Læknaneminn - 23.04.1940, Blaðsíða 17

Læknaneminn - 23.04.1940, Blaðsíða 17
læknisneminn. 7 1. tbl. 1. árg. 194o að hjálpa K-vitamininu í því efni. Við meckaniskan icterus trufl- ast því resorption K-vit., protrombin blóðsin lækka, en það leið- ir til þess, hættara er við blæðingu en ella. Það er eihkum þegar icterus hefir staðið mjög.. lengi að skortur kemur fram á K-vitam- ini.Er því þýðingarmikið, að sjúkl. fái K-vitamintherapie áður en opertion fer fram. Nauðsynlegt er að vita um protrombininnihald blóðsins og haga therapiunni eftir því. K-vitaminið er extraher- að með benzini, og margskonar preparöt hafa þegar verið báin til, og eru komin á markaðinn. Með doseringuna er lítil reynsla fengin enn. Til þess aö fá skjÓta hækkun á protrombininu,hafa menn gefið sem nemur extraction úr 3- 4oo gr. af alfalfa. Bezt er að gefa það per os,, en jafnframt þarf að gefa gallsölt með , og virðist vera misjafnt hvað mikið þarf af þeim. Protrombin blóðsins eykst vanalega eftir 2- 3 daga. K. Jóhannesson. KAUPTAXTINN Ymsir læknisnemar hafa undanfarið spurt um kauptaxtann og ráðn- ingarlcjör læknisnema úti á landi. Á síðasta fundi félagsins var hann til umræðu, og ákveðinn þannig: Altaf fríar ferðir og fritt uppihald. 1. hluti kaup x peningum kr. o 2. M tt i» tt u 15o 3. " " " " " 25o l.árs. 3. " " " " " 3oo 2 .árs. Gildir þetta fyrir þá læknisnema, sem vinna með læknum. Kaup vikars., sé 35o,oo kr. og sömu hlunnindi og að ofan greinir. K. Strand. LESTUR TIMARITA. Vegna húsnæðisleysis eru bækur og tímarit deildarinnar geymd á fleiri en einum stað, og því oft erfitt að átta sig á hvað til er af slíku. Háskólinn á talsvert til af þeim þótt mikið vanti. Tímaritin flytja nýjungar, en eru jafnframt sígild heimild þeg- ar studera þarf eitthvert viðfangsefni ýtarlega. Þótt að stud- entar hafi nóg að starfa við lestur námsbókanna, ættu þeir samt að verja nokkrrn tíma til lesturs þeirra bæði í ménntunarv skyni og til dægradvalar. Þeir, sem ætla sér að verða læknar, verða að kunna að studera, og verða að studera,og betra er að byrja sem fyrst á því.^Þegar menn lesa heima hjá sér, sjá þeir oft vitnað til ýmissa tímarita, og er þá mjög þægilegt að geta strax séð hvort þau muni vera til hér á söfnunum. Einnig getur komið sér vel að vita hvað til er á söfnunum, þegar menn eru að velja sér til kaups^eða áskrifta einhver tfmarit, svo að það verði ekki alveg út í bláinn. Blaðið hefir tekið að sér að birta áframhald- andi skrá yfir þau tímarit, sem við höfum aðgang að. Fr. 6,

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.