Sindur - 01.12.1941, Side 6

Sindur - 01.12.1941, Side 6
er mannskemmandi að leggja hendur á kenndan mann“. „Það er ekki á hverjum degi, sem hann smakkar vín. Hann er hættulaus hófdrykkjumaður þrátt fyrir allt“. Almenn blekking eiturlyfjaunnenda er að segja, að munur til hins betra sé á hófdrykkjumanni og ofdrykkjumanni. Það þarf ekki lengri og ábyrgðarlausari setningu en þessa til handa þeim, sem standa tæpt á börmum Bakkusarvítis, þó að skýringin sé augljós, að hófdrykkju- maður er í .99 tilfellum af 100 hættulegri en ofdrykkjumaður. Það er ekki hægt að ganga út frá hóf- drykkju yfirleitt. Hófdrykkjumenn eru fáir. Flestir þeirra, sem svo eru nefndir, eru það vegna þess, að vínþurrð er. Sá, sem er hófdrykkjumaður, í beztu merkingu þess orðs, er venjulega með mjög sterka skapgerð. Henni fylgja óhjá- kvæmilega margir kostir, sem margir virða hófdrykkjumanninn fyrir og vilja gjarna líkjast honum í einu og öðru. Hver vill ábyrgjast, að hugmyndin um hófdrykkju fljóti ekki með? En sá, sem liggur svínfullur dagsdag- lega fyrir hunda og manna fótum, er verijulega afskaplega fullkominn ræfill. Hann er djöfull maka sínum og börnum, í fyllstu merkingu þess orðs. En hefir af- ar fáa möguleika í hlutfalli við hóf- drykkjumanninn til að útbreiða eitur- lyfjanotkun. Takmarkið liggur því ekki úti í vín- flóðinu, heldur er hitt: að smakka aldrei vín. Flestum þykir hangikjöt góður matur og finnst of sjaldan að smakka þa'ð á ný- árinu, páskunum og einu sinni eða tvis- var þar fyrir utan. En það hangikjöt er nú af sauðkindum. En finnst ykkur ekki nóg um hitt hangikjötið? Það er ekki sauðkindahangi- kjöt. Heldur þetta síhangandi, síreyktaog reykjandi hangikjöt. Menn éta það ekki, en það étur menn. Það étur heilann, hjartað og lungun og fleira smávegis, en lætur afganginn ofan í hana móður jörð og stingur torfhnaus í gatið. Sumir álíta tóbaksnautn ekki eins illa og drykkjuskap. Ætli þeir hinir sömu viti, hversu oft eða sjaldan tóbaksnotkun leiðir til áfengisnautnar? Ætli Bakkusi hafi ekki einhvern tíma borizt brattara en að fella þann, sem kemur til heilsulinda hans með lamaðan heila og lélega dóm- greind þar að auki. Það er mjög eðlilegt að ráðast allra fyrst á tóbaksnautnina. Hún er almenn- ari en áfengisnautnin. Áhrifin eru því víðtækari. Hún er sídrepandi og seig- drepandi og grefur alltaf, undantekning- arlaust, undan hreysti og velferð manna. Ekki einungis þeirra, sem ofurselja sig áhrifum hennar og afleiðingum, heldur og þeirra, sem sjá ferilinn og hvert stefnt er. Eiturlyfjaunnendur benda á, að nær sé fyrir þessa siðameistara að ráðast á glæpalýðinn o. s. frv., en að áreita þá með pípu þeirra og pyttlu. En slík álykt- un er álíka hyggileg og að klagast um, að lækirnir renna ekki upp í móti. Eða neita þeir þeirri staðreynd, að glæpir, saur- lfnaður og hvers kyns ómenning á rætur sínar að rekja til eiturlyfjanautnar áber- andi meiri hluta? Og að líkum ekki síður til tóbaksnutnar en áfengis. Þetta eru staðreyndir, sem að vísu er hægt að neita, en verður ekki hrundið með rökum. Sú manntegund, sem mælir með og út- breiðir. eiturlyf, er óværðin á alþjóðar- líkamanum. Svo sem almenningsálitið gat breytzt gegn mannalúsinni, getur það og þarf að snúast meira en þegar er orðið gegn sníkjudýrum þjóðfélagsins. Þeir, sem fyrst eiga leik eru núverandi æskumenn landsins og af þeim auðvitað fyrst og fremst skólamenn. Þeir hafa beztu tækifærin til samráða og samstarfs. Samtökin þurfa ekki að fara út um þúfur þó að menn fari úr skóla. Nemendasam- bönd sjá að nokkru leyti fyrir því, þó að meiru ráði þar um innræti einstaklings- ins. 6 SINDUR

x

Sindur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindur
https://timarit.is/publication/1883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.