Ferðir - 01.04.1942, Side 12
10. blaðsíða
[Ferðii'
ingu eða á jökulinn í dalbotninum. Þessi staður er 4—5
tíma gang frá Akureyri og hygg ég að ákjósanlegra skála-
stæði sé vandfundið á innanverðum Glerárdal. Það ætti
að vera takmark ferðafélags vors að reisa þarna myndar-
legan fjallaskála.
A 3 km. svæði utan við Tröllafjall takmarkast dalur-
inn ar 1400 m. háum eggjum allt að Kistu (1458 m.), en
frá þeim eru ýmist brattar eða aflíðandi brekkur niður að
Glerá.
Sunnan við Kistu rennur Fremri-Lambá, en Heimari-
Lambá norðan megin. Hún kemur undan jökli, sem nagar
rætur Strýtu (1447 m.). Af jöklinum upp á Strýtu er
brött, en vel fær leið. Norðan undir Strýtu liggur Vind-
heimajökull í djúpum dalbotni. Venjuleg leið á Strýtu
liggur af Vindheimajökli norðaustan á tindinn og er þar
eggjar og hamrastalla upp að fara.
Austur af Vindheimajökli er hæð, sem oft er nefnd
Bunga (1376 m.), en norðaustan í henni er lítill jökull,
sem rennur í tjörn eina og fljóta á henni ísjakar á sumrin.
Fjallið út með dalnum norður frá Bungu nefnist einu
nafni Hlíðarfjall, en í því eru dalsmegin nokkrar skálar,
sem hafa sérstök nöfn. Syðst er Hlíðarskál. Efst í henni í
1100 m. hæð hefir fundist surtarbrandur. Þá eru Reithól-
ar, sem takmarkast að norðan af Mannshrygg, en milli
hans og Stórahnjúks eru Hrappstaðaskálar, og er þá kom-
ið út úr Glerárdal.
A páskunum 1942.
Trausti Einarsson.