Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.04.1942, Qupperneq 17

Ferðir - 01.04.1942, Qupperneq 17
Ffá félaginu Eins og að undanförnu er Ferðum ætlað að vera eins konar tengi- lið'ur milli félagsmanna og færa þeim helztu fregnirnar af félagsstarf- inu. Annars er æskilegt að félagsmenn sæktu betur aðalfund en ver- ið hefir, svo að þeir gætu sjálfir tekið virkari þátt í störfum félagsins. Aöalfundur F. F. A. var haldinn 19. febr. s.l., var hann að vísu betur sóttur en stundum áður, en betur mé þó ef duga skal. A fundinum var að venju gefið yfirlit um starfsemi félagsins og lagðir fram endurskoðaðir reikningar þess yfir s.l. ár. Voru reikningarnir samþykktir athuga- semdalaust. Samkvæmt tillögum stjórnarinnar var samþykkt, að leggja kr. 500 í Sæluhússjóð og eins að greiða formanni ferðanefnd- ar, Þorsteini Þorsteinssyni, kr. 200 í viðurkenningarskyni fyrir mikið og óeigingjarnt starf við vegagerðina á Vatnahjalla og í ferðanefnd. Úr stjórninni áttu að ganga: Steindór Steindórsson, Björn Þórðarson og Þormóður Sveinsson og voru þeir allir endurkosnir. I varastjórn voru kosnir: Þorsteinn Þorsteinsson, Edvard Sigurgeirsson og Kjart- an Sæmundsson. Ferðanefnd var öll endurkosin, þeir Þorsteinn Þor- steinsson, Edvard Sigurgeirsson, Kjartan Sæmundsson, Armann Dal- mannsson og Jónas Hallgrímsson. Og til vara: Sesselja Eldjárn, Ól- afur Jónsson og Þormóður Sveinsson. Endurskoðendur voru endur- kosnir Arni Jóhannsson og Kjartan Sæmundsson. Félagar teljast nú um 340. Að loknum fundarstörfum sýndi Edvard Sigurgeirsson kvik- mynd frá ferð til Kverkfjalla og víðar að. Var myndin ágæt og gerð- ur að henni bezti rómur. Fjárhagur. Eignir félagsins í ársbyrjun 1942 eru kr. 4374.42. Af því var i félagssjóði kr. 1028.17; Sæluhússjóði kr. 2145.19; í ferðasjóði kr. 269.06; í vegasjóði kr. 290.00. Ferðaáhöld metin á kr. 367.00 og óseldar árbækur og skuggamyndir kr. 275.00. Skemmtiferðir: S.l. sumar voru farnar 9, en áætlaðar höfðu verið 13. Þátttaka var öllu betri en sumarið 1940, en þó nokkru minni en á undanförnum árum. Ættu félagsmenn þó að muna það, að ferðir F. F. A. eru beztu

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.