Ferðir - 01.04.1942, Qupperneq 13
Ferðaáætlun
Ferðafélags Akureyrar 1942
1. íerö, 22. marz. Vaðlaheiði — Hrossadalur.
Ekið að Varðgjá, gengið þaðan á Vaðlaheiði, norður í
Hrossadal og heim um Þórustaðaskarð.
2. ferð, 12. apríl. Kambsskarð.
Ekið að Hólum í Oxnadal, gengið um Hóladal, Kambs-
skarð og niður Skjóldal að Gilsbakka. Þaðan ekið heim.
3. íerð, 3. maí. Gljúfurárjökull.
Ekið að Barká, gengið upp Ytri-Tungudal á Gljúfurár-
jökul, norður á Dýjafjallshnjúk og niður að Dagverð-
artungu. Þaðan ekið að Möðruvöllum og heim.
4. ferð, 23.—25. maí. Torfafell.
Ekið að Hólsgerði og gist þar í tjöldum. Gengið á Torfa-
fell. Þaðan er gott útsýni vesturyfir Skagafjarðardali,
til Hofsjökuls, suður um fjöllin austan hans allt til
Dyngjufjalla og Herðubreiðar.
5. ferð, 6.—7. júní. Reykjahverfi — Tjörnes.
Ekið að Hveravöllum í Reykjahverfi og gist þar. A
sunnudaginn ekið norður að Hallbjarnarstöðum á Tjör-
nesi og gengið þar um nágrennið. (Sjá lýsingar i síðustu
Árbók F. F. L).
6. ferð, 13.—14. júní. Vegagerð.
Ekið að eyðibýlinu Ulfá og unnið þar í nágrenni að
vegagerð.