Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Síða 9

Ferðir - 01.04.1942, Síða 9
Ferðir] 7. blaðsíða Lambárdalsöxl er merkileg fyrir það, að í henni finnst mikið af steingerðum trjábolum inni á milli laga. Frá henni og sennilega fleiri stöðum hafa svo bútar þeir borizt, sem oft finnast á Glerárdal. Aldur þessara viðarsteina skiptir vafalaust milljónum, ef ekki tugum milljóna ára. Þegar ganga skal á Kerlingu er um margar leiðir að velja. Hafi fyrst verið gengið á Súlur, má halda inn hrygg- inn suður frá þeim, fara vestur af honum við Bónda og niður í Lambárdalinn, en stefna síðan upp jökulinn í skarðið milli Kerlingar og Lambárdalsaxlar. Greiðfarnasta leiðin frá skíðaskálunum liggur þó inn með Súlnahömrum á Lambárdalsjökulinn. I þriðja lagi má fylgja ánni inn á móts við Lambárdal, en á þeirri leið er yfir mörg og djúp þvergil að fara, hvorum megin ár, sem er, og tefja þau mjög ferðina. Er komið er í áðurnefnt skarð, er farið upp mjóan rinda með hömrum á vinstri hönd, en brattri hlíð á hina. (Leið- in sézt greinilega á miðri myndinni). Liggur þarna venjulegast harðfenni á efsta kaflanum, sem nokk- þarna venjulegast harðfenni á efsta kaflanum, sem nokk- uð getur verið varasamt. Auðsóttast á Kerlingu frá Akur- eyri er, ef farið er með bíl inn í mynni Finnastaðadals innan við Grund. Þaðan er lagt upp til fjallgöngunnar austan Lambár. (Þess ber að gæta, að í og við Glerárdal eru fimm Lambár). Ur Lambárbotninum má ganga beint af augum upp snarbratta hlíð og er þar einnig upp harð- fenni að fara. Skemmtilegasta leiðin fyrir skíðafólk mun vera hin síð- asttalda, ef farin er Súlna-leiðin til baka. Liggur þá síðari hluti leiðarinnar um nær óslitnar brekkur frá Súlum eða Krummunum niður undir Akureyri. Kerling er að vestan aðskilin frá Glerárdalshnjúk (1338 m.) með djúpu skarði (1050 m. yfir sjó), en það er fyrir botni Finnastaðadals. Vestan við Glerárdalshnjúk teku'r við hæðótt land 12—1300 m. yfir sjó. Eru þar á- gætar skíðabrekkur, sennilega mestan hluta árs. Norður

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.