Glanni - 27.07.1970, Blaðsíða 9
motssvædinu....
FLOKKAKEPPNIN.
Flokkarnir verða að láta skrá sig á mánudag eftir mótssetningu
£ dagskrártjaldinu á miðsvæðinu. Flokkakeppninni verður þannig
hagað, að flokkurinn verður að leysa 4 verkefni;
a) trönubyggingar
b) markferð
c) hlóðaeldur
d) listaverk
Nánari átskýringar á verkefnunum fáið þið hjá DAGSKRÁRSTJÓRN.
Á leikvellinum við fjölskyldubúðirnar hittum við tvo
8 ára ylfinga dr Rauðúlfasveit Skjöldunga í Reykjavík,
Mikael Valdimarsson, sem er hárna á mótinu með pabba sínum
og frænku, og Sigurjón dlfar Guðmundsson, sem kom með
pabba og mömmu. Voru þeir hjartanlega sammála um, að það
væri gaman á skátamóti og lofuðu ágæti rólanna á leik-
vellinum. en Sigurjón tók þó fram, að þær væru sérstaklega
góðar til að standa í þeim.
*
GLANNAR gerðu sér ferð £ sjúkratjaldið £ fréttaleit £ gær.
Þar fundu þeir fyrir félaga úr HSSR önnum kafna við að gera
að fótarmeini piltunga, sem hafði farið óvarlega £ tunnu-
príli. Annars sögðu þeir aðeins hafa verið mátulega mikið
að gera til að forða þeim frá að láta sér leiðast. Aðeins
um 15 - 20 tilfelli, aðallega fingurskurðir, þvers og kruss
þó hafði einn sjúklingur brakst á fæti og verið fluttur til
læknisaðgerðar á Akranesi.
Edda Jósdóttir, farar-
stjóri Garðbúa.
Nei, nei. Við eigum
fyrst og fremst að nota
það, sem landið býður
upp á. Þó er það tak-
markað, sem rifa má úr
fósturjörðinni, og
spírurnar skapa reisn
og l£f. Það fer of
mikill tími £ að reisa
trönurnar, en of lítill
£ náttúruskoðun. Við
höfum tekið beint upp
úr erlenduro skátabókum
en gleymt eigin reynslu
Erla Sigurgeirsdóttir,
fararstjóri Gagnherja.
Já, tvímælalaust.
Þetta er ágætt fyrir
börnin, þroskandi og
uppbyggj andi.
GLANNI spyr:
Eiga islenzkir skátar
að leggja svona mikla
áherzlu á trönubygg-
ingar £ skógarlausu
landi.
Atli Smári Ingvarsson,
aðstoðarfélagsforingi
Dalbúa.
Nei , alls ekki. Ég er
á móti öllu þessu
flutningsstússi £ sam-
bandi við spirurnar,
samanber einföld hlið
okkar Dalbúa. Stefnan
er að nota fslenzkt^
efni, toft og grjót.
ðli Silla, fararstjóri
Hraunbúa, Hafnarfirði.
NEI, og, aftur Nei. Við
eigum að laga okkur
eftir staðháttum. Nota
það sem við höfum, t.d.
torf og grjót. Þeir
kunnu þetta gömlu menn-
irnir.
Jón Þór Jóhannsson,
tjaldbúðastjóri Skjöld-
unga.
Já, þvf ekki bað? Þær
setja svip sinn á svæð-
ið og það er gaman að
vinna að þessu. Svo
er hægt að nota hnúta
og fleira úr prófunum
við þetta.
7