Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Page 5

Ferðir - 01.04.1942, Page 5
Ferðir] 3. blaðsíða völurnar troðast undir og kremjast svo hljóðin heyrast upp úr ánni. Stundum ryðst áin fram um hyldýpisgljúfur og stynur af átökunum, eða hún kastar mæðinni á sléttum eyrunum. Mynd 1. Foto E. Si^ur^eirsson. Vtsyni til Kerlingar frá Bungu. Með haustinu rennur fyrst af henni móðurinn og þá færist ekki aðeins friður yfir ána heldur allan dalinn og bergþursana, sem gæta hans. Þá er óendanlegur, voldugur friður yfir allri hinni mjallhvítu- fjallatign. Tindarnir renna saman við himininn og dalurinn verður takmarka- laus og línur dalsins verða að einni mýkt og hreinleika. Af efstu tindunum sér út yfir mjallahvíta eilífð, aðeins í norðrinu slær sjórinn sínum æfintýrabláma á loft upp. Það sem mest gagntekur mann er friðurinn í náttúr- unni. Hann grípur manninn svo föstum tökum, að hann þorir naumast að tala. Hann hlustar. Og þá heyrir hann háa, hreina tóna, sem gera loftið lifandi inni á milli fann- hvítra fjallanna. Hvar hefir hann heyrt þessa hljóma áð- ur? Eru það ekki einmitt gömul norræn alþýðulög, sem

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.