Ferðir - 01.04.1942, Síða 14
12. blaðsíða
[Ferðir
7. ferð, 20.—21. júní. Ásbyrgi.
Ekið til Asbyrgis og gist þar. Daginn eftir gengið um
nágrennið.
Þeir, sem heldur vilja dvelja á Þeistareykjum, geta
farið úr bílunum á austurleið við Sæluhúsmúla, gengið
til Þeistareykja og gist bar í sæluhúsinu.
8. ferð, 27.—28. júní. Fnjóskadalur.
Ekið að Reykjum. Einnig farið á hestum um Bíldsár-
skarð að Reykjum og gist þar. Daginn eftir farið suður
í Bleiksmýrardal og heim um Gönguskarð og Garðsár-
dal.
9. ferð, 4.—5. júlí. Vegagerð.
Ekið í Arnarstaðatungur og unnið þar að vegagerð.
10. ferð, 4.—12. júlí. Fjallaferð (á hestum).
Farið úr Eyjafirði suður um Vatnahjalla, Laugarfell,
Arnarfell, Nauthaga, Gljúfurleit og niður í Gjána í
Þjórsárdal og sömu leið til baka.
11. íerð, 4.—12. júlí. Suðurlandsferð (í bílum).
Helztu viðkomustaðir: Vatnsdalshólar, Hreðavatn,
Hvanneyri, Reykholt, Húsafell, Þingvellir, Þrastalund-
ur og Þjórsárdalur. — A sama tíma kemur „fjallahóp-
urinn“ í Þjórsárdal og geta þá nokkrir skipt um farar-
tæki, þannig, að þeir, sem fóru á hestum suður fari í bíl-
um norður og gagnkvæmt. — Ur Þjórsárdal verður far-
ið að Geysi, Gullfossi, Hvítárvatni og upp í Kerlingar-
fjöll. — Til baka um Laugardal, Lyngdalsheiði og
Þingvelli.
12. ferð, 11.—12. júlí. Náttfaravíkur.
Ekið að Þóroddsstöðum í Köldukinn og gist þar. Farið
þaðan á hestum til Náttfaravíkur og sömu leið til baka.