Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 12

Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 12
10. blaðsíða [Ferðii' ingu eða á jökulinn í dalbotninum. Þessi staður er 4—5 tíma gang frá Akureyri og hygg ég að ákjósanlegra skála- stæði sé vandfundið á innanverðum Glerárdal. Það ætti að vera takmark ferðafélags vors að reisa þarna myndar- legan fjallaskála. A 3 km. svæði utan við Tröllafjall takmarkast dalur- inn ar 1400 m. háum eggjum allt að Kistu (1458 m.), en frá þeim eru ýmist brattar eða aflíðandi brekkur niður að Glerá. Sunnan við Kistu rennur Fremri-Lambá, en Heimari- Lambá norðan megin. Hún kemur undan jökli, sem nagar rætur Strýtu (1447 m.). Af jöklinum upp á Strýtu er brött, en vel fær leið. Norðan undir Strýtu liggur Vind- heimajökull í djúpum dalbotni. Venjuleg leið á Strýtu liggur af Vindheimajökli norðaustan á tindinn og er þar eggjar og hamrastalla upp að fara. Austur af Vindheimajökli er hæð, sem oft er nefnd Bunga (1376 m.), en norðaustan í henni er lítill jökull, sem rennur í tjörn eina og fljóta á henni ísjakar á sumrin. Fjallið út með dalnum norður frá Bungu nefnist einu nafni Hlíðarfjall, en í því eru dalsmegin nokkrar skálar, sem hafa sérstök nöfn. Syðst er Hlíðarskál. Efst í henni í 1100 m. hæð hefir fundist surtarbrandur. Þá eru Reithól- ar, sem takmarkast að norðan af Mannshrygg, en milli hans og Stórahnjúks eru Hrappstaðaskálar, og er þá kom- ið út úr Glerárdal. A páskunum 1942. Trausti Einarsson.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.