Góðan daginn - 22.12.1944, Qupperneq 3
GÖÐAN DAGINN
3
S
; > S
| Bjór |
Pilsner j
Hvítöl
Valsah l
Hindberjalímónaði j
jarðarberjalímónaði 1
Sítron |
Sódavatn j
Pepsi-Cola j
i: jólakerti j
í; Vindlar 1
jj Sælgæti j
I! GESTUR FANNDAL
?
DÖMUVESKI
25 % afsláttur.
Verzlun Péturs Björnssonar
BEZTA JÓLAGJÖFIN:
Karlmannaföt - Vetrarfrakkar
Verzl. Jónínu Tómasdóttur
NÝSKÖPUNIN
STUTTU PILSIN
Tízkan er breytileg. hún er eins og hjól sem
snýst. Eitt er uppi þessa stundina, annað hina.
Það er nú til dæmis með pilsin kvenfólksins.
Þegar eg var ungur voru þau höfð fótsíð og
það hefði þótt óviðeigandi og jafnvel hneykslan-
legt, ef sést hefði á mjóalegg kvenna, að eg nú
tali ekki um, upp á hné og mitt læri eins og nú
tíðkast. Nei, þeir partar kvenlíkamans, áttu að
vera huldir — það er að segja á almannafæri.
Mér líkar vel þessi nýja stuttpilsatízka, eg
var fljótur að finna kosti hennar. Næst brjóst-
um kvenna eru það kálfarnir sem vekja mesta
eftirtekt karlmanna. Sé þetta hvortveggja fagur
skapað, gerir minna til um andlitið. Brjóst og
kálfar eru þá sem fagurt fyrirheit um fram-
tíðina.
Fyrst þegar farið var að nota stuttu pilsin,
voru þau dæmd ósiðleg af- sumu þröngsýnu
fólki, en mín reynsla er sú, að breyzkleiki holds-
ins hafi ekki mikið aukist þótt þessi tízka hafi
verið tekin upp, máske svona rétt ríflega verið
haldið í horfinu, af yngri kynslóðinni, eða vel
það. Og það hljóta allir að sjá, að:
Þótt hné sýni konur, er hreint ekkert frekt,
að horfa’ á þau margur pilturinn kýs,
þá sér hann hve, alveg er aðdáanlegt,
hvað orðið er stutt upp í paradís.
Allt á að skapa upp á ný,
á öllu breyting gera,
Framsókn þessu framtaki í
fær þó ei að vera.
Sjálfstæðið þar upphaf á,
ei er því gjarnt að hrata,
við sköpunina lið því ljá
líðir bolsa og krata.
Gefin eru heilög heit,
sem hrifnir flestir gleypa,
um að í fagran andlitsreit
allt skuli landið steypa.
Svo heitin verði öll þau efnd,
sem ekki ielst neinn vandi,
kosin er merk og mikil nefnd
manna beztu á landi.
Er þar sérhver ágætur
allra þeirra knapa,
en þó beztur Erlendur,
alvanur að skapa.
Fögur blasir framtíðin
fyrir þjóðar sjónum,
en skærast þó ef „kköpuninn“
skapar menn úr flónum.
s. m.
s. m.