Góðan daginn - 21.02.1944, Blaðsíða 3
GÓÐAN DAGINN
3
Vísvitandi og viljandi er hér rangfært, aðeins
tii þess að rýra gildi bókarinnar og gera frá-
sögn hennar tortryggilegri. Er lítt skiljanlegt,
hvað fyrir ritdómaranum vakir með hörðum
dómum hans á bókinni og rangfærslum á efni
; hennar. Má vera, að einhver annar kafli bók-
arinnar hafi vakið andúð hans, þótt hann hafi
frekar kosið að láta hina saklausu kvenhatara
á Athosf jalli verða fyrir barðinu á sér í þessum
ritdómi.
Allar leturbreytingar mínar. Höf.
Blandaðir ávextir og
sveskjur
fást ennþá í
Kaupf élaginu
Undralögurinn 3
..Bor.ðaðu með okkur morgunverð, Anna
kemur strax,“ sagði Boris.
„Eg sá hana, þegar hún var á leiðinni til
morgunmessu,“ svaraði ég. „Hún var eins
björt og blómleg og liljan þarna — áður en
þú eyðilagðir hana.“
„Er það meining þín, að ég hafi eyðilagt
bljuna?“ spurði Boris alvarlegur.
„Eyðilagt hana, eða varðveitt hana frá
eyðiieggingu — hvað vitum við?“
Við sátum í horninu á vinnustofu Boris, ná-
lægt hinni ófullgjörðu hópmynd hans, „For-
lög“. Hann sat í legubekknum og lék sér að
myndhöggvarameitli um leið og hann horfði
á myndina.
>.Á meðal annarra orða,“ sagði hann, „ég
er búinn að dubba upp á „Ariadne" gömlu
þarna, og er víst neyddur til að senda hana
á sýninguna. Hún er það eina, sem ég lýk
við í ár, en eftir frægðina, sem ég hlaut fyrir
Madonnumyndina, skammast ég mín fyrir
að senda þessa-
„Madonna", sem var framúrskarandi ilsta-
Verk, og sem Anna hafði verið fyrirmyndin
að, hafði dregið að sér aðalathyglina á sýn-
lagunni árið áður- Eg l^it á „Ariadne", og
þótt hún væri mjög vel gerð og reglulegt
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
BÆKUR
Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Laust fyrir s.l. jól komu hingað tvær af árs-
bókunum fyrir 1943, Almanak fyrir 1944 og
Andvari. Þá kom einnig hin síðasta bók af árs-
bókunum fyrir 1942, síðara hefti af stjórnmála-
sögu, ennfremur Saga Islendinga, sjötta bindi.
Áskrifendur, sem ekki hafa vitjað þessara
bóka, eru vinsamlega beðnir að gera það sem
fyrst.
Eftir eru að koma út, fyrir árið 1943, tvær
bækur, bindi af Anna Karenina og Njála. Árs-
gjaldið fyrir 1943 er það sama og áður, kr.
10,00. Ekki er líklegt, að nokkur, sem kost ‘hef-
ur á, sleppi þessum sérstaklega ódýru bóka-
kaupum, auk þess sem bókin Anna Karenina
er þeim ónýt, sem fengið hafa hin fyrri hefti,
ef þeir ekki taka áframhaldið.
Hannes Jónasson.
Undralögurinn 4
listaverk, þá var ég þó Boris samþykkur
í því, að nú væri búizt við öðru og meira
af honum. Samt sem áður var ekki að hugsa
til að ljúka í tíma við hina fögru, en þó um
leið ægilegu mynd, er stóð við hliðina á mér
og enn var aðeins að fæðast út úr marmara-
blökkinni. „Forlög“ urðu að bíða þar til síðar.
Við vorúm stoltir af Boris Yvain. Við töld-
um hann sem einn af okkur og hann taldi sig
til okkar, af því hann var fæddur í Ameríku,
þótt faðir hans væri franskur og móðir hans
rússnesk. Allir í Beaux Arts kölluðu hann
Boris, en það voru aðeins tveir okkar, er
hann nefndi skírnarnafni, ég og Jack Scott.
Vel getur það verið, að það hafi einhver
áhrif haft á tilfinningar hans gagnvart
mér, að ég var ástfanginn af Önnu. Aldrei
höfðum við Boris þó minnzt á það. En eftir
að allt var afgert, og Anna með tárin í aug-
unum hafði sagt, að það væri Boris, sem
hún elskaði, fór ég heim til hans og ósk-
aði honum til hamingju. Hann tók mér ást-
úðlega, þótt hann ábyggilega vissi hvernig
öllu var varið. Vinátta hans var mér mikil
huggun. Eg held að Boris og Anna hafi
aldrei talað saman um afstöðu mína til
þeirra, en Boris þekkti hana áreiðanlega.