Sindur - 01.12.1941, Blaðsíða 9

Sindur - 01.12.1941, Blaðsíða 9
raun til að sleppa úr örmum fylginautar síns, en tekst ekki. Þórður ákveður nú að skerast í leikinn, og gengur fram um leið og hann segir: „Slepptu stúlkunni, Jón, hún vill sýnilega ekki vera með þér“. „Hvað kemur þér stúlkan við?“ svarar Jón. „Mér kemur allt við, sem á bryggjunm skeður í nótt“, segir Þórður. „Þú heldur víst að þú sért eitthvað", svarar Jón um leið og hann gengur af stað, þrátt fyrir mótþróa Dísu. Gengur þá Þórður framan að honum eins og af til- viljun og bregður fæti fyrir Jón, en sleipt var á bryggjunni og fellur hann bölvandi áfram. En um leið og Dísa losnar, hleyp- ur hún að „brakkanum“, opnar dyrnar og snarast inn að rúmi Árna og segir honum hversu farið hafi. Jón rís nú á fætur og ætlar að ráðast að Þórði en hann býst þegar til varnar. í því bar þar að nokkra félaga Jóns og höfðu þeir hann ofan af því að hefna sín á Þórði í það sinn, og fylgdist hann með þeim á burt, en fullvissaði Þórð um, að hann mundi hefna sín síðar, og kvað Þórður Jjionum heimilt að reyna, hversu sem tæk- íst. ; Nokkru seinna komu þau út úr „brakk- anum“, Árni og Dí'sa. „Mér finnst þú ættir nú að sjá til henn- ar alla leið, Árni minn“, sagði Þórður um leið og þau gengu fram hjá honum. „Það hefi ég nú hugsað mér að gera“, anzaði Árni, „og þakka ég þér fyrir að þú skyldir stjaka við honum Jónka, svo að hann sleppti Dísu, og vonast ég til að þig þurfi ekki að iðra þess, því að ég er frændi hans Sigurðar verkstjóra hérna, og mun ég hafa þau áhrif á karlinn, að hann láti þig hafa eitthvað að gera, á með- an síldin veiðist“. Þórður sagðist nú ekki hafa gert þeta í þeim tilgangi að hagnast á því. Nú líður tíminn, menn koma og fara. Það er eins og fólkið ætli ekki að nota nóttina til annars en að skemmta sér, gleymi alveg að sofa. Það ætlar sjálfsagt að nota sunnudaginn til þess. Allt í einu tekur Þórður eftir því að .tveir menn eru að læðast hjá tunnustafla, þar sem skugga bar á. Hann snýr sér þeg- ar að þeim, og um leið og þeir verða þess varir, að hann hefir tekið eftir þeim, þá ganga þeir á móti honum. „Viltu selja okkur tunnu, manni?“ segja þeir: „Nei, það á ég ekkert með, þið getið komið að degi til og verzlað11. „Gefðu okkur þá eina“. „Nei“, svarar Þórður, „og burt með ykk- ur héðan“. „Haltu þér saman“, anza þeir, „við meg- * um vera þar sem okkur sýnist". „Þið hafið ekkert hér að gera“, svarar Þórður. „Hafðu þig hægan, eða við látum þig í einhverja tunnuna og veltum henni svo út á sjó“, sögðu þeir aðkomnu um leið og þeir gerðu sig líklega til þess að taka á Þórði, en hann snýr sér þá snarlega frá þeim og opnar vatnskrana með áfastri slöngu, og beinir henni með streymandi vatninu að piltunum, og kom þeim þessii árás mjög á óvart og brugðust reiðir við, og ætluðu nú að ráðast að Þórði, en hann varði sig með vatnsslöngunni og náðu þeir ekki til að loka fyrir vatnið, þó að þeir hefðu fullan hug á því.. Óvíst er hversu þessu hefði lyktað, hefði nú ekki svo borið við, að Árni kom í þessu frá því að fylgja Dísu, og gekk hann í lið með Þórði að koma piltunum burtu. Þeir sáu nú sitt óvænna og hörfuðu af bryggjunni, blautir og reiðir. Þegar morgnaði og aðrir komu á fætur, gekk Þórður til hvílu. Og síðar um dag- inn, er hann hafði sofið nokkuð, fór hann til vinny. Þá sagði Árni honum, að Sig- urður verkstjóri hefði látið telja á bryggj- unni um morguninn og hefði allt verið í stakasta lagi. Og hvort sem það var nú Árna að þakka eða ekki, þá fékk Þórður það starf áfram að vaka á bryggjunni, og er því líklegt, að hann hafi lent í fleirí nætur-ævintýrum. Eilífur Öm. S I N D U R 9

x

Sindur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sindur
https://timarit.is/publication/1883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.