Reykjanes - 01.05.1947, Page 1
Námsbækur, skólavörur. Bókabúð Keflavíkur. 1 CEYKIAN ES Ef það fæst ekki í VATNSNES,
Sími 102. 5. árg. KeOavík, maí 1947 3. íbL hvar þá?
Gunnar Eyjólfsson
í/í*riV fjtirðiitn í‘m*t/an.
Gunnar hefur nú lokið námi við
líonunglega leikskólann í London,
með svo miklum ágætum að landi
og þjóð er sómi að. Við Keflvík-
ingar megum sannarlega vera
hreiknir af Gunnari, því þar er
drengur á ferð, sem er Ííklegur til
að gera garðinn frægann. Það er
gaman fyrir okkur að hann skuli
einmitt hafa stigið sín fyrstu spor
á leiksviðinu hér í Keflavík.
Gunnar hefur enga tilhneigingu
til að fela æskustöðvar sínar, enda
[)ótt þær séu fátæklegt fiskiþorp.
Eins og aðrir Íslendingar, sem
dveljast erlendis þarf hann oft að
gera grein fyrir sér, og byrjar sú
skýring ávallt eins, að hann sé frá
Keflavík og að Keflavík sé J'iski-
bær á suðvesturströnd Islands. . . .
Gunnar lauk prófi frá Verzlun-
arskóla Islands árið 1944 og stóð
sig við það nám ekld mjög illa.
1 verzlunarstörfunum fann hann
ekki það sem hugurinn girndist og
hóf því nám við leikskóla Lárusar
Pálssonar, jafnframt því sem hann
vann fyrir sér að miklu leyti við
verzlunarstörf í Reykjavík. Gunn-
ar var þar mjög góður nemandi
og leiddi það til þess að Lárus
aðstoðaði hann og hvatti hann til
að komast á konunglega hrezka
leikskólann.
Þar hóf Gunnar nám árið 1945,
sem hann nú hefur lokið með hin-
um ágætasta vitnisburði, svo
góðum að framúr skarar. Gunnar
hlaut að lokum heiðursverðlaun
skólans, sem annar af tveim beztu
nemandum skólans og auk þess
sérstök verðlaun sem l)ezti Shake-
speare leikarinn og er hann fyrsti
útlendingurinn sem slíkan heiður
hlýtur og það er meira cn lítið
afrek að hljóta slík verðlaun í
landi Shakespeare’s og sýnir [)að
betur en margt annað hve frá-
bæran dugnað og hæfileika Gunn-
ar hefur til að bera. Leikskólinn
veitir á hverju ári bezta nemanda
sínum fastan starfssamning hjá
bezta leikfélagi Lundúnaborgar,
og hefur Gunnar því hlotið þar
árs vinnu, el' tekst að útvega hon-
um atvinnuleyfi i Englandi. Slík
kynning mun opna honum ótal
dyr til vaxandi frama. Áður var
hann ráðinn við þjóðleikhúsið í
Dublin á Irlandi, en fékk sig að
sinni lausan frá þeim samningi.
Auk ])essa alls hafa honum nú
þegar borizt mörg tilboð frá l)æði
leikhúsum og kvikmyndafélögum.
Það er engin vafi á því að Gunn-
ar er gæddur miklum hæfileikum,
sem leikari og á eftir að ná langt
á þeirri erfiðu braut. Hann er einn
af þeim fáu hamningjusömu, sem
hefur fundið hina réttu köllun sína
í lífinu. Það eru fleiri stoðir sem
renna undir frama hans en hæfi-
leikar einar saman, þar er einnig
stór þáttnr hin alúðlega og ein-
læga framkoma hans, sem skapar
honum vináttu og velvild allra
sem honum kvnnast.
Við Keflvíkingar höfum því
miður ekki átt kost á að sjá mikið’
til Gunnars á leiksviðinu, en þó
nmn marga reka minni tit leiks
lians í „Ljósastikur biskupsins",
sem hann lék með skátnnum á
fyrsta sumardag fyrir tveim ár-
um, en mér segir svo hugur um
að við eigum eftir að sjá Gunnar
á okkur eigin leiksviði, svo fljótt
sem kringumstæður hans leyfa,
því tryggð haps og vinfesti hefur
í engu breyzt.
Eg veit að mér verður fyrir-
gefið, þó ég birti hér nokkrar lín-
ur úr síðasta bréfinu, sem ég fékk
lrá Gunnari, þær lýsa honum og
starfi hans betur en margt ann-
að „....... þú veist Helgi að eg
er svo ungur og á svo margt eftir
ólært, og mig langar til að komast
eins langt og eg get. Eg veit að
ef eg haga mér eins og maður
og svík hvorki sjálfan mig eða
aðra, þá kemst eg eitthvað áleið-
is......“
Eg veit að allir Keflvíkingar
taka undir með mér, er eg óska
Gunnari til hamingju með afrek
hans, og óska honum frama og
farsældar við væntanleg störf. Við
óskum einnig föður hans, frænd-
um og vinum innilega til hamingju
með þeirra góða dreng. Innst inn
berum við öll ])á leyndu ósk i
brjósti að ísland fái að njóta hans
sem fyrst, að honum auðnist að
koma heim og auðga okkur með
þekkingu sinni og reynslu, því
hvar sem hann fer þar er full-
trúi Islands, einn af þessum góðu
fulltrúum, sem enginn þarf að
vantreysta. Bak við tistina og
starfið er ísland von hans og þrá.
Helgi S.