Reykjanes - 01.11.1959, Side 3
Nóvember 1959
REYKJANES
3
OFRÆGINGARSTRIÐ
KRATANNA
Mönnum er í fersku minni,
hve mikill völlur var á krötun-
um nú fyrir kosningarnar. Þeir
þóttust hafa afrekað miklu, og
í kosningunum hefðu þeir
mörgum og merkum málefn-
um að berjast fyrir.
Ekki var þó hátt risið á mál-
efnabaráttu kratanna hér í
Keflavík, hvað sem öðru líður.
Þeir gáfu hér út eitt kosninga-
blað af „Röðli“, sem einkennd-
ist af smáskitlegu narti í Alfreð
Gíslason og bæjarstjórnar-
meirihlutann í Keflavík. Ekki
sýnir það oftrú á málstaðinn,
að telja slík vopn árangursrík-
ust. Aurslettumar dæma sig
sjálfar, og er ekki eyðandi að
þeim mörgum orðum, en ég tel
þó rétt að gera ummælum
Ragnars Guðleifssonar um
smíði vatnstanksins hér nokkur
skil, enda grípa þar inn í mál,
sem eru almennara eðlis.
Elann gerir að sérstöku um-
talsefni, að á sex árum hafi alls
verið áætlaðar um 2.5 millj. kr.
til smíði vatnstanksins, og sé
því von til þess, að fé sé nú
fyrir hendi. Ekki þarf hann að
óttast, að það verði neitt van-
skilabragð af vatninu, þegar
það fer að renna til hans gegn-
um nýja tankinn, en hitt veit
hann, að fé það, sem á undan-
förnum árum hefir verið áætl-
að til vatnstanksins, og sem þó
hefur a. m. k. stundum ekki
verið aðskilið frá öðrum fjár-
veitingum til vatnsveitunnar,
hefur alls ekki verið lagt til
hliðar. Fjárhagsáætlanir bæjar-
ins á undanförnum árum hafa
ekki verið þannig úr garði gerð-
ar, að endamir næðu nálægt
því saman nema á pappírnum.
Var þetta staðfest sérstaklega
af fyrrverandi bæjarstjóra,
Valtý Guðjónssyni, á bæjar-
stjórnarfundi í sumar, er fjall-
að var um niðurjöfnun útsvara.
Sagði hann þá, að venjan hefði
verið sú, að áætla ekki fyrir
vanhöldum eða lækkunum á
útsvömm. Þýðir það, að raun-
vemlegar tekjur bæjarsjóðs
verða allmiklu lægri en niður-
stöðutölur áætlunarinnar segja
til um, og þegar þar við bætist,
að ýmsir rekstrarútgjaldaliðir
hafa reynzt of lágt. áætlaðir, er
bersýnilegt, að ekkert fé verður
til í sumar þær verklegar fram-
kvæmdir, sem teknar eru á
fjárhagsáætlun. Er vatnstank-
urinn aðeins eitt dæmi þessa
og rakið hér til þess að menn
geri sér grein fyrir ástæðum
þess að bæjarsjóður geymir
ekki gilda sjóði þess fjár, sem
áætlað"hefur verið til verklegra
framkvæmda, sem svo ekki
hafa verið unnar. Til þess að
mæta þessum áætluðu fjárveit-
ingum hafa ekki verið til raun-
verulegar tekjur. Féð til þess-
ara framkvæmda hefur aldrei
í bæjarsjóð komið, og því hafa
verkin ekki verið leyst af hendi.
Ragnar deilir sérstaklega á
bæjarstjórnarmeirihlutann eða
mig fyrir að bjóða verkið út, i
stað þess að láta vinna það í
tímavinnu fyrir reikning bæj-
arins. Nú hefur útboð jafnan
verið talið veruleg trygging
fyrir því, að verk fáist unnið
fyrir hagstætt verð, og kveður
hér mjög við annan tón en hjá
andstæðingum bæjarstjórnar-
meirihlutans í Reykjavík, sem
hafa deilt á hann fyrir að bjóða
ekki út verk. Hitt þegir Ragn-
ar líka um, sem honum var þó
vel kunnugt, sem og öllum
þeim, er einhver kynni hafa
af byggingarmálum, að nú um
langt skeið hefur verið ógern-
ingur að fá byggingariðnaðar-
menn til þess að taka að sér
byggingarframkvæmdir sem
þessar í tímavinnu. Var gerð
grein fyrir þessu bæði af
mér og byggingarfulltrúa á
bæjarráðsfundi þeim, er fjall-
aði um tilboðin, og var Ragnar
þar mættur. Hér var því einn-
ig um það að ræða, hvort við
áttum að fá tankinn byggðan í
haust, eða bíða þess, að ein-
hvem tíma yrði það mikið at-
vinnuleysi hjá byggingarmönn-
um, að þeir fengjust til að'
byggja hann í tímavinnu.
Ragnar greinir frá upphæð-
um tilboða þeirra, er bárust í
verkið, án nokkurra athuga-
semda, og gefur þannig í skyn,
að verksamningurinn hafi
hljóðað upp á 484 þús. króna.
Hitt vissi hann þó fullvel, sem
ég skýrði frá á bæjarstjómar-
fundi að honum viðstöddum,
að mer hefði tekizt að fá samn-
ingsverðið lækkað um 40 þús.
króna. Þessu hefði Ragnar
skýrt frá, ef hann hefði eins
mikinn áhuga á að segja satt
og að ófrægja mig og bæjar-
st j órnarmeirihlutann.
Ég mun ekki að þessu sinni
gera skítkast Röðuls eða aðrar
gróusögur kratanna um mig og
bæjarstjórnarmeirihlutann
frekar að umtalsefni, enda þótt
sumar þeirra hefðu verið til
þess fallnar að vinna hagsmun-
Málfundafélagið „Faxi”
verður 20 ára um þessar
mundir og mun það mirmast
afmælisins með hófi á Aðal-
veri laugardaginn 21. nóv. —
Málfundafélagið hefur verið
lífseigt og athafnamikið félag,
meðal annars gefið út blaðið
„Faxa“ í 19 ár, og er það nú
orðin merkileg bók með miklar
heimildir og skemmtilestur.
Málfundafélagið er jafnan
skipað 12 mönnum og voru
þeir upphaflega skipaðir til
jafns frá stjómmálaflokkun-
um, en sú skipan mun hafa
raskazt með árunum. — Hall-
grímur Th. Rjömsson er nú-
verandi formaður og jafnframt
ritstjóri „Faxa“.
Reykjanes óskar Málfunda-
félaginu til hamingju með af-
mælið og óskar því langra líf-
daga og mikilla starfa í fram-
tíðinni.
Tónlist ardagur
í Keflavík.
Stofnað var til Tónlistardags
í Keflavík laugard. 14. nóv.
Tilefnið var að hefja átti fjár-
söfnun til byggingar Hljóm-
skála eða Tónlistarhúss í Kefla-
vík. öll samtök tónlistarmanna
hér standa að þessari hugmynd
— Tónlistarfélagið, Karlakórinn
og Lúðrasveitin. Efnt var til
hljómleika í Ríóhöllinni og vel
til þeirra vandað. Karlakórinn
um bæjarins tjón, ef nokkur
hefði trúað þeim, en þeir sem
beita slíkum vopnum, falla
löngum á verkum sínum. Ég
hef jafnan látið slíkt sem vind
um eyrun þjóta, en frá því að
ég kom hingað fyrst, hef ég leit-
azt við að vinna að framgangi
íiagsmunamála bæjarins og
Dæjarbúa í samstarfi við alla
þá, er með mér hafa viljað
vinna að þeim, og þá án þess
að spyrja um stjórnmálaskoð-
söng þar undir stjórn Herberts
Hribercheks, og tókst vel að
vanda. Undirleik annaðist
Ragnheiður Skúladóttir. Þá lék
Lúðrasveitin nokkur lög og
stjómaði Guðmundur Norð-
dahl. Ragnar Rjörnsson skóla-
stjóri Tónlistarskólans og Árni
Arinbjamarson fiðluleikari
léku saman, og Guðmundur
Norðdahl lék einleik á klarinett
með aðstoð Ragnars. Einnig lék
blásturskvartett úr Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Tónleikar
þessir tókust með ágætum, og
voru þátttakendur yfir 60 tals-
ins. Einn skugga bar þó á —
áheyrendur vom alltof fáir —
svo að tilgangurinn, fjársöfn-
un til Hljómskálans, tókst ekki
sem skyldi að þessu sinni.
Að hljómleikunum loknum
héldu félögin árshátíð sína í
U.M.F.K.-húsinu -—- einnig til
fjáröflunar -— og tókst það
sýnu betur.
Ryggingarnefnd Tónlistar-
húss Keflavíkur skipa eftir-
taldir menn: Guðmundur
Norðdahl, Haukur Þórðarson,
ICristinn Pétursson, Guðmund-
ur Þengilsson, Guðmundur
Guðjónsson og Guðfinnur Sig-
urvinsson.
Ryggingarnefndin og félögin,
sem að henni standa, munu þó
ekki gefast upp — heldur halda
áfram að vinna af krafti að
framgangi byggingarmálsins og
leita hjálpar og aðstoðar, hvar
sem tiltækilegt verður.
anir hverju sinni. Tel ég æski-
legast, að svo megi áfram verða,
því svo er framgangur hags-
munamála bæjarins bezt
tryggður, að sem flestir leggi
þeim lið, en ef kratarnir kjósa
heldur stríð, þá geta þeir einn-
ig fengið sitt stríð. Er þá óvíst,
hver annan grefur, en hætt er
við, að sum hagsmunamál bæj-
arins falli þá einnig í gröf.
Eggert Jónsson.
Dregið 1. (li'senilicr.
Munið ;i«Y grra skil, kaupa eða selja niiðana, eí
eitihvað er óselt.