Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Síða 3

Ferðir - 01.04.1942, Síða 3
pERÐIR BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKU REY RAR 1. tbl. Apríl 1942. 3. árg. Glerápdalup Á seinni árum hafa ferðir Akureyringa á Glerárdal færzt mjög í vöxt. Einkum er það skíðafólk bæjarins, sem leitar þangað á vetrum, því að þar er venjulegast snjó að finna, þótt autt sé á láglendi, og dalurinn er að öllu leyti hið á- kjósanlegasta skíðaland. Þrír skíðaskálar hafa verið reistir við mynni dalsins, Skíðastaðir, eign félags, sem kennir sig við skálann, Fálka- fell, eign skátanna og Utgarður, sem er eign Menntaskól- ans á Akureyri. Á Skíðastöðum er einkum mannmargt um stórhátíðir, er áhugamenn og -konur verja þar leyfi sínu. En í Utgarði er oft fjölmenni um hverja helgi að vetrinum, enda eru Utgarðsferðir einn helzti og vinsælasti þátturinn í félagslífi menntaskólanema. Skíðastaðir standa í 388 m. og Fálkafell í 370 m. hæð í brún Súlumýra, sem er 500—600 m. hátt sléttlendi, að kalla má. Súlumýrar eru hið skemmtilegasta land til skíðagöngu, enda mikið sóttar af Skíðastaðamönnum og öðrum. Af mýrunum hallar jafnt upp að Súlum, en þær eru venjulega eitt helzta takmark þeirra, sem á Skíða- stöðum dvelja. Frá Útgarði (300 m.) er venjulegast gengið á Vind- heimajökul, þegar um fjallgöngu er að ræða. Er það tals- vert torsóttari leið en á Súlur, enda hæðin meiri, ef farið er alla leið upp á Strýtu, sem áður fyrr var álitin hæsta fjall við Eyjafjörð, meðan ekki voru til nákvæmar hæða-

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.