Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 7

Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 7
Mynd 3. Foto E. Sigurgeirsson. Útsýni trá Syðri-Súlum. Talið frá vinstri til hægri blasa við Þríklakk- ar, Bóndi, Kerling, Lambárdalsöxl og Glerárdalshnjúkur. Hólsfjöll og niður í Mývatnssveitina í orðsins eiginlegu merkingu. Þá blasa við Snæfell, Herðubreið, Dyngjufjöll og Kverkfjöll í miðri norðurbrún Vatnajökuls. Síðan loka tindrandi jökulkrúnurnar sjóndeildarhringnum til suð- austurs, suðurs og suðvesturs. Hvað margir Akureyringar hafa staðið á þessum sjón- arhól? Hvað margir skoðað skriðjökla, staðið undir þver- hníptum, hrikalegum björgum, notið sólskinsins í háfjalla- dal? Og þó er þetta allt svo að segja við hlaðvarpann og auðsótt, ef rétt er að farið. í því skyni þarf að reisa skála innarlega á Glerárdal. Þar yrði hafzt við einn eða fleiri daga, gengið á fjöllin í kring eða stundaðar skíðaiðkanir í beztu brekkum, sem kosnar verða. — Glerárdalur er um 16 km. langur, en frá Akureyri inn í dalbotn eru um 20 km. Hæðin í mynninu, við Laugarhól, er 230 m. Þar er komið á slétta mela, gamlar áreyrar frá því er jökull innan úr Eyjafirði lá fyrir framan Glerárdal á seinustu ísöld. Er sá jökull hvarf tók áin og lækirnir að grafa sig niður í malareyrarnar og nú eru þær sundur-

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.