Ferðir - 01.04.1942, Side 4
2. blaðsíða
[Ferðir
mælingar. Af því má þó nokkuð ráða um það hve leiðin
hefir þótt erfið.
Síðan göngubrú kom á Glerá rétt fyrir innan skálana,
er orðið auðveldara að ganga á víxl yfir dalinn.
Lengri og erfiðari leið frá skíðaskálunum er fjallganga
á Kerlingu (1538 m.). Þarf til þeirrar ferðar langan og
erfiðan dag, enda er þangað sjaldnar sótt. Þá má nefna
markmið eins og Tröllafjall og Glerárdalsbotn, sem fáir
setja sér aðrir en forvitnir náttúrufræðingar og síkvikir
fjallaljósmyndarar, en báðir eru ánægðir með sinn hlut.
Við skulum nú yfirgefa snjóinn og hugsa okkur stadda
að sumarlagi uppi á fjallshryggnum inn af Súlum. Við
okkur blasa himingnæfandi tindar allavega við dalinn.
Sumir leggja allt í hæðina og sjást lítt fyrir, en aðrir vita
hvað þeim er óhætt og sitja makindalegir á breiðum og
traustum fjallsöxlum. Sumir horfa þóttafullir fram af
sextugum, ókleifum hömrum niður í friðsælan dalinn, en
aðrir eru lítillátir og hjúfra sig með ávölum barmi að daln-
um sínum.
Ur dalaskvompum mæna smájöklarnir til okkar í him-
inbláu sakleysi, en veraldarvanir stærri jöklar ygla sig
framan í okkur og bæta svolitlu við urðina, sem þeir eru
alltaf að bera fram. Biksvört hamrabeltin togast á við
hvíta snjódílana, en augað verður á báðum áttum og ósk-
ar, að hvorug sigri. Og bleikrauðar skriður lýsa upp sviðið
og minna á eldinn, sem undir býr og er voldugastur allra.
Hvað verður um snjóinn, ef hann birtist, eins og fyrr meir?
Getur hann ekki einnig brætt klettana og kæft dalinn, ef
honum sýnist?
En niðri í dalnum rennur Glerá og lítur ekki upp. A
vetrum er hún tær og meinlaus og ranglar þá í kæruleysi
til og frá um eyrarnar, eða hún glettist við ísinn og fellur
honum jafnvel í fang sem snöggvast. En nú er hún svört
og þrútin af öllu erfiðinu, sem leysingarnar valda henni.
Og henni finnst allt til trafala og seinagangur á öllu. Stór-
grýtið þvælist fyrir henni og olnbogar sig áfram, en sm^-