Góðan daginn - 21.02.1944, Síða 1

Góðan daginn - 21.02.1944, Síða 1
GOÐAN DAGllHN Útgefandi og ábyrgðarmaður: HANNES JÓNASSON III- árgangur. Mánudaginn 21. febrúar 1944. 1. tölublað. GðÐAN öAGiNN, kæru bræður og systur, kratar, kommúnistar, Sjálfstæðismenn, Framsóknarmenn og D-lista- menn. Vér óskum yður árs og friðar, góðrar afkomu og mikillar frjósemi á hinu nýbyrjaða ári. Það er orðið langt síðan vér höfum boðið Góðan daginn og ber margt til. í fyrsta lagi óvanalegar og ótrúlega miklar annir fyrir jólin vegna mikillar sölu cg er þó réttara að hafa ekki of hátt um það, því að nú mun skattanefnd- in farin að bora úr hlustunum, ef ske mætti, að hún heyrði eitthvað það, er gefa mætti henni aukin tilefni til þess að rengja framtölin. I öðru lagi höfum vér verið í hinum mestu önnum við að rukka náungann, því margir vildu fá krít fyrir jólin, þrátt fyrir miklar tekjur á árinu. Rukkunin hefur gengið prýðilega, því þó aur- arnir hafi ekki verið til í bili, þá hafa menn bara selt þeim Sigurði og Hafilða víxla. Þeir kaupa ótakmarkað, ef peningarnir eru ekki not- aðir í fyrirtæki fyrir utan bæinn og sýnir það hollustu þeirra fyrir bæinn og bæjarfélagið. Svo sem við má búast, hefur margt mikil- vægt. skeð nú undanfarið. Má þar fyrst minn- ast á hin stórfróðlegu skrif þeirra Erlendar og Jóhanns í Neista og Einherja, skortir þar hvórki rök né sálfræðilegar skýringar greinar- höfundanna hvors á öðrum, að ekki sé minnzt á málið sjálft, sem nú er ljóst hverjum asna. Þá eru ekki síður þýðingarmikil hin löngu skrif og miklu um sjálfstæðismálið í blöðunum. Ber þar ýmislegt á milli og skal það ekki rakið hér. Virðist svo, sem margir svartir bJettir séu á röksemdum beggja málsparta, hraðskilnaðar- manna og hægskilnaðarmanna, en einhver svartasti bletturinn á agitasjóninni mun þó vera sá, að hægskilnaðarmenn hafa nú notað hið saklausa og allt að því friðhelga pósthús hér til útbreiðslu á málgagni sínu, Varðbergi. Ekki dettur nokkrum í hug að kenna Jörgen- sen um þetta, Hlíðdal er þar um kennt, en hann er sagður vera einn af þeim 14 postulum, er ekki vilja skera strax á spottann, er ennþá tengir oss við konunginn og mun þó reyndar ekki vera nema bláþráður eftir. Það skal tekið fram hér, sem þó reyndar er á hvers manns vörum og alveg þykir sérstakt fyrirbrigði, að hið friðsælasta samkomulag var um langan tíma í bæjarstjórninni, eftir nýárið. Þykir það spá batnandi framtíð, en nokkurs ber að gæta. Á því tímabili, er friðurinn ríkti, voru þeir fjarverandi Erlendur, Þóroddur og Þormóður, en Axel einn megnaði ekki að rjúfa hinn ljúfa frið og djúpu rósemi, er ríkti í sál- um þeirra, er bæjarstjórnina skipuðu á þessu tímabili. Hlýtur þetta tímabil að hafa verið sem hið ágætasta sumarfrí fyrir bæjarstjór- ann, sem sífellt á í örðugu stríði við að halda draslinu saman. Mun sá maður oft vera þreytt- ur að kveldi, bæði á sál og líkama og er furða, hvað hann heldur holdum. Rotarianar hafa nýlega haldið árshátíð sína með mikilli prýði. Er það í frásögur fært, að engum hafi þurft að henda út, meðan á sam- komunni stóð og engan hafi lögreglan þurft að elta út í snjóskafl til þess að lemja hann þar. Er það allra manna mál, að samkoma þessi hafi verið hin veglegasta- Sá galli var þó á, að Hjartar var þar ekki sem söngstjóri, stjórnaði því Egiil söngnum og söng af bók, en Hjartar syngur jafnan allt upp úr sér- Eigi að síður tókst söngurinn ágætlega, teljum vér það tæpt í frásögn færandi, að þeír sem fjærst sátu söngstjóranum, voru allt að því einni hend- ingu á eftir í sumum lögunum. Forseti, bæjarfógeti G. Hannesson, stýrði borðhaldinu, Andrés stjórnaði dansinum, en Ól- afur læknir elti kvenfólkið á göngunum — til þess að fá það til að skrifa nöfn sín í gestabók klúbbsins. Hannes var með skæting um náung- ann, eins og honum er lagið, þar að auki var ekki laust við, að hann hvetti til ósiðsemi, og var því að vísu ekki illa tekið. Sigurjón var einskonar yfirhófstjóri og leysti það hlutverk sitt af hendi með mestu snilld. Annars hefur allt gengið sinn vana gang í bænum síðan á nýári. Vatn hefur ekki vantað nema hjá þeim, sem næst búa himninum, ljós- in hafa verið þetta lík því sem þau hafa áður verið í vetur, jafnaðarlega svona nokkurnveg- LANDSBÓKASAFN Jíl 156565

x

Góðan daginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Góðan daginn
https://timarit.is/publication/1868

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.