Heimili og skóli - 01.12.1955, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.12.1955, Blaðsíða 8
116 HEIMILI OG SKÓLI skitnum, rifnum og gráðugum krökk- um og þess háttar. Við gætum ef til vill verið ofurlít- ið sammála bæði þeim, sem geðjast og geðjast ekki að börnum þessum. Ef til vill gæti samúð vor og andúð sumpart verið því háð, hve mikið við sjálf höfum aflögum til að mæta af- lögu-krafti barnanna, og sumpart háð því, hvernig þessi aflögu-kraftur kem- ur í ljós? (birtist). Og ef til vill gætu jákvæð eða neikvæð viðbrögð vor aftur haft áhrif á börnin? Þannig að þau beiti rögg sinni og tápi á ólíkan hátt eftir því, hvaða andrúmslofts þau verða vör umhverfis sig. II. Hvers getum við vœnzi af börnum á þessu ,,gelgju-skeiði“ — og hver áhrif höfum við á þnu, við, sem eigum að vera þeirra „miljö“? (samfélag og umhverfi). Allt bernskuskeiðið hafa samvistir barnsins við umhverfi sitt síaukizt. Barnið víkkar veraldarsvið sitt, það heldur út í heiminn, áður en það kemst á fót, það heldur lengra og lengra, nálgast fleiri og fleiri hluti. Það mætir nýju fólki, ekki aðeins mömmu og pabba, heldur einnig frændum og frænkum, afa og ömmu, póstsendli, búðarfólki, lögregluþjóni o. s. frv. Og því fleira fólk sem barnið hittir, því fleiri hluti sem það fær í hendur, því meiri verða skilyrðin til þess, að það lendi í árekstri við ein- livern, skemmi eitthvað eða eyðileggi, — því fleiri verða „núningsfletirnir“. Þess vegna verða sífellt fleiri árekstr- ar bernskuáranna, og árekstrarnir verða sífellt harðari, þar sem hinir fullorðnu sjá nú ekki lengur fyrir sér „sætan barnsanga og yndislegan“, heldur „stóran slána“, jafnframt því sem barnið verður fjölorðara og beit- ir því við árekstrana, og verður einnig öflugra í árekstrunum. Því miður breytast ekki börnin og kröfur vorar til barnanna samstiga (í takt). Oss fullorðnu hættir svo við að halda, að það að vaxa sé sama sem að verða stærri og stærri, betri og betri, duglegri og duglegri, líkjast meir og meir hinum fullorðnu og verða meir og meir í samræmi við kröfur full- orðinna. Þess vegna aukum við árlega ofurlítið kröfur vorar til barnanna. „Þú sem ert svo stór“, er sagt. Og margt, er við gátum liðið yngri börn- um, þolum við alls ekki þessum stóru. Það er hættulegra að sjúga fingur núna, en meðan barnið var lítið, verra að gleyma að þakka, alvar- legra að berja minni félaga sinn, ljót- ara að vera óhreinn í eyrunum núna. — Og hið versta er einmitt það, að vöxtur fylgir alls ekki stigrétt og stöðugt frá betra til enn betra í aug- um fullorðinna. Vöxtur gengur skrykkjótt og kippótt, og „þroskun“ er oft einmitt í því fólgin, að maður varpar útbyrðis mörgu af því, sem hann hefur lært, og lendir í því breyti-viðhorfi að vera í minna sam- ræmi við kröfur og háttu fullorðinna. Oss fullorðnu virðist þetta afturför, og við verðum oft skelkuð og rugluð, þegar barnið, sem áður var svo dug- legt, er það alls ekki lengur. Þegar kröfur vorar aukast, og börnin sam- tímis fylgja miður reglum þeim, er þau hafa fengið, já, þá verður stund- um munurinn á því, sem við bjugg-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.