnum hljómleik-
anna komið til hugar sú
nýbreytni við miðasölu að
gefa fólki kost á að panta
miða bréflega með löngum
fyrirvara.
Kaupendur myndu senda
andvirðið í póstávisun
með pöntun sinni, og fá
miðana senda um hæl.
Þetta fyrirkomulag tiðk-
ast mjög erlendis, og virð-
ist líklegt, að það myndi
njóta hylli hér ekki síður
en þar. Sérlega er þetta
heppilegt fyrir þá, sem búa
utan Reykjavíkur, en vilja
tryggja sér miða. Þá bentu
forráðamenn hljómleikanna
á, að tveir miðar á slíka
sketnmtun væru tilvalin
og áreiðanlega kærkomin
jólagjöf til áhugafólks, sem
ekki er að draga í efa.
NR.2
REYKJAVÍK 26. NOV. 1965
VERÐ 15 KR.
Öskalög fyrir okkur
STUART GRUNDY
— þulur í Luxemburg
í Radio Luxemburg
m
',y j w*/ *
Við höfum duglegan
fréttaritara, sem er á ferð
og flugi út um öll lönd. Hún
er nefnilega flugfreyja hjá
Loftleiðum og heitir Alice
Boucher. Síðast þegar hún
var stödd í Luxemburg, leit
hún inn hjá útvarpsstöð-
inni Radio Luxemburg og
ræddi við þrjá þulanna. Við
gefum Alice orðið;
—,Ég kom til Villa Lou-
vigny, þar sem útvarps-
stöðin hefur aðsetur, að
kvöldi til. Þrír þulanna
tóku á móti mér, og einn
þeirra sat við hljóðnemann
og kynnti það, sem verið
var að senda út. Hann heit-
ir Barry Alldis. Aðrir tveir
voru líka staddir þarna
þeir Johnny Moran og Stu-
art Grundy. Ég hafði með-
ferðis nokkur eintök af
Póstinum, og gaf þeim sín-
um hvert. Þeir voru stór-
hrifnir af blaðinu, og undr-
uðust það einna mest, að
við skyldum geta prentað
blað fyrir unga fólkið hér
uppi á íslandi í litum
— Þulirnir sögðu mér
ýmislegt um útvarpsstöð-
ina. Til dæmis hlusta um
60 milljónir manna á Ra-
dio Luxemburg, þar af 60
milljónir í Englandi einu
saman. Þama er aðeins átt
við þær útsendingar. sem
fara fram á ensku. en
stöðin útvarpar auk þess
bæði á frönsku, þýzku og
flæmsku. Norðmenn hlusta
t d mikið á þessa stöð. og
talið er, að yfir 50%. Norð-
manna stilli á Radio Lux-
emburg auk sinnar eigin
stöðvar. Útvarpsstöðin hef-
ur starfað frá því árið 1931.
og á sívaxandi vinsældum
að fagna.
— Ég nefndi það við þul-
ina þrjá, hvort þeir myndu
ekki leika óskalög fyrir okk
ur hér heima, ef til kæmi
Þeir kváðu það vera alveg
Framh á bls. 6
BARRY ALLDIS
— sendir kveðjur
ENN EXNU sinni hefur Svavar Gests slegið ' gegn með
útvarpsþætti sínum. Honum virðist aldrei bregðast boga-
listin, þegar um það er að ræða að gera útvarpsþætti
létta og skemmtilega og fá fólkið, sem statt er í útvarps-
salnum hverju sinni, til að taka þátt í gríninu. Samt
koma stöku sinnum upp að hljóðnemanum til Svavars
menn og konur, sem reyna að snúa út úr spurningum og
vera sniðug sjálf, oftast af vanefnum þess, sem gjör-
sneyddur er kimnigáfu. Burtséð frá þessum furðufuglum
er þátturinn hinn skemmtilegasti og músikin ágæt.
UNGA FÓLKIÐ, sem sækir Lídó ei 1 vondu skapi uk>
þessar mundir Það telur ekki ástæðu til að hafa sama
lágmarksaldur þegar um er að ræða aðgang að skemmt-
unum, þar sem eingöngu kemur ungt fólk og áfengi er
ekki haft um hönd, og að öðrum skemmtunum í bænum
sem fullorðið fólk sækir. Vilja unglingamir fá því fram-
gengt, að lágmarksaldur dansgesta í Lídó verði lækkaður
úr 16 árum í 15. Sumir telja líka sjálfsagt. að se+’-
hámarksaldur gesta á þessum stað — t. d. 18—19 ár.