Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 14

Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 14
12. blaðsíða [Ferðir 7. ferð, 20.—21. júní. Ásbyrgi. Ekið til Asbyrgis og gist þar. Daginn eftir gengið um nágrennið. Þeir, sem heldur vilja dvelja á Þeistareykjum, geta farið úr bílunum á austurleið við Sæluhúsmúla, gengið til Þeistareykja og gist bar í sæluhúsinu. 8. ferð, 27.—28. júní. Fnjóskadalur. Ekið að Reykjum. Einnig farið á hestum um Bíldsár- skarð að Reykjum og gist þar. Daginn eftir farið suður í Bleiksmýrardal og heim um Gönguskarð og Garðsár- dal. 9. ferð, 4.—5. júlí. Vegagerð. Ekið í Arnarstaðatungur og unnið þar að vegagerð. 10. ferð, 4.—12. júlí. Fjallaferð (á hestum). Farið úr Eyjafirði suður um Vatnahjalla, Laugarfell, Arnarfell, Nauthaga, Gljúfurleit og niður í Gjána í Þjórsárdal og sömu leið til baka. 11. íerð, 4.—12. júlí. Suðurlandsferð (í bílum). Helztu viðkomustaðir: Vatnsdalshólar, Hreðavatn, Hvanneyri, Reykholt, Húsafell, Þingvellir, Þrastalund- ur og Þjórsárdalur. — A sama tíma kemur „fjallahóp- urinn“ í Þjórsárdal og geta þá nokkrir skipt um farar- tæki, þannig, að þeir, sem fóru á hestum suður fari í bíl- um norður og gagnkvæmt. — Ur Þjórsárdal verður far- ið að Geysi, Gullfossi, Hvítárvatni og upp í Kerlingar- fjöll. — Til baka um Laugardal, Lyngdalsheiði og Þingvelli. 12. ferð, 11.—12. júlí. Náttfaravíkur. Ekið að Þóroddsstöðum í Köldukinn og gist þar. Farið þaðan á hestum til Náttfaravíkur og sömu leið til baka.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.