Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 3
pERÐIR
BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKU REY RAR
1. tbl.
Apríl 1942.
3. árg.
Glerápdalup
Á seinni árum hafa ferðir Akureyringa á Glerárdal færzt
mjög í vöxt. Einkum er það skíðafólk bæjarins, sem leitar
þangað á vetrum, því að þar er venjulegast snjó að finna,
þótt autt sé á láglendi, og dalurinn er að öllu leyti hið á-
kjósanlegasta skíðaland.
Þrír skíðaskálar hafa verið reistir við mynni dalsins,
Skíðastaðir, eign félags, sem kennir sig við skálann, Fálka-
fell, eign skátanna og Utgarður, sem er eign Menntaskól-
ans á Akureyri. Á Skíðastöðum er einkum mannmargt um
stórhátíðir, er áhugamenn og -konur verja þar leyfi sínu.
En í Utgarði er oft fjölmenni um hverja helgi að vetrinum,
enda eru Utgarðsferðir einn helzti og vinsælasti þátturinn
í félagslífi menntaskólanema.
Skíðastaðir standa í 388 m. og Fálkafell í 370 m. hæð
í brún Súlumýra, sem er 500—600 m. hátt sléttlendi, að
kalla má. Súlumýrar eru hið skemmtilegasta land til
skíðagöngu, enda mikið sóttar af Skíðastaðamönnum og
öðrum. Af mýrunum hallar jafnt upp að Súlum, en þær
eru venjulega eitt helzta takmark þeirra, sem á Skíða-
stöðum dvelja.
Frá Útgarði (300 m.) er venjulegast gengið á Vind-
heimajökul, þegar um fjallgöngu er að ræða. Er það tals-
vert torsóttari leið en á Súlur, enda hæðin meiri, ef farið
er alla leið upp á Strýtu, sem áður fyrr var álitin hæsta
fjall við Eyjafjörð, meðan ekki voru til nákvæmar hæða-