Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Page 13

Ferðir - 01.04.1942, Page 13
Ferðaáætlun Ferðafélags Akureyrar 1942 1. íerö, 22. marz. Vaðlaheiði — Hrossadalur. Ekið að Varðgjá, gengið þaðan á Vaðlaheiði, norður í Hrossadal og heim um Þórustaðaskarð. 2. ferð, 12. apríl. Kambsskarð. Ekið að Hólum í Oxnadal, gengið um Hóladal, Kambs- skarð og niður Skjóldal að Gilsbakka. Þaðan ekið heim. 3. íerð, 3. maí. Gljúfurárjökull. Ekið að Barká, gengið upp Ytri-Tungudal á Gljúfurár- jökul, norður á Dýjafjallshnjúk og niður að Dagverð- artungu. Þaðan ekið að Möðruvöllum og heim. 4. ferð, 23.—25. maí. Torfafell. Ekið að Hólsgerði og gist þar í tjöldum. Gengið á Torfa- fell. Þaðan er gott útsýni vesturyfir Skagafjarðardali, til Hofsjökuls, suður um fjöllin austan hans allt til Dyngjufjalla og Herðubreiðar. 5. ferð, 6.—7. júní. Reykjahverfi — Tjörnes. Ekið að Hveravöllum í Reykjahverfi og gist þar. A sunnudaginn ekið norður að Hallbjarnarstöðum á Tjör- nesi og gengið þar um nágrennið. (Sjá lýsingar i síðustu Árbók F. F. L). 6. ferð, 13.—14. júní. Vegagerð. Ekið að eyðibýlinu Ulfá og unnið þar í nágrenni að vegagerð.

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.