Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 17
Ffá félaginu
Eins og að undanförnu er Ferðum ætlað að vera eins konar tengi-
lið'ur milli félagsmanna og færa þeim helztu fregnirnar af félagsstarf-
inu. Annars er æskilegt að félagsmenn sæktu betur aðalfund en ver-
ið hefir, svo að þeir gætu sjálfir tekið virkari þátt í störfum félagsins.
Aöalfundur
F. F. A. var haldinn 19. febr. s.l., var hann að vísu betur sóttur en
stundum áður, en betur mé þó ef duga skal. A fundinum var að venju
gefið yfirlit um starfsemi félagsins og lagðir fram endurskoðaðir
reikningar þess yfir s.l. ár. Voru reikningarnir samþykktir athuga-
semdalaust. Samkvæmt tillögum stjórnarinnar var samþykkt, að
leggja kr. 500 í Sæluhússjóð og eins að greiða formanni ferðanefnd-
ar, Þorsteini Þorsteinssyni, kr. 200 í viðurkenningarskyni fyrir mikið
og óeigingjarnt starf við vegagerðina á Vatnahjalla og í ferðanefnd.
Úr stjórninni áttu að ganga: Steindór Steindórsson, Björn Þórðarson
og Þormóður Sveinsson og voru þeir allir endurkosnir. I varastjórn
voru kosnir: Þorsteinn Þorsteinsson, Edvard Sigurgeirsson og Kjart-
an Sæmundsson. Ferðanefnd var öll endurkosin, þeir Þorsteinn Þor-
steinsson, Edvard Sigurgeirsson, Kjartan Sæmundsson, Armann Dal-
mannsson og Jónas Hallgrímsson. Og til vara: Sesselja Eldjárn, Ól-
afur Jónsson og Þormóður Sveinsson. Endurskoðendur voru endur-
kosnir Arni Jóhannsson og Kjartan Sæmundsson. Félagar teljast nú
um 340. Að loknum fundarstörfum sýndi Edvard Sigurgeirsson kvik-
mynd frá ferð til Kverkfjalla og víðar að. Var myndin ágæt og gerð-
ur að henni bezti rómur.
Fjárhagur.
Eignir félagsins í ársbyrjun 1942 eru kr. 4374.42. Af því var i
félagssjóði kr. 1028.17; Sæluhússjóði kr. 2145.19; í ferðasjóði kr.
269.06; í vegasjóði kr. 290.00. Ferðaáhöld metin á kr. 367.00 og
óseldar árbækur og skuggamyndir kr. 275.00.
Skemmtiferðir:
S.l. sumar voru farnar 9, en áætlaðar höfðu verið 13. Þátttaka var
öllu betri en sumarið 1940, en þó nokkru minni en á undanförnum
árum. Ættu félagsmenn þó að muna það, að ferðir F. F. A. eru beztu