Glanni - 27.07.1970, Síða 11

Glanni - 27.07.1970, Síða 11
 &pfiybrt, Jpr. • X-arxjK **'W I. >f| • Ifm / í aULi - « I - sS^;. .y . i il A Brezku skátarnir eru fjölmennastir erlendu skátanna á Landsmótinu. Þeir eru um sextíu og fimm talsins. Bretar hafa jafnan fjölmennt á þessi Landsmót okkar, og við Glannar fögnum því, að þeir skuli halda þeirri venju nd. Bretarnir hafa yfirleitt verið mjög vinsælir meðal íslenzku þátttakendanna, enda er skáta- hreyfingin runnin úr brezkum jarðvegi. Einn Nýsjálendingur dvelst á mótinu. Hann mun vera lengst að kominn allra mótsgesta. Færeyingarnir komu síðastliðinn miðviku- dag. Fyrirfram hafði verið bdizt við sex strákum og sex stelpum, en þó að Færeyingar séu í konungssambandi með meiru við Dani, hefur þeim ekki þótt þetta heppileg tala, svo að hvorki meira né minna en tuttugu færeyskir skátar stigu dt dr flugvélinni, móttökustjóranum til óblandinnar ánægju. Færeyingarnir héldu sxðan sem leið lá suður að Vífilsfelli, en þar gistu þeir þangað til landsmótið hófst. Sumir bjuggu í hótel- inu, en aðrir tjölduðu við hliðina. Það er okkur Meiriglönnum mikil ánægja, að Færey- ingar, nánustu frændur okkar, skuli fjölmenna svo sem raun ber vitni á þetta mót. Þekktasti erlendi skátinn, sem gistir landsmótið nd, mun vera ritstjóri Boys Life, hins kunna ameríska skátablaðs. Boys Life e^ eins og þið sjálfsagt vitið,stærsta skátablað í heimi og mikið lesið hér á landi sem annars staðar. Við Meiriglannar munum vonandi ná tangarhaldi á þessum stéttarbróður okkar hérna á mótinu - og það fyrr en síðar. Þá fáið þið nánari fregnir af honum og erindagjörðum hans hér á norðurhjara veraldar. Flestir erlendu skátarnir eru langt að komnir, sumir jafnvel yfir hálfan hnöttinn. En bandarísku skátarnir á Keflavíkurflugvelli þurfa aðeins að bregða sér bæjarleið til þess að komast að Hreðavatni. Um þrjátu þeirra munu líka gera það, 15 af hvoru kyni. Skátarnir á Vellinum hafa löngum haft mikil samskipti við íslenzka skáta og sótt t.d. Vormót Hraunbda reglulega um árabil. Ein af brezku stdlkunam á afmæli í dag. Félagar hennar sáu það fyrir, að vart myndi auðvelt að halda henni afmælisboð hér á mótinu, svo þeir ákváðu bara að halda boðið strax fyrir mót. Afmælisveizlan fór svo fram á fimmtudagskvöldið síðasta að Hvassa- leiti 42. Skemmtu menn sér prýðilega og afmælisbarnið lék á als oddi, eins og sjá má á myndinni hérna við hliðina, en þar er hdn að skera afmælistertuna. Bretarnir - fjölmennastir erlendu skátanna. Færeyingarnir við komuna til Reykjavíkur.

x

Glanni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glanni
https://timarit.is/publication/1865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.