Ferðir - 01.04.1942, Qupperneq 7
Mynd 3.
Foto E. Sigurgeirsson.
Útsýni trá Syðri-Súlum. Talið frá vinstri til hægri blasa við Þríklakk-
ar, Bóndi, Kerling, Lambárdalsöxl og Glerárdalshnjúkur.
Hólsfjöll og niður í Mývatnssveitina í orðsins eiginlegu
merkingu. Þá blasa við Snæfell, Herðubreið, Dyngjufjöll
og Kverkfjöll í miðri norðurbrún Vatnajökuls. Síðan loka
tindrandi jökulkrúnurnar sjóndeildarhringnum til suð-
austurs, suðurs og suðvesturs.
Hvað margir Akureyringar hafa staðið á þessum sjón-
arhól? Hvað margir skoðað skriðjökla, staðið undir þver-
hníptum, hrikalegum björgum, notið sólskinsins í háfjalla-
dal? Og þó er þetta allt svo að segja við hlaðvarpann og
auðsótt, ef rétt er að farið. í því skyni þarf að reisa skála
innarlega á Glerárdal. Þar yrði hafzt við einn eða fleiri
daga, gengið á fjöllin í kring eða stundaðar skíðaiðkanir í
beztu brekkum, sem kosnar verða. —
Glerárdalur er um 16 km. langur, en frá Akureyri inn
í dalbotn eru um 20 km. Hæðin í mynninu, við Laugarhól,
er 230 m. Þar er komið á slétta mela, gamlar áreyrar frá
því er jökull innan úr Eyjafirði lá fyrir framan Glerárdal
á seinustu ísöld. Er sá jökull hvarf tók áin og lækirnir að
grafa sig niður í malareyrarnar og nú eru þær sundur-