Reykjanes - 01.11.1959, Blaðsíða 1

Reykjanes - 01.11.1959, Blaðsíða 1
REYKJANES 9. tbl. KEFLAVfK Nóvember 1959 HÖFNIN DÝPKUÐ Verið er að gera tilraun til að dýpka við bátabryggjumar í Keflavíkurhöfn. „Grettir" hefur verið þar að vinnu undanfarið, og orðið tals- vert ágengt, þó að botninn sé erfiður, eða því sem næst klöpp og stórgrýti, sem botnsköfur vinna lítið á. Sprengingar á klöppinni hafa verið reyndar og tekizt vel, það sem af er. Fyrst var leitað fyrir sér með krana og svokölluðum Krabba, og þótti það gefa þann árangur, að „Grettir“ mundi geta unnið frekar að. Ef dýpkun þessi tekst, eins og áætlað er, þá ætti að skapast losunarstaðir fyrir 3—4 báta, miðað við lágsjávað, en fyrir em aðeins losunarmöguleikar fyrir 6 báta við bryggjurnar fyrir utan sjálfan hafnargarð- inn. — Það er gott og virðingarvert af Landshafnarstjóm að láta gera þessa tilraun, sem vonandi tekst eins og áætlað var. En það skal meira til. Það verður að gera framtíðaráætlun um stækkun og fulla hagnýtingu hafnarinnar, því að þrengsli þar em þegar farin að verka stöðvandi á útgerðina. Það er kákað við allar hafnir á Suðurnesjum. Ekkert fullgert og unnið án samræmdrar áætl- unar, sem er nauðsynlegt, ef árangur á að nást. Sá árangur að hafnleysið hamli ekki á móti fjölgun og stækkun bátanna. 1 Keflavík eru þegar svo góð og vaxandi skilyrði fyrir'hendi, að höfnin verður að fylgjast með. — Þó að Keflavíkurhöfn sé ríkiseign og þess vegna gjarn- an orðið útundan, þá verður að treysta hafnarstjóm og ný- kjörnum Reykjanesþingmönn- um til þess að hefja skipulagða sókn í hafnarmálum Suður- nesja. ÞRÍR SJÁLFSTÆÐiSMENN Á ALÞINGI FYRIR REYKJANESKJQRDÆMI Ólafur Thors Alfreð Gíslason Maíthías A. Mathiesen Við síðustu kosningar fékk Reykjaneskjördæmi þrjá Sjálf- sæðismenn á Alþingi sem sína fulltrúa. Sérstaklega ber okkur Suðurnesjamönnum að fagna því, að Alfreð Gíslason bæjar- fógeti í Keflavík er í þeirra hópi, þar með höfum við feng- ið fulltrúa á Alþingi, sem þekk- ir okkar mál öðmm fremur og hefur búsetu miðsvæðis í hér- aði og því nærtækur til samráðs og fyrirgreiðslu í málefnum Suðurnesjanna. Að sjálfsögðu verða höfuðtáökin á því þingi, sem nú kemur saman, um efna- hagsmálin og lausn þeirra vandamála, sem bíða þjóðar- innar í heild. Þau átök hljóta að verulegu leyti að verða mörkuð stefnu Sjálfstæðis- manna, ef í þeirra hlut fellur stjómarforustan, sem allt bend- ir nú til að verði, þegar þetta er skrifað. 8 þingmeim alls fyrir Reyk|aneskjördæmi Alls eru nú 8 þingmenn fyr- ir Reykjaneskjördæmi. Þessir þingmenn era Ólafur Thors, Matthías A. Mathiesen, Alfreð Gíslason fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, Emil Jónsson og Guð- mundur 1. Guðmundsson fyrir Alþýðuflokkinn, Finnbogi Rút- ur Valdimarsson og Geir Gunn- arsson fyrir Kommúnista og Jón Skaftason fyrir Framsókn- arflokkinn. Þetta er það, sem Framsókn- arliðið barðist gegn, þegar það fékk geðveikiskastið gegn breyttri kjördæmaskipan — sómasamlegu jafnrétti fólksins og skynsamlegri kjördæmaskip- an. 8 þingmenn í Reykjanes- kjördæmi í stað tveggja áður, það er það, sem skrítni maður- inn í skutnum — Eysteinn Jónsson — kallaði „landeyð- ingarstefnu“ og „að leggja hér- uðin niður“ og annað álíka gáfulegt, sem Framsóknarliðið söng í kór, þegar í sumar var kosið um aukið lýðræði í land- inu. — Það er að vísu mikill galli að hafa Kommúnista og Framsókn meðal þingmanna kjördæmis- ins og til lítils sóma fyrir jafn vel mennt hérað og Reykja- neskjördæmi er, en við því er ekkert að segja að sinni — fólk- ið kaus þetta yfir sig, það hafði rétt til þess, sem búið var að skapa því með breyttri skipan kjördæmanna — og Framsókn naut þar einnig aukins lýðræðis á sama hátt og aðrir, þrátt fyrir baráttu sína á móti lýðræði og mannréttindum. Sjálfstæðismenn verða að standa fast saman um sína þingmenn. Við verðum að efla flokksstarfið og félagssamtökin. Það er ekki nóg að vinna vel síðustu dagana fyrir kosningar — við verðum að hafa hugfast, að allir dagar eru dagar fyrir nœstu kosningar. Nú höfum við valið okkur glæsilega forustu- menn, en þeir vinna ekki einir sigurinn — að baki þeirra, og við hlið þeirra verður að standa samhent og vaxandi fylking. — Þingmenn okkar eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins og við er- um Sjálfstæðisflokkurinn. Lát- um ekki merkið falla! AlLa daga aukið starf! „Grettir" að starfi í Keflavíkurhöfn Ljósm.: Ó.J.S.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.