Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Síða 4

Ferðir - 01.04.1942, Síða 4
2. blaðsíða [Ferðir mælingar. Af því má þó nokkuð ráða um það hve leiðin hefir þótt erfið. Síðan göngubrú kom á Glerá rétt fyrir innan skálana, er orðið auðveldara að ganga á víxl yfir dalinn. Lengri og erfiðari leið frá skíðaskálunum er fjallganga á Kerlingu (1538 m.). Þarf til þeirrar ferðar langan og erfiðan dag, enda er þangað sjaldnar sótt. Þá má nefna markmið eins og Tröllafjall og Glerárdalsbotn, sem fáir setja sér aðrir en forvitnir náttúrufræðingar og síkvikir fjallaljósmyndarar, en báðir eru ánægðir með sinn hlut. Við skulum nú yfirgefa snjóinn og hugsa okkur stadda að sumarlagi uppi á fjallshryggnum inn af Súlum. Við okkur blasa himingnæfandi tindar allavega við dalinn. Sumir leggja allt í hæðina og sjást lítt fyrir, en aðrir vita hvað þeim er óhætt og sitja makindalegir á breiðum og traustum fjallsöxlum. Sumir horfa þóttafullir fram af sextugum, ókleifum hömrum niður í friðsælan dalinn, en aðrir eru lítillátir og hjúfra sig með ávölum barmi að daln- um sínum. Ur dalaskvompum mæna smájöklarnir til okkar í him- inbláu sakleysi, en veraldarvanir stærri jöklar ygla sig framan í okkur og bæta svolitlu við urðina, sem þeir eru alltaf að bera fram. Biksvört hamrabeltin togast á við hvíta snjódílana, en augað verður á báðum áttum og ósk- ar, að hvorug sigri. Og bleikrauðar skriður lýsa upp sviðið og minna á eldinn, sem undir býr og er voldugastur allra. Hvað verður um snjóinn, ef hann birtist, eins og fyrr meir? Getur hann ekki einnig brætt klettana og kæft dalinn, ef honum sýnist? En niðri í dalnum rennur Glerá og lítur ekki upp. A vetrum er hún tær og meinlaus og ranglar þá í kæruleysi til og frá um eyrarnar, eða hún glettist við ísinn og fellur honum jafnvel í fang sem snöggvast. En nú er hún svört og þrútin af öllu erfiðinu, sem leysingarnar valda henni. Og henni finnst allt til trafala og seinagangur á öllu. Stór- grýtið þvælist fyrir henni og olnbogar sig áfram, en sm^-

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.